„Hæstvirtur forsætisráðherra er vel Morfís-æfð“

For­sæt­is­ráð­herra og þing­maður Pírata ræddu bóta­skerð­ingu örorku­líf­eyr­is­þega, traust á stjórn­málum og mál fólks á flótta á þingi í dag. Þing­mað­ur­inn sagði ráð­herr­ann vel Morfís-æfða en for­sæt­is­ráð­herr­ann sak­aði þing­mann­inn um mælsku­brögð og fabúler­ingar.

Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata.
Halldóra Mogensen, þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Halldóra Mogensen þing­maður Pírata og Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og for­maður VG tók­ust á um hin ýmsu mál í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag.

Þing­mað­ur­inn hóf mál sitt á því að rifja upp umræður um stefnu­ræðu for­sæt­is­ráð­herra í sept­em­ber árið 2017, örfáum mán­uðum áður en hún tók við emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra. Þar sagði Katrín um rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar að stjórn­völd ættu ekki að biðja fátækt fólk á Íslandi um að bíða eftir rétt­læti.

Halldóra benti á að þann 20. júní 2018 hefði umboðs­maður Alþingis skilað áliti þar sem hann lýsti því hvernig örorku­líf­eyr­is­þegar sem hafa verið búsettir í öðru landi innan EES hefðu þurft að lifa við ólög­legar skerð­ingar í ára­tug og jafn­vel lengur. „Félags­mála­ráðu­neytið stað­festi þennan úrskurð og lof­aði leið­rétt­ingu. Í dag, rúmum þremur árum síðar, bíða hund­ruð öryrkja enn eftir rétt­læt­inu. Meira en helm­ingur þeirra sem urðu fyrir ólög­legum skerð­ingum bíða enn eftir leið­rétt­ing­unni sem þeim var lofað. 96 þeirra dóu á meðan þeir biðu eftir rétt­læt­inu,“ sagði hún.

[links]Hélt hún upp­rifj­un­inni áfram og benti á að aðeins örfáum mán­uðum áður en for­sæt­is­ráð­herra tók við stjórn­ar­taumum núver­andi rík­is­stjórnar hefði hún sagt að stjórn­mála­menn mættu aldrei vísa í ríkj­andi kerfi til að rök­styðja bið eftir rétt­læti. Stjórn­mála­menn þyrftu að vera reiðu­búnir að beita sér stöðugt fyrir rétt­læt­inu og breyta kerf­inu ef það þyrfti til. Annars væri hættan sú að traust fólks á hinu lýð­ræð­is­lega sam­fé­lagi dvín­aði og þá ábyrgð þyrftu allir að axla.

„Nú er þetta fólk enn þá að bíða. Það er því ekki að sjá að hæst­virtur ráð­herra hafi beitt sér nægi­lega vel fyrir rétt­læt­inu,“ sagði Halldóra og spurði Katrínu hvort það væri vegna þess að ráð­herr­ann hefði ekki viljað beita sér eða hefði hún bara ekki getað beitt sér með hend­urnar bundnar í rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokknum þar sem Bjarni Bene­dikts­son héldi um pyngj­una.

Dregið úr skerðingum hér á landi

Katrín svar­aði og sagði að varð­andi búsetu­skerð­ingar sem dæmdar voru ólög­mætar þá gæti hún því miður ekki svarað nákvæm­lega hvenær þeim leið­rétt­ingum myndi ljúka. Það væri á hendi Trygg­inga­stofn­unar og Ásmundar Einars Daða­sonar félags- og barna­mála­ráð­herra.

„Hæst­virtur félags­mála­ráð­herra fer með þennan mála­flokk og ég vænti þess að að því sé unnið. Þetta snýst ekki um vilja­leysi stjórn­valda til að leið­rétta þessar búsetu­skerð­ingar heldur að þær verði gerðar upp með rétt­mætum hætti sam­kvæmt því sem félags­mála­ráð­herra hefur farið yfir ítrekað hér í þing­sal,“ sagði hún.

Katrín sagði að Halldóra gæfi í skyn í for­sendu spurn­ingar hennar að ekk­ert hefði verið gert í mál­efnum öryrkja á kjör­tíma­bil­inu.

„Það er auð­vitað rangt hjá hátt­virtum þing­manni. Hér hefur verið dregið úr skerð­ingum vegna atvinnu­tekna, sem hefur verið eitt stærsta hags­muna­mál og bar­áttu­mál Öryrkja­banda­lags­ins. Það var gert núna en við þeim hafði ekki verið hreyft síðan þær voru settar á fyrir 10 til 12 árum. Úr þeim var dregið. Á sama tíma var sömu­leiðis ráð­ist í þá aðgerð að draga úr skerð­ingum milli bóta­flokka. Markmið þeirrar leið­rétt­ingar og breyt­ingar var að auka tekjur tekju­lægsta hóps­ins innan hóps öryrkja. Enn þá bíður að ljúka við heild­ar­end­ur­skoðun á kerf­inu sem ekki var gert 2016, illu heilli að mínu viti, enda má sjá þegar sagan er skoðuð og tekjur ólíkra hópa skoð­aðar, til að mynda aldr­aðra og öryrkja, að þar standa öryrkjar höllum fæti til að mynda gagn­vart öldruðum. Þannig er nú staða máls­ins. Það er mjög brýnt að ljúka þess­ari heild­ar­end­ur­skoðun. Ég von­ast til þess að það verði gert snemma á næsta kjör­tíma­bili.

En hér er ekki hægt að tala eins og ekki hafi verið komið til móts við mik­il­væg bar­áttu­mál öryrkja sem snú­ast einmitt um að draga úr skerð­ingum og gera þetta kerfi gagn­særra og rétt­lát­ara,“ sagði hún.

Spurði hvernig á þjóðin ætti að geta trúað orði sem ráðherra segir

Halldóra kom aftur í pontu og sagði að ráð­herra væri „vel Morfís-æfð og mjög sniðug í að svara ekki spurn­ingum sem hún er spurð“.

„Ég var ekk­ert að segja að það væri ekki búið að gera neitt fyrir öryrkja. Ég var bara að segja að það væri hópur af öryrkjum sem biði eftir leið­rétt­ingu og biði eftir rétt­læt­inu. Í þess­ari frægu ræðu árið 2017, þegar for­sæt­is­ráð­herra sagði að stjórn­völd ættu ekki að biðja fátækt fólk á Íslandi um að bíða eftir rétt­læti, sagði hún að það sama ætti við um fólk á flótta sem hingað leitar. Þetta er sagt réttum tveimur mán­uðum áður en hún fer í rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokknum, með hátt­virtum þing­manni Sigríði Á. Andersen í dóms­mála­ráðu­neyt­inu. Það er því aug­ljóst að það hefur ekki verið hátt á for­gangs­lista hæst­virts ráð­herra að beita sér fyrir rétt­læt­inu í málum fólks á flótta,“ sagði Halldóra.

Spurði hún Katrínu, sem alla­vega í orði á tylli­dögum segð­ist vera annt um að efla traust fólks á hinu lýð­ræð­is­lega sam­fé­lagi, hver ábyrgð ráð­herr­ans væri þegar kemur að því að hrein­lega standa við orð sín. „Hvernig á þjóðin í ljósi sög­unnar að geta trúað einu ein­asta orði sem hæst­virtur ráð­herra segir nú í aðdrag­anda kosn­inga?“ spurði hún.

Auðvitað „ekkert annað en fabúleringar“

Katrín brást við orðum Halldóru og sagð­ist ætla að sleppa því að gera að umtals­efni mælsku­brögð þing­manns­ins „þó að hún kjósi að koma hér upp með ein­hverjar slíkar fabúler­ingar sem eru auð­vitað ekk­ert annað en fabúler­ingar“.

„Stað­reyndin er sú, eins og ég fór yfir áðan, að komið hefur verið til móts við tekju­lægstu hópana í þessu sam­fé­lagi allt þetta kjör­tíma­bil með því að lækka skatta á tekju­lægstu hópana, með því að hækka barna­bætur á tekju­lægstu hópana, með því að ráð­ast í sér­tækar úrbætur bæði hvað varðar aldr­aða og öryrkja innan almanna­trygg­inga­kerf­is­ins. Það eru stað­reyndir sem hátt­virtur þing­maður fær ekki hrakið og leggst því í mælsku­brögð,“ sagði hún.

Hvað varðar fólk á flótta sagði hún að máls­með­ferð­ar­tími hér á landi hefði verið styttur aftur á þessu kjör­tíma­bili. „Tekið hefur verið á móti fleirum á þessu kjör­tíma­bili en kjör­tíma­bil­inu á undan. Hér er tekið á móti hlut­falls­lega fleirum en ann­ars staðar á Norð­ur­löndum. Það er það sem hefur í raun og veru gerst, hæst­virtur for­seti, óháð öllum mælsku­brögðum,“ sagði hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár