96 létust áður en þeir fengu leiðréttingu

Trygg­inga­stofnun hefur und­an­farin ár end­ur­skoðað mál örorku­líf­eyr­is­þega sem orðið hafa fyrir skerð­ingu á rétti sínum til örorku­líf­eyris og búið í öðru landi innan Evrópska efna­hags­svæð­is­ins. Mál 1.397 ein­stak­linga eru eða hafa verið til skoð­unar.

Alls höfðu 637 ein­stak­lingar fengið leið­rétt­ingu búsetu­hlut­falls hjá Trygg­inga­stofnun (TR) þann 7. maí síð­ast­lið­inn og 536 ein­stak­lingar til við­bótar hafa fengið bréf tengt búsetu­leið­rétt­ingu. Vinnsla þeirra mála er hafin en nið­ur­staða liggur ekki fyrir.

Þetta kemur fram í svari félags- og barna­mála­ráð­herra, Ásmundar Einars Daða­sonar, við fyr­ir­spurn frá Halldóru Mogensen, þing­manni Pírata, um leið­rétt­ingu búsetu­hlut­falls örorku­líf­eyr­is­þega.

Trygg­inga­stofnun þurfti að end­ur­skoða og leið­rétta örorku­líf­eyri í kjöl­far álits umboðs­manns Alþingis vegna leið­rétt­ingar búsetu­hlut­falls ein­stak­linga sem búsettir hafa verið erlendis. End­ur­skoðun búsetu­hlut­falls náði til 1. júní 2014 hjá örorku­líf­eyr­is­þegum sem hafa verið búsettir í öðru EES/EFTA landi.

Leiðrétting ekki hafin hjá 224 einstaklingum

Í svari ráð­herra kemur jafn­framt fram að ekki sé hafin leið­rétt­ing hjá 224 ein­stak­lingum. „Þar af eru 96 látnir en mál 128 ein­stak­linga sem eru búsettir erlendis en eiga ein­hver rétt­indi hjá TR eru í skoðun þar sem um er að ræða vafa­mál og því ekki unnt að hefja leið­rétt­ingu búsetu­hlut­falls,“ segir í svar­inu.

Enn fremur segir að frá 20. júní 2018 hafi 3.404 ein­stak­lingar fengið sam­þykkt 75 pró­sent örorku­mat. Þar af hafi 401 ein­stak­lingur ekki öðl­ast fullan rétt til greiðslna á grund­velli búsetu hér á landi en 40 þeirra fengið greitt miðað við hlut­falls­legan fram­reikn­ing. 213 ein­stak­lingar muni fá tíma­bundið greiddan örorku­líf­eyri miðað við hlut­falls­legan fram­reikn­ing á meðan leyst sé úr því við hvaða búsetu­hlut­fall skuli miða.

Skerðingin ekki í samræmi við lög

Fyrir rúmum tveimur árum síðan hóf TR vinnu við end­ur­skoð­un­ina en stofn­unum gerði ráð fyrir að leið­rétt­ing­unni yrði lokið á árinu 2021.

Forsaga máls­ins er sú að þús­undir ein­stak­lingar sem bjuggu erlendis, en innan EES-svæð­is­ins, höfðu orðið fyrir skerð­ingu á rétti sínum til örorku­líf­eyris vegna túlk­unar Trygg­inga­stofn­unar á ákveðnum ákvæðum í lögum um almanna­trygg­ingar.

Umboðs­maður Alþingis komst hins vegar að þeirri nið­ur­stöðu sum­arið 2018 að slíkt væri ekki í sam­ræmi við lög. Í á­lit­inu segir að að lækkun greiðslu­hlut­falls líf­eyris vegna búsetu erlendis hafi ekki verið í sam­ræmi við lög. Vel­ferð­ar­ráðu­neyt­ið lýsti í kjöl­farið þeirri afstöðu sinni að það væri sam­mála nið­ur­stöðu umboðs­manns Alþingis og óskaði eftir því að Trygg­inga­stofnun end­ur­reikn­aði greiðslur til hlut­að­eig­andi ein­stak­linga og leið­rétti þær sem van­greiddar hafi ver­ið, ásamt vöxt­u­m.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár