„Á ekki að skila þessum ólöglega ránsfeng?“

Þing­flokks­for­maður Flokks fólks­ins segir að álag gangi nærri heilsu fólks sem hefur lent í skerð­ingum á greiðslum. „Er ein­hver hissa að kvíði, þung­lyndi, streita, svefn­leysi sé að hrjá þennan hóp í boði rík­is­stjórn­ar­innar?“ spurði hann á þingi í dag.

Guðmundur Ingi Kristinsson þingflokksformaður Flokks fólksins.
Guð­mundur Ingi Krist­ins­son þing­flokks­for­maður Flokks fólks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra, Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, sagði í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag að Trygg­inga­stofnun gengi betur að end­ur­greiða fólki skerð­ingar á greiðslu á sér­stakri fram­færslu upp­bót vegna búsetu erlendis en búist var við.

Hæsti­réttur felldi dóm þann 6. apríl síð­ast­lið­inn þess efnis að Trygg­inga­stofnun hefði verið óheim­ilt að skerða greiðsl­urnar. Guð­mundur Ingi Krist­ins­son þing­flokks­for­maður Flokks fólks­ins spurði ráð­herr­ann af hverju ekki væri greitt 13 ár aftur í tím­ann.

Þing­mað­ur­inn rifj­aði upp orð ráð­herr­ans þegar hann spurði hann út í málið eftir að dómur féll þar sem hann sagði að rík­is­stjórnin ætl­aði að greiða bætur fjögur ár aftur í tím­ann.

Er einhver hissa að kvíði, þunglyndi, streita, svefnleysi sé að hrjá þennan hóp?

„Ríkið hefur með lög­brotum rænt sér­stöku upp­bót­inni af þessum hóp í 13 ár,“ sagði þing­mað­ur­inn og spurði í fram­hald­inu: „Á ekki að skila þessum ólög­lega ráns­feng? Hefur rík­is­stjórnin ekki breytt um skoðun og ákveðið að fara að lögum og borga að fullu þetta ólög­lega fjár­hags­lega ofbeldi gagn­vart verst setta fólk­inu?“

„Þá hafa þeir líf­eyr­is­þegar sem hafa tekið út sér­eign­ar­sparn­að­inn sinn lent í skerð­ingum, keðju­verk­andi skerð­ingum, þannig að við­kom­andi hafa lent í mínus. Hugsa sér að lofa ein­hverjum að hann geti tekið út sér­eign­ar­sparnað sinn án skerð­ingar en gera það svo flókið að stór hópur lendir í skerð­ingum, það miklum skerð­ingum að allt er tekið af þeim. Veikt fólk lendir í því að skrá vit­laust hjá skatt­inum og því reikn­ast þeim tekjur og allt er skert að fullu.

Það hefur einnig keðju­verk­andi áhrif á margar stofn­anir og þau fá ekk­ert leið­rétt eða borgað til baka. Er ein­hver hissa að kvíði, þung­lyndi, streita, svefn­leysi sé að hrjá þennan hóp í boði rík­is­stjórn­ar­innar? Álagið gengur nærri heilsu þessa fólks,“ sagði Guð­mundur Ingi þing­maður.

Hann spurði ráð­herr­ann jafn­framt hvort þessir ein­stak­lingar væru óvinir þess­arar rík­is­stjórnar. „Eru þetta breiðu bökin, verst setta fólkið á Íslandi? Ætlið þið virki­lega að halda áfram að koma svona fram við þetta fólk?“

Lögin í landinu segja fjögur ár

Ráð­herr­ann benti á í svari sínu að hann hefði brugð­ist við dómnum með reglu­gerð­ar­breyt­ingu eftir að hann féll til þess að til leið­rétt­ingar kæmi í fram­hald­inu. „Ég fékk þær fréttir frá Trygg­inga­stofnun í morgun að þeim sé að takast að gera leið­rétt­ing­una fyrr en þau áttu von á, sem er mjög gott. Ég hef líka sagt það í þessum ræðu­stól við fyr­ir­spurn hátt­virts þing­manns Guð­mundar Inga Krist­ins­sonar að ég er ánægður með þessa nið­ur­stöðu Hæsta­réttar. Hún er skref í rétt­læt­isátt fyrir þau sem minnst hafa á milli hand­anna í íslensku sam­fé­lagi og ég stend við þá yfir­lýs­ingu mína.

Varðandi greiðslur aftur í tím­ann þá erum við ein­fald­lega með þau lög í land­inu að það er miðað við fjögur ár, það er fjög­urra ára fyrn­ing­ar­frestur og við munum vinna eins hratt og við getum til að koma greiðslum til þess fólks núna í fram­hald­inu,“ sagði hann.

Ráð­herr­ann sagði að fyr­ir­spurn til skrif­legs svars væri í vinnslu í ráðu­neyti hans sem fjall­aði um sér­eign­ar­sparnað og úttöku á honum en heim­ild þess efnis hefði verið gerð sem eitt af COVID-úrræð­unum – og hefði ekki átt og ætti ekki að hafa áhrif á bætur.

„Það hefur ekki tek­ist sem skyldi vegna þess að það var ekki skráð rétt á skatt­fram­tal hjá öllum fyrir fram frá Skatt­inum, byggt á upp­lýs­ingum frá líf­eyr­is­sjóðum og vörslu­að­ilum og er það mjög miður. En Trygg­inga­stofnun er búin að gera það sem í hennar valdi stendur og mun halda áfram að ýta á að þetta verði leið­rétt. En Skatt­ur­inn þarf ekki síður að skoða þessi mál,“ sagði ráð­herr­ann.

Ætlar ráðherrann að berjast fyrir þetta fólk?

Guð­mundur Ingi þakk­aði ráð­herra fyrir svörin. „Ég er ekki lög­lærður maður en hann sagði: „Með lögum er bara hægt að borga fjögur ár aftur í tím­ann.“ Með lögum. En lög voru brotin. Lög voru brotin 13 ár aftur í tím­ann. Má það? Ég bara spyr. Ef ein­hver úti í bæ brýtur af sér og hann segir: „Það eru bara fjögur ár sem má taka, skatt­pen­ingar eða eitt­hvað, fjögur ár aftur í tím­ann.“ Haldið þið að hann kom­ist upp með það? Hann verður að skila öllum ráns­fengnum. Rík­is­sjóður á að skila öllum ráns­fengnum,“ sagði þing­mað­ur­inn.

Hann benti enn fremur að þetta væri verst setta fólkið á land­inu sem ætti varla fyrir mat, með lang­lægstu tekjur sem hægt væri að hugsa sér. „Það er tekið af því í 13 ár. Ég get ekki séð að rík­is­stjórnin geti varið sig á fjög­urra ára reglu vegna þess að ef brotið er í 13 ár þá á að borga 13 ár. Annað getur ekki stað­ist.“

Spurði hann því hvort ráð­herr­ann ætl­aði að sjá til þess og berj­ast fyrir því að þetta fólk fengi rétt sinn.

Ætlar að kanna málið

Ráð­herr­ann svar­aði í annað sinn og sagði að hann hefði ekki þær upp­lýs­ingar sem þing­maður spurði hann um á tak­teinum og vissi ekki hvort þær hefðu verið teknar saman.

„En ég skal kanna þetta mál og þetta gæti kannski líka verið ágæt­is­efni í fyr­ir­spurn til skrif­legs svars. En ég held að það sé mjög mik­il­vægt að þetta skref hafi verið tekið, þó svo að það sé bara eitt af mörgum sem við þurfum að horfa til í mál­efnum eldra fólks, og von­andi skilar það auk­inni atvinnu­þátt­töku eldra fólks, sem ég tel að skipti máli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár