Fimmtíu milljónir í neyslurými sem opnar á næsta ári

Opnun neyslu­rýmis fyrir langt leidda vímu­efna­neyt­endur er fyr­ir­huguð í Reykja­vík á næsta ári.

Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir, heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Opnun neyslu­rýmis fyrir langt leidda vímu­efna­neyt­endur er fyr­ir­huguð í Reykja­vík á næsta ári. Í frum­varpi til fjár­laga eru 50 millj­ónir króna áætl­aðar til verk­efn­is­ins. Þetta kemur fram í frétt vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins.

[links]Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra mun leggja fram frum­varp til breyt­inga á lögum um ávana- og fíkni­efni eftir ára­mót til að tryggja verk­efn­inu full­nægj­andi laga­stoð.

Heil­brigð­is­ráð­herra hóf vinnu fyrr á þessu ári við und­ir­bún­ing að opnun neyslu­rýmis. Var það gert í sam­ræmi við til­lögur starfs­hóps um leiðir til að draga úr skað­legum afleið­ingum og marg­vís­legum hlið­ar­verk­unum vímu­efna­neyslu þar sem einnig er horft til þess að vernda not­endur þess­ara efna og standa vörð um félags­leg rétt­indi þeirra. Opnun neyslu­rýmis var ein af fleiri til­lögum starfs­hóps­ins sem lagði til að könnuð yrði þörf fyrir upp­setn­ingu slíkra rýma fyrir þá sem nota vímu­efni og sprautu­búnað.

Mark­miðið er að tryggja þessum ein­stak­lingum öruggan vett­vang, því eins og bent er á í skýrslu starfs­hóps­ins stunda þeir sem eiga við mestan vímu­efna­vanda að etja oft neyslu sína við hættu­legar og heilsu­spill­andi aðstæður sem stuðla að auknum skaða fyrir við­kom­andi, veik­indum og jafn­vel dauða.

Með opnun neyslu­rýmis verður þeim sem sprauta sig í æð tryggður aðgangur að hreinum sprautu­bún­aði, nála­skipti­þjón­ustu og gjald­frjálsri grunn­heil­brigð­is­þjón­ustu. Vel­ferð­ar­svið Reykja­vík­ur­borgar mun taka þátt í þessu verk­efni og Rauði kross­inn á Íslandi hefur fall­ist á að sinna þjón­ust­unni.

Vel­ferð­ar­ráðu­neytið mun fela Sjúkra­trygg­ingum Íslands umboð til samn­ings­gerða um opnun neyslu­rýmis í sam­ræmi við lög um sjúkra­trygg­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár