„Hlutverk hins opinbera er að tryggja öllum húsnæðisöryggi“

Formaður BSRB segir að margt sé til bóta í til­lög­unum starfs­hóps um aðgerðir og umbætur á hús­næð­is­mark­aði – og gefi ástæðu til hóf­legrar bjart­sýni um betri tíma.

Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB
Sonja Ýr Þor­bergs­dóttir for­maður BSRB Mynd: Bára Huld Beck

„Öruggt og gott hús­næði eru sjálf­sögð mann­rétt­indi og grund­vall­ar­at­riði í vel­ferð­ar­sam­fé­lagi. Íslenskur hús­næð­is­mark­aður hefur und­an­farin ár ein­kennst af óstöð­ug­leika; hús­næð­is­verð hefur hækkað upp úr öllu valdi og fjöldi fólks býr við íþyngj­andi hús­næð­is­kostnað. Hækkandi verð­bólga bætir nú gráu ofan á svart, enda fer hús­næð­is­kostn­aður bæði leigj­enda og eig­enda nú ört hækk­andi.“

Þetta skrifar Sonja Ýr Þor­bergs­dóttir for­maður BSRB í stöðu­upp­færslu á Facebook í kjöl­far útgáfu skýrslu sem starfs­hópur um aðgerðir og umbætur á hús­næð­is­mark­aði kynnti á opnum kynn­ing­ar­fundi fyrr í dag. Kjarninn fjall­aði um skýrsl­una en í henni segir meðal ann­ars að taka þurfi opin­beran hús­næð­is­stuðn­ing til heild­stæðrar end­ur­skoð­unar og tryggja að hann nýt­ist fyrst og fremst þeim sem á þurfa að halda.

Sonja Ýr telur að hlut­verk hins opin­bera sé að tryggja öllum hús­næð­is­ör­yggi með fram­boði af hús­næði á við­ráð­an­legu verði, hús­næð­is­stuðn­ingi og efna­hags­að­gerðum sem draga úr óeðli­legri hækkun hús­næð­is­verðs.

Æskilegt viðmið að húsnæðiskostnaður sé ekki umfram 25% af ráðstöfunartekjum

Sonja Ýr segir í stöðu­upp­færslu sinni að margt sé til bóta í til­lög­unum og gefi ástæðu til hóf­legrar bjart­sýni um betri tíma.

[links]Í fyrsta lagi sé það afar jákvætt að ríki og sveit­ar­fé­lög ætli að taka ábyrgð á upp­bygg­ingu, með því að leggja fram eina sam­eig­in­lega hús­næð­is­á­ætlun fyrir allt landið.

Í öðru lagi fagnar hún því að sjá áherslu lagða á áfram­hald­andi upp­bygg­ingu almenna íbúða­kerf­is­ins. „Áform um ramma­samn­ing um bygg­ingu 4.000 íbúða árlega á lands­vísu á næstu fimm árum og 3.500 íbúðir árlega næstu fimm ár þar á eftir er stórt skref. Sér­stak­lega ef horft er til þess að félags­leg hús­næðisúr­ræði nemi að jafn­aði 5 pró­sent nýrra íbúða og hús­næði á við­ráð­an­legu verði um þriðj­ungur íbúða. Til að þetta mark­mið náist er nauð­syn­legt að end­ur­skoða fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar sem gerir ráð fyrir fækkun stofn­fram­laga úr 600 íbúðum árlega í 300.“

Í þriðja lagi sé mik­il­vægt að sett sé fram æski­legt við­mið um að hús­næð­is­kostn­aður sé ekki umfram 25 pró­sent af ráð­stöf­un­ar­tekjum fólks, og aldrei hærri en 40 pró­sent. Á þetta hafi þau í BSRB lagt sér­staka áherslu.

Í fjórða lagi að farið verði strax í þá vinnu að bæta rétt­ar­stöðu og hús­næð­is­ör­yggi leigj­enda og end­ur­skoðun á hús­næð­is­stuðn­ing hins opin­bera og svo fram­vegis. Þeirri vinnu eigi að vera lokið næsta haust.

„Allt eru þetta og hafa verið áherslur verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar til langs tíma,“ skrifar hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár