Hildur vann en fékk undir helming atkvæða og íhaldsarmurinn hirti næstu sæti

Nýr odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, Hildur Björns­dóttir, til­heyrir frjáls­lynd­ari og fram­sækn­ari hluta borg­ar­stjórn­ar­flokks hans. Aðrir sem eru nálægt henni í skoð­unum náðu ekki þeim árangri sem þeir sótt­ust eftir í próf­kjöri flokks­ins.

Hildur Björnsdóttir er nýr oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Hildur Björns­dóttir er nýr odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík. Mynd: Sjálfstæðisflokkurinn

Hildur Björns­dóttir er nýr odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík og leiðir hann í kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum. Í próf­kjöri flokks­ins sem lauk í gær hlaut hún 49,2 pró­sent atkvæða í fyrsta sætið en fékk harða sam­keppni frá Ragn­hildi Öldu Maríu Vil­hjálms­dóttur. Alls vildu 37,1 pró­sent þeirra sem greiddu atkvæði að hún leiddi list­ann. Hildur náði því ekki að fá stuðn­ing meiri­hluta þeirra sem tóku þátt í próf­kjör­inu.

Ragn­hildur Alda lenti í öðru sæti og Kjartan Magn­ús­son, sem var borg­ar­full­trúi um margra ára skeið en var ekki í fram­boði 2018, er í því þriðja. Kjartan sótt­ist eftir öðru sæt­inu. Næst koma tveir sitj­andi borg­ar­full­trúar, Marta Guð­jóns­dóttir sem fékk fjórða sætið en sótt­ist eftir öðru sæt­inu, og Björn Gíslason, sem sótt­ist eftir þriðja sæt­inu.

Friðjón R. Frið­jóns­son, einn eig­anda almanna­tengsla­fyr­ir­tæk­is­ins KOM og vara­þing­maður, sótt­ist eftir öðru sæt­inu á list­anum en lenti í því sjötta í próf­kjör­inu. Helgi Áss Grét­ars­son vildi fimmta sætið en end­aði í því sjö­unda og Sandra Hlíf Ocares sótt­ist eftir þriðja sæt­inu en fékk átt­unda.

Jórunn Pála Jón­as­dóttir vara­borg­ar­full­trúi lenti í níunda sæti og Birna Hafstein í því tíunda. Val­gerður Sig­urð­ar­dóttir, sitj­andi borg­ar­full­trúi, sótt­ist eftir þriðja sæt­inu en lenti í því ell­efta.

Alls kusu 5.545 í próf­kjör­inu. Gild atkvæði voru 5.292 atkvæði. Auð og ógild atkvæði eru 253.

Ólík öfl tókust á innan flokksins

Hildur, sem var í öðru sæti á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins árið 2018 á eftir núver­andi odd­vita Eyþóri Arnalds, hefur þótt hafa frjáls­lynd­ari og fram­sækn­ari skoð­anir á borg­ar­málum en margir hinna borg­ar­full­trúa flokks­ins.

Hún hefur til að mynda staðið fyrir allt annarri sýn í skipu­lags- og sam­göngu­málum en borg­ar­full­trú­arnir Marta Guð­jóns­dóttir og Björn Gíslason. Í grein sem hún skrif­aði í mars í fyrra í Morg­un­blaðið sagði meðal ann­ars: „Lausn sam­göngu­vand­ans mun ekki fel­ast í hrað­braut gegnum Foss­vogs­dal­inn og mis­lægum gatna­mótum inn í Elliða­ár­dal­inn. Lausnin mun fel­ast í betra borg­ar­skipu­lagi, dreifð­ari atvinnu­tæki­færum og auk­inni fjar­vinnu – en ekki síst breyttum ferða­venjum og fjöl­breyttum val­kost­u­m.“. Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri og odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar, hrós­aði Hildi fyrir grein­ina í bók sinni „Nýjá Reykja­vík“ sem kom út seint á síð­asta ári. Hann sagði Hildi hafa „jarð­að“ mál­flutn­ing ýmissa tals­manna gam­alla úrræða í sam­göngu­málum þar sem bíl­inn væri í algjörum for­gangi. „Með þess­ari öfl­ugu grein gerði Hildur algjör­lega ljóst hvar hún stendur í afstöð­unni til stærstu spurn­ing­anna um sam­göngu­mál og þróun borg­ar­innar og kall­aði eftir hug­rekki til breyt­inga.“

[adspot]Heim­ildir Kjarnans herma að vænt­ingar hafði verið til þess í hópnum sem studdi Hildi til að leiða list­ann að fram­bjóð­endur sem eru mun nær henni í hug­myndum og nálg­unum myndu fylla næstu sæti á eftir henni þar sem fyrir liggur að ekki eru margir mögu­leikar í stöð­unni til að mynda meiri­hluta í Reykja­vík með öðrum flokkum sem stendur á grunni mjög íhalds­samra hug­mynda, sér­stak­lega í skipu­lags- og sam­göngu­málum.

Íhaldsöflin heilt yfir sigurvegari prófkjörsins

Frjáls­lynd­ari fram­bjóð­end­urnir riðu hins vegar ekki feitum hesti frá próf­kjör­inu. Ragn­hildur Alda, Marta, Kjartan, Björn og Helgi Áss eru öll með sam­bæri­legar og íhalds­samar áherslur, sér­stak­lega þegar kemur að sam­göngu- og skipu­lags­málum þar sem þau vilja brjóta mikið nýtt land undir hús­næð­is­upp­bygg­ingu og greiða fyrir einka­bílnum frekar en að þétta áfram byggð og fjár­festa stórt í almenn­ings­sam­göngum eins og borg­ar­línu í sér­rými, líkt og sam­þykkt hefur verið í sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er í dag með átta borg­ar­full­trúa og ef hann næði sama árangri í kosn­ing­unum í maí og hann náði 2018, þegar hann fékk 30,8 pró­sent atkvæða, myndu ein­ungis tveir þeirra sem náðu inn í efstu átta sætin í próf­kjör­inu í gær utan Hildar telj­ast til frjáls­lynd­ari arms borg­ar­stjórn­ar­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Friðjón sem sótt­ist eftir öðru sæt­inu en fékk sjötta, og Sandra, sem sótt­ist eftir þriðja sæt­inu en fékk það átt­unda.

Flokkurinn langt frá kjörfylgi í nýjustu könnun

Nýjasta könnun Maskínu um fylgi flokka í borg­inni, sem var birt á föstu­dag, sýnir að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er þó ansi langt frá því að mæl­ast í kjör­fylgi. Þar sögð­ust 22 pró­sent aðspurðra ætla að kjósa flokk­inn í maí. Miðað við það myndi borg­ar­full­trúum hans fækka og bæði Friðjón og Sandra gætu þar verið í hættu að óbreyttu.

Þeir fjórir flokkar sem mynda meiri­hluta í Reykja­vík: Sam­fylk­ingin, Píratar, Viðreisn og Vinstri græn, mæl­ast hins vegar með 54 pró­sent sam­eig­in­legt fylgi í sömu könnun en fengu 46,4 pró­sent 2018. Sam­fylk­ingin tapar umtals­verðu fylgi sam­kvæmt könn­un­inni en er samt stærstur flokk­anna í meiri­hlut­anum. Píratar bæta hins vegar miklu fylgi við sig og Vinstri græn vaxa mynd­ar­lega líka. Viðreisn er á mjög svip­uðum slóðum og fyrir fjórum árum.

Röð fram­bjóð­enda í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í gær og at­kvæða­fjöldi í sæti var eft­ir­far­andi:

  1. sæti Hild­ur Björns­dótt­ir með 2.603 at­kvæði í 1. sæti og 3.616 at­kvæði alls.
  2. sæti Ragn­hild­ur Alda María Vil­hjálms­dótt­ir með 2.257 at­kvæði í 1.-2. sæti og 3.254 at­kvæði alls.
  3. sæti Kjart­an Magnús­son með 1.815 at­kvæði í 1.-3. sæti og 3.224 at­kvæði alls.
  4. sæti Marta Guðjóns­dótt­ir með 1.794 at­kvæði í 1.-4. sæti og 2.772 at­kvæði alls.
  5. sæti Björn Gísla­son með 1.555 at­kvæði í 1.-5. sæti og 2.484 at­kvæði alls.
  6. sæti Friðjón R. Friðjóns­son með 1.688 at­kvæði í 1.-6. sæti og 2.293 at­kvæði alls.
  7. sæti Helgi Áss Grét­ars­son með 1.955 at­kvæði í 1.-7. sæti og 2.556 at­kvæði alls.
  8. sæti Sandra Hlíf Ocares með 2.184 at­kvæði í 1.-8. sæti og 2.433 at­kvæði alls.
  9. sæti Jór­unn Pála Jón­as­dótt­ir með 2.396 at­kvæði í 1.-9. sæti.
  10. sæti Birna Haf­stein með 2.319 at­kvæði í 1.-9. sæti.
  11. sæti Val­gerður Sig­urð­ar­dótt­ir með 2.231 at­kvæði í 1.-9. sæti.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár