„Ekki nóg að vera með fögur orð“

Formaður Sam­fylk­ing­ar­innar spurði mennta- og barna­mála­ráð­herra hvað rík­is­stjórnin ætl­aði að gera vegna þess „bráða vanda sem er að skap­ast vegna hárrar verð­bólgu og hækk­andi vaxta“. Ráð­herr­ann sagði m.a. að stjórn­völd þyrftu að grípa til aðgerða.

Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar.
Logi Ein­ars­son for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Ásmundur Einar Daðason mennta- og barna­mála­ráð­herra sagði í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í morgun að það skipti gríð­ar­lega miklu máli að stíga inn gagn­vart börnum og barna­fjöl­skyldum vegna þess ástands sem komið er upp vegna auk­innar verð­bólgu og hærri vaxta. „Það skiptir líka máli að koma inn í efna­hags­málin með aðgerðir til að létta undir með tekju­lágum heim­ilum.“

Logi Ein­ars­son for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar spurði ráð­herr­ann meðal ann­ars hvað rík­is­stjórnin þyrfti að gera til þess að verja fólk og börn sem þurfa að lifa efn­is­legan skort vegna efna­hags­á­stands í land­inu.

Þing­mað­ur­inn byrj­aði á því að vitna í nýleg könnu Vörðu, rann­sókna­stofn­unar vinnu­mark­að­ar­ins, en hann sagði könn­un­ina veita inn­sýn í skugga­legan veru­leika margs fólks sem hefur þurft að glíma við þungar byrðar í heims­far­aldr­inum.

„Nið­ur­stöð­urnar gefa vís­bend­ingar um að stórir hópar hafi það slæmt, bæði fjár­hags­lega og and­lega, og miklu verr en fyrir einu ári síðan. Ein­stæðir for­eldrar, lág­tekju­hópar, inn­flytj­endur og ungt barna­fólk stendur verr að vígi en áður. Nið­ur­stöð­urnar gefa ekki bara mynd af stöðu full­orð­ins fólks heldur segja líka sögu af fjölda barna sem búa ekki við nægi­lega góð lífs­skil­yrði. Þúsundir barna líða efn­is­legan skort í okkar ríka landi, fá ekki nógu nær­ing­ar­ríkan mat, ekki nauð­syn­legan fatnað eða aðgengi að tóm­stundum.

Ofan í allt þetta mælist verð­bólga nú óvenju­lega há og Seðla­banki Íslands hefur gripið til stýri­vaxta­hækk­ana um tvö pró­sentu­stig á skömmum tíma. Það er ljóst að þessi þróun mun koma miklu verr við við­kvæma hópa og það er hætt við að hækk­andi afborg­anir hús­næð­is­lána, hækk­andi leigu­verð, dýr­ari mat­ar­k­arfa, geti sligað mörg heim­ili og fleiri börn þurfi að lifa efn­is­legan skort,“ sagði hann.

Logi spurði ráð­herra hvaða aðgerðir hann sæi fyrir sér að rík­is­stjórnin þyrfti að grípa til til þess að verja stöðu þessa fólks og barna.

„Verður rík­is­stjórnin ein­fald­lega ekki að sker­ast strax í leik­inn með aðgerðum í þágu hópa í erf­iðri stöðu og líta þá til þings­á­lykt­un­ar­til­lagna sem Sam­fylk­ingin og aðrir stjórn­ar­and­stöðu­flokkar lögðu hér fram í gær eða fyrra­dag?“ spurði hann.

Kynnti í ríkisstjórn þá fyrirætlan að fara í sérstakan endurreisnarpakka gagnvart börnum og ungu fólki

Ásmundur Einar þakk­aði þing­manni fyrir fyr­ir­spurn­ina. „Á margan hátt tek ég undir með hátt­virtum þing­manni um stöðu barna og barna­fjöl­skyldna og þar þurfum við ávallt að gera betur. Það er engu að síður svo að í gegnum far­ald­ur­inn höfum við gert tals­vert mikið þegar kemur að mál­efnum barna og barna­fjöl­skyldna. Það hefur verið horft til þess í félags­legum aðgerðum, það hefur einnig verið horft til þess í gegnum atvinnu­leys­is­trygg­inga­kerfið og í gegnum félags­mála­ráðu­neytið með sér­stökum greiðslum til barna­fjöl­skyldna.

Í fyrsta skipti hefur ríkið stigið inn með sér­staka tóm­stunda­styrki gagn­vart börnum á tekju­lágum heim­ilum sem var úrræði sem var tíma­bundið sett á í heims­far­aldr­inum og svo mætti áfram telja. Þegar þessum far­aldri slotar og við sjáum þau efna­hags­á­hrif sem fylgja í fram­hald­inu, þá er alveg ljóst að það þurfa að fylgja áfram­hald­andi aðgerðir,“ sagði hann.

Ráð­herr­ann sagð­ist meðal ann­ars hafa kynnt í rík­is­stjórn síð­asta föstu­dag þá fyr­ir­ætlan mennta- og barna­mála­ráðu­neytis að fara í sér­stakan end­ur­reisn­ar­pakka gagn­vart börnum og ungu fólki þegar heims­far­aldr­inum slotar.

„Þær end­ur­reisn­ar­að­gerðir munu þurfa að vera á félags­legum grunni en líka á mennta­legum grunni því það er alveg ljóst að þessi far­aldur hefur haft áhrif og ég tek þar undir með hv. þing­manni. Við þurfum að halda utan um okkar við­kvæm­ustu borg­ara í ákveð­inn tíma eftir að far­aldr­inum slotar. Ég hyggst eiga gott sam­starf við alla helstu hags­muna­að­ila við upp­bygg­ingu á slíkum end­ur­reisn­ar­pakka. Það voru mjög góðar umræður um þetta í rík­is­stjórn og ég veit að önnur ráðu­neyti er að horfa á málin með sam­bæri­legum hætti,“ sagði hann.

Ekki nóg að vera með „falleg frumvörp sem ekkert fjármagn fylgir“

Logi kom í fram­hald­inu í annað sinn í pontu og sagði að hann væri ekki að spyrja ráð­herra hvaða vegi hann hefði keyrt í gegnum tíð­ina. Hann væri að spyrja hvert hann ætl­aði að halda.

„Það er ekki nóg að vera með fögur orð eða leggja jafn­vel fram fal­leg frum­vörp sem ekk­ert fjár­magn fylgir. Það nægir að nefna frí­stunda­styrk­ina og annað sem hefur bara ekki dugað. Ég er að spyrja út af þeim bráða vanda sem er að skap­ast vegna hárrar verð­bólgu og hækk­andi vaxta sem mun bitna sér­stak­lega illa á ungum fjöl­skyldum og barna­fólki. Hvað hyggst rík­is­stjórnin gera? Hvað telur hann að rík­is­stjórnin eigi að gera?“ spurði þing­mað­ur­inn.

Stjórnvöld þurfa að grípa til aðgerða

Ásmundur Einar svar­aði á ný og sagði að ástæða þess að hann taldi mik­il­vægt að ræða þær aðgerðir sem hefur verið ráð­ist í væri sú að Logi hefði látið að því liggja að ekk­ert hefði verið gert og ekk­ert hefði verið fjár­magnað.

„Hann gerði það aftur nú í seinni fyr­ir­spurn og sagði að hér hefðu verið lögð fram fögur frum­vörp sem ekki hefðu verið fjár­mögnuð. Það er ein­fald­lega rangt,“ sagði hann. Logi greip fram í úr þingsalnum og bað ráð­herra að svara spurn­ing­unni.

„Virðu­legur for­seti, það er mjög erfitt að tala hér þegar þing­mað­ur­inn getur ekki verið rólegur í þingsalnum á meðan,“ sagði Ásmundur Einar.

Hann hélt áfram og sagði að það skipti gríð­ar­lega miklu máli að stíga inn gagn­vart börnum og barna­fjöl­skyldum varð­andi þá þætti sem hann nefndi í fyrri ræðu sinni og ætl­uðu stjórn­völd að halda þeim aðgerðum áfram.

„Það skiptir líka máli að koma inn í efna­hags­málin með aðgerðir til að létta undir með tekju­lágum heim­ilum. Ég tek hjart­an­lega undir með við­skipta­ráð­herra sem ræddi það í fjöl­miðlum í morgun að við ættum að grípa til félags­legra aðgerða. Þar eigum við að horfa til allra mögu­legra aðgerða sem hægt er að grípa til og skoða fjár­mögnun með það í huga að fjár­mála­kerfið grípi þar inn í.“

Tók hann undir með Loga og sagði að stjórn­völd þyrftu að fara í aðgerðir. „Við þurfum að forma þær en þær þurfa að vera á víð­tækum grunni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár