Opna neyslurými fyrir langt leidda fíkla

Mark­miðið er að koma betur til móts við veika fíkla, og draga úr ótíma­bærum dauðs­föllum vegna neyslu.

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra hefur sett af stað vinnu í vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu til að und­ir­búa opnun neyslu­rýma fyrir langt leidda vímu­efna­neyt­endur. Neyslu­rými sem þessi eru þekkt úrræði erlendis og byggj­ast á hug­mynda­fræði skaða­minnk­unar.

Frá þessu er greint í til­kynn­ingu frá heil­brigð­is­ráð­herra. „Alþingi sam­þykkti í maí árið 2014 ályktun um að stefna í vímu­efna­málum skyldi end­ur­skoðuð „á grund­velli lausn­a­mið­aðra og mann­úð­legra úrræða, á for­sendum heil­brigð­is­kerf­is­ins og félags­lega kerf­is­ins, til aðstoðar og verndar neyt­endum efn­anna og félags­legum rétt­indum þeirra, aðstand­endum þeirra og sam­fé­lag­inu í heild. Á grund­velli til­lögu Alþingis var unnin skýrsla um stefnu­mótun á þessum for­sendum þar sem meðal ann­ars var lagt til að rann­sökuð yrði þörf fyrir upp­setn­ingu neyslu­rýma fyrir fólk sem sprautar sig með vímu­efnum. Rökin fyrir sér­stökum neyslu­rýmum byggj­ast á því að þeir sem eiga við mestan vímu­efna­vanda að etja stunda neyslu sína oft við hættu­legar og heilsu­spill­andi aðstæður sem valda enn meiri skaða en ella og stuðla að veik­indum og jafn­vel dauða. Mark­miðið er fyrst og fremst að þeir not­endur fíkni­efna sem um ræðir geti neytt þeirra við eins mikið öryggi og kostur er við þessar aðstæður,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Svandís segir í til­kynn­ing­unni, að það sé óhjá­kvæmi­legt að horfast í augu við stað­reyndir varð­andi vanda þess hóps sem um ræðir og bregð­ast við með raun­hæfum aðgerðum. „Þetta snýst ekki um að sam­þykkja neysl­una, heldur að við­ur­kenna að þessir ein­stak­lingar þurfa aðstoð á for­sendum sem þeir geta nýtt sér. Þetta snýst um for­varnir og skaða­minnk­andi aðgerðir, líkt og Rauði kross­inn hefur sinnt í nokkrum mæli með starf­semi Frú Ragn­heiðar. Þar er fyrir hendi mik­il­væg þekk­ing á þessum málum og ég von­ast því eftir góðu sam­starfi við Rauða kross­inn varð­andi und­ir­bún­ing að opnun sér­stakra neyslu­rýma“ segir Svandís.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár