Farsímaáskriftum farið að fjölga á ný og „tæki í tæki“ áskriftir margfaldast

Í fyrra fækk­aði far­síma­á­skrifum á íslenska fjar­skipta­mark­aðnum í fyrsta sinn milli ára frá 1994. Þeim hefur fjölgað á ný í ár. Fjöldi svo­kall­aðra „tæki í tæki“ áskrifta hefur farið úr 54 þús­und í byrjun síð­asta árs í um 300 þús­und nú.

Alls voru 485.668 far­síma­á­skriftir skráðar hjá íslenskum fjar­skipta­fyr­ir­tækjum í lok júní síð­ast­lið­ins. Það eru tæp­lega tíu þús­und fleiri áskriftir en voru skráðar um síð­ustu ára­mót.

Sú fjölgun er athygl­is­verð vegna þess að á árinu 2020 fækk­aði far­síma­á­skriftum um 303, en það var í fyrsta sinn frá því að GSM-sím­inn hóf mæl­an­lega inn­reið sína inn á íslenskan fjar­skipta­markað árið 1994 sem far­síma­á­skriftum fækk­aði milli ára. Kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn hefur haft sitt að segja í þeirri þróun.

Því hefur orðið mæl­an­legur við­snún­ingur milli ára, sam­hliða því sem íslenskt sam­fé­lag hefur jafnað sig efna­hags­lega eftir fyrstu áhrif far­ald­urs­ins í fyrra.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri töl­fræði skýrslu Fjar­skipta­stofu sem áður hét Póst- og fjar­skipta­stofn­un, um fjar­skipta­mark­að­inn sem sýnir stöð­una um mitt ár 2021.

Að sama skapi hefur fjöldi svo­kall­aðra „tæki í tæki“ áskrifta (e. M2M), sem stundum er kallað „inter­net hlut­anna (e. inter­net of things)“ marg­fald­ast á einu og hálfu ári. Tæknin gengur út á að láta tæki eiga í sam­skiptum hvert við annað yfir inter­netið, oft í gegnum far­síma­kerfið.

Slíkar áskriftir voru um 54 þús­und í lok árs 2019 en 112 þús­und um síð­ustu ára­mót. Um mitt ár þetta ár voru þær orðnar 299.889.

Þrjú fyrirtæki samanlagt með 96 prósent af markaðnum

Á Íslandi eru þrjú fjar­skipta­fyr­ir­tæki; Sím­inn, Nova og Vodafone (sem til­heyrir Sýn-­sam­stæð­unni) sem eru sam­an­lagt með 95,8 pró­sent mark­aðs­hlut­deild á far­síma­mark­að­i. Hlut­fallið hefur hald­ist á þeim slóðum árum saman.

[adspot]Þau bættu öll þrjú við sig við­skipta­vinum frá miðju ári í fyrra og til júníloka 2021. Mark­aðs­hlut­deild hvers og eins hélst þó svipuð. Síminn og Vodafone töp­uðu lít­il­lega en Nova bætti við sig.

Ein­ungis eitt þeirra, Nova, fjölg­aði við­skipta­vinum sínum á mark­aðnum á árinu 2020, ein þeim fjölg­aði þó ein­ungis um átta. Mark­aðs­hlut­deild Nova stóð því nán­ast í stað en hún var 32,9 pró­sent í lok síð­asta árs.

Fjölgað á ný eftir samdrátt í fyrra

Fyrsta aðgengi­lega töl­fræði­skýrsla Póst- og fjar­skipta­stofn­unar um fjar­skipta­mark­að­inn kom út árið 2005. Þar voru birtar tölur um fjölda skráðra GSM-á­skrifta aftur til árs­ins 1994, þegar þær voru 2.119 tals­ins. Næstu árin fjölg­aði þeim jafnt og þétt og voru orðnar 284.521 árið 2005.

Með snjall­síma­bylt­ing­unni, sem kom til eftir að fyrsti iPhone-inn var kynntur til leiks sum­arið 2007, breyt­ist hlut­verk sím­ans umtals­vert og hann fór að nýt­ast í mun fleiri hluti en áður. Nú til dags er þessi litla tölva í vasa okkar flestra helsta tækið sem notað er til að nálg­ast afþr­ey­ingu, sam­fé­lags­miðla og frétt­ir. Hún er auk þess mynda­vél, halla­mál, hlaupa­þjálf­ari, veð­ur­fræð­ing­ur, nær­ing­ar­ráð­gjafi og ýmis­legt ann­að.

Árið 2007 var heild­ar­fjöldi GSM-á­skrifta kom­inn í tæp­lega 312 þús­und hér­lend­is. Árið 2010 var fjöld­inn kom­inn í 375 þús­und og 2014 fór hann yfir 400 þús­und.

Fjöld­inn náði því að vera tæp­lega 476 þús­und árið 2019 en skrapp saman í fyrra í fyrsta sinn frá því að farið var að halda utan um þessar töl­ur. Hann jókst á ný á fyrri hluta þessa árs og er nú, líkt og áður sagði 485.668.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár