Tæplega 60 prósent fanga eiga við vímuefnavanda að glíma

Tæplega 60 pró­sent fanga sem sitja í íslenskum fang­elsum eiga við vímu­efna­vanda að glíma og rúm­lega 70 pró­sent þeirra eiga sögu um slíkan vanda. Af þeim föngum sem annað hvort eiga við vímu­efna­vanda að stríða eða eiga sögu um slíkan vanda skimast 81 pró­sent þeirra með athygl­is­brest eða ofvirkni. Þetta kemur fram í óbirtir rann­sókn sem Jón Friðrik Sig­urðs­son, Ingi Þór Eyj­ólfs­son, Ingunn S.U. Krist­i­an­sen, Jónas Haukur Ein­ars­son, Baldur Heiðar Sig­urðs­son, Halldóra Ólafs­dóttir, Susan Young og Gísli H. Guð­jóns­son hafa fram­kvæmt. Enn er verið að ljúka gagna­söfnun í rann­sókn­inni.

Nið­ur­stöð­urnar eru hins vegar birtar í svari Ólafar Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn Páls Vals Björns­sonar, þing­manns Bjartrar fram­tíðar, um afplánun í fang­elsi.

Biðtími eftir afplánun lengist


Í svar­inu kemur einnig fram að í fyrra liðu að með­al­tali 383 dagar frá því að dómur var kveð­inn upp í máli og þar til afplánun í fang­elsi hófst hjá þeim sem hlaut dóm­inn. Það er tölu­verð aukn­ing frá árunum áður. Árið 2012 liðu að með­al­tali 350 dagar frá því að dómur var kveð­inn upp og þar til afplánun í fang­elsi hófst og árið 2013 var með­al­talið 367 dagar.

Sömu sögu er að segja um bið hjá þeim sem dæmdir eru til að sinna sam­fé­lags­þjón­ustu. Á árinu 2012 leið að með­al­tali 521 dagur frá því að dómur var upp kveð­inn þar til sam­fé­lags­þjón­usta hófst. Árið 2013 var með­al­talið 537 dagar og árið 2014 575.

Páll Winkel fang­els­is­mála­stjóri sagði í þætt­inum Sjón­ar­horn á Hring­braut í lok apríl að rúm­lega 400 fangar væru á bið eftir að geta afplánað dóm sinn.

Beðið eftir Hólmsheiði


Rúm 50 ár eru síðan að ákveðið var fyrst að byggja nýtt örygg­is­fang­elsi á Höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Litla-Hraun hefur gegnt hlut­verki stærsta öryggifang­elsis lands­ins um ára­tuga­skeið en ætið hefur verið ljóst að hús­næðið hentar ekki full­kom­lega undir starf­sem­ina, enda var Litla-Hraun byggt sem spít­ali, og að það er löngu hætt að geta tekið við öllum þeim fjölda sem það þarf að geta tekið við.

Alls eru fimm fang­elsi á Íslandi. Fjögur þeirra eru lokuð: Litla-Hraun, Fang­elsið á Akureyri og Hegn­ing­ar­húsið við Skóla­vörðu­stíg.Auk þeirra eru opin fang­elsi að Sogni og Kvía­bryggju.

Kvenna­fang­els­inu í Kópavogi var nýverið lokað og til stendur að loka Hegn­ing­ar­hús­inu, sem var tekið í notkun fyrir um 140 árum síðan og er á unda­þágu frá heil­brigð­is­yf­ir­völdum vegna þess að það upp­fyllir ekki lág­marks­skil­yrði. Nýtt örygg­is­fang­elsi er nú í bygg­ingu á Hólms­heiði og á að opna haustið 2015. Fang­els­is­rýmum fjölgar þá um 30 tals­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár