Húsnæðisstuðningur skuli fyrst og fremst nýtast þeim sem á þurfa að halda

Ljóst er að staða leigj­enda út frá hús­næð­is­ör­yggi og byrði hús­næð­is­kostn­aðar er lak­ari en þeirra sem eiga eigin íbúð. Aðgerða er þörf sem miða m.a. að því að lækka byrði hús­næð­is­kostn­aðar hjá efna­minni leigj­endum, sam­kvæmt nýrri skýrslu.

Taka þarf opin­beran hús­næð­is­stuðn­ing til heild­stæðrar end­ur­skoð­unar og tryggja að hann nýt­ist fyrst og fremst þeim sem á þurfa að halda. Hús­næð­is­stuðn­ing­ur­inn og stuðn­ings­kerfin þurfa að vera dýnamísk og þró­ast í takt við aðstæður á hús­næð­is­mark­aði.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu sem starfs­hópur um aðgerðir og umbætur á hús­næð­is­mark­aði kynnti á opnum kynn­ing­ar­fundi í dag í höf­uð­stöðvum Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar í Borg­ar­túni.

Starfs­hóp­ur­inn var skip­aður af Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra í febr­úar síð­ast­liðnum en hlut­verk hans var að fjalla um leiðir til að bæta stöðu á hús­næð­is­mark­aði. Hópurinn leggur fram 28 til­lögum í sjö flokkum.

Í skýrsl­unni er vísað til álits Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins frá 11. maí síð­ast­liðnum þar sem meðal ann­ars var bent á nauð­syn þess að end­ur­hanna opin­beran hús­næð­is­stuðn­ing og beina honum með mark­viss­ari hætti að leigj­endum og í fjár­fest­ingu í félags­legu hús­næði. Með því verði stuðlað að hag­kvæmara leigu­verði og lægri byrði hús­næð­is­kostn­aðar. Áhætta væri fólgin í því að hús­næð­is­verð hafi hækkað umfram ákvarð­andi þætti og skörp leið­rétt­ing hús­næð­is­verðs gæti veikt efna­hag heim­ila og þar með fjár­mála­geirans.

Hækkun hús­næð­is­verðs hefði jafn­framt haft nei­kvæð áhrif á getu fólks til að kaupa eigið hús­næði, sér­stak­lega ungt fólk og tekju­lága. Því væri mik­il­vægt að taka á áhættu­þáttum tengdum hús­næð­is­mark­aði með skil­virkum þjóð­hags­var­úð­ar­tækjum og auknu fram­boð hús­næðis á við­ráð­an­legu verði.

Nauðsynlegt að bregðast við hækkandi húsnæðisverði

Fram kemur í skýrsl­unni að hjá starfs­hópnum hafi verið mikil sam­staða um mik­il­vægi þess að tryggja aukið fram­boð íbúða til að stuðla að stöð­ug­leika á hús­næð­is­mark­aði.

„Nánast for­dæma­laus hækkun hús­næð­is­verðs und­an­farið ár umfram tengda þætti er að mati hóps­ins til þess fallin að skapa áhættu og óstöð­ug­leika í hús­næð­is­málum og nauð­syn­legt er að bregð­ast við til að verja efna­hag heim­il­anna og hús­næð­is­ör­yggi lands­manna, einkum þeirra tekju­lægri.

Það tekur hins vegar tölu­verðan tíma að auka fram­boð íbúða og getur langur tími liðið frá því ákvörðun er tekin um bygg­ingu þar til íbúð er tekin í notkun, jafn­vel mörg ár. Að mati hóps­ins verður því að leggja mikla áherslu á lang­tíma­á­ætl­ana­gerð í hús­næð­is­málum þar sem árlega er greind þörf fyrir upp­bygg­ingu og gerð áætlun sem miðar að því að byggja í takt við þörf,“ segir í skýrsl­unni.

Fylgja þurfi því eftir með reglu­legum hætti hvernig áætl­unin stenst með því að fylgj­ast með íbúðum í bygg­ingu. Allt sé þetta hægt með þeim stjórn­tækjum sem þróuð hafa verið á und­an­förnum árum, staf­rænum hús­næð­is­á­ætl­unum sveit­ar­fé­laga, íbúða­þarfa­grein­ingu, mann­virkja­skrá og taln­ingu SI og HMS á íbúðum í bygg­ingu. Enn þurfi þó að skerpa á sam­eig­in­legri sýn og stefnu sveit­ar­fé­laga og ríkis og er til­laga gerð um það af hálfu starfs­hóps­ins að þessir aðilar kom­ist að sam­komu­lagi um upp­bygg­ingu íbúða til sam­ræmis við þörf til næstu fimm til tíu ára.

Hugsa þarf ferla í skipulagsgerð og byggingarmálum sem einn heilstæðan feril

Að sama skapi þurfi reglu­verk og fram­kvæmd í skipu­lags- og bygg­ing­ar­málum að styðja við upp­bygg­ingu íbúða og tryggja öryggi og gæði mann­virkja­gerðar á sem skil­virkastan hátt. Hugsa þurfi ferla í skipu­lags­gerð og bygg­ing­ar­málum sem einn heil­stæðan feril og sam­þætta eins og kostur er.

End­ur­skoða þurfi lög­gjöf í skipu­lags­málum og hverfa frá for­skrift­ar­á­kvæðum í bygg­ing­ar­reglu­gerð og inn­leiða þess í stað mark­miðs­á­kvæði. Reglu­verkið þurfi að styðja við nýsköpun í bygg­ing­ar­iðn­aði, staf­ræna ferla og vist­væna mann­virkja­gerð þannig að Ísland geti náð mark­miðum sínum í loft­lags­málum. Rann­sóknir og þróun sé mik­il­vægur þáttur sem þarf að stór­efla með til­komu Asks mann­virkja­rann­sókn­ar­sjóðs.

Þörf á aðgerðum sem miða að því að auka húsnæðisöryggi leigjenda

Samkvæmt skýrslu­höf­undum er hús­næð­is­ör­yggi og jafnt aðgengi allra að hús­næði á við­ráð­an­legu verði auk þess for­gangs­mál.

„Ljóst er að staða leigj­enda út frá hús­næð­is­ör­yggi og byrði hús­næð­is­kostn­aðar er lak­ari en þeirra sem eiga eigin íbúð. Aðgerða er þörf sem miða að því að auka hús­næð­is­ör­yggi leigj­enda og lækka byrði hús­næð­is­kostn­aðar hjá efna­minni leigj­endum,“ segir í skýrsl­unni.

Að mati starfs­hóps­ins er almenna íbúða­kerfið þar lyk­il­þáttur og leggur hóp­ur­inn til að áhersla verði lögð á áfram­hald­andi upp­bygg­ingu kerf­is­ins og aukna hlut­deild þess á leigu­mark­aði á kom­andi árum. Þar að auki verði reglu­verk á leigu­mark­aði tekið til end­ur­skoð­unar með það í huga að jafna stöðu samn­ings­að­ila og gera leigu­hús­næði að raun­veru­legum og öruggum val­kosti um búsetu. Einnig leggur starfs­hóp­ur­inn áherslu á mik­il­vægi leigu­mark­aðar til þess því að tryggja hreyf­an­leika vinnu­afls og virkni vinnu­mark­aðar á ein­stökum svæðum.

Húsnæðisstuðningi skal fyrst og fremst beina að tekju- og eignalágum einstaklingum og fjölskyldum

Nauðsyn og virkni hús­næð­is­stuðn­ings var eitt af meg­in­á­herslu­at­riðum starfs­hóps­ins sem var sam­mála um að hús­næð­is­stuðn­ingi skuli fyrst og fremst beina að tekju- og eigna­lágum ein­stak­lingum og fjöl­skyldum.

„Lykil­upp­lýs­ingar um hús­næð­is­ör­yggi og hús­næð­is­stuðn­ing þurfa að liggja fyrir sem næst raun­tíma þannig að hægt sé að bregð­ast við tím­an­lega þegar þess er þörf. Stuðn­ings­kerfin þurfa hvort í senn að vera stöðug en jafn­framt dýnamísk og fylgja þróun á hús­næð­is­mark­aði á hverjum tíma. Núver­andi stuðn­ings­kerfi bera að vissu leyti merki um stöðnun og þarfn­ast end­ur­skoð­unar í heild sinni.“

Að lokum fjall­aði starfs­hóp­ur­inn um nauð­syn þess að sam­hliða upp­bygg­ingu íbúða komi til upp­bygg­ing sam­göngu­inn­viða og að greiðar og öruggar sam­göngur væru for­senda hag­kvæmrar búsetu. Í því sam­hengi telur hóp­ur­inn til­efni til að skoða enn betur áhrif sam­göngu­kostn­aðar á búsetu.

Hægt er að lesa skýrsl­una í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár