Tæpur helmingur fanga hefur setið inni áður

Flestir þeirra sem sitja í íslenskum fang­elsum gera það vegna fíkni­efna­brota. Alls bíða 560 manns eftir því að kom­ast í afplánun og stór hluti fanga sem nú er í slíkri hefur afplánað dóma áður.

Alls voru 155 fangar að afplána refs­ingu í íslenskum fang­elsum 11. jan­úar síð­ast­lið­inn. Tæplega helm­ingur þeirra, eða 44 pró­sent, sem nú sitja í fang­elsi hafa áður gert það.

116 voru að afplána óskil­orðs­bundna refs­ingu, þrír vara­refs­ingar og 36 voru í gæslu­varð­haldi. Með­al­lengd þeirra dóma sem við­kom­andi voru að afplána var 3,4 ár.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í svari Fang­els­is­mála­stofn­unar við fyr­ir­spurn Kjarnans um stöðu mála í íslensku fang­els­is­kerfi í dag.

560 bíða eftir að komast í afplánun

Flestir þeirra sem afplána dóm og hlotið hafa óskil­orðs­bundna refs­ingu gera það fyrir fíkni­efna­brot, eða alls 28 pró­sent fanga. Alls afplána 16 pró­sent fanga dóma vegna auðg­un­ar­brota og sama hlut­fall vegna umferð­ar­laga­brota. Ellefu pró­sent fanga afplána dóma vegna mann­dráps eða til­raunar til mann­dráps, 13 pró­sent vegna ofbeld­is­brota og 14 pró­sent vegna kyn­ferð­is­brota.

Til við­bótar við þá sem þegar eru að afplána bíða 560 manns sem hlotið hafa dóma eftir því að geta hafið afplánun. Sá fjöldi hefur auk­ist umtals­vert frá árinu 2014, þegar fjöld­inn var 475. Í svari Fang­els­is­mála­stofn­unar kemur fram að tölu­verður fjöldi þessa hóps muni afplána með sam­fé­lags­þjón­ustu. Sá sem hefur beðið lengst eftir því að sitja af sér, eftir að dómur var felldur, hefur beðið í um það bil fimm ár.

Með­al­aldur þeirra fanga sem afplána nú er tæp­lega 35 ár. Alls hafa 44 pró­sent þeirra áður hlotið dóma sem höfðu í för með sér afplánun en í svari Fang­els­is­mála­stofn­unar er tekið fram að skoð­unin nái 30 ár aftur í tím­ann.

Lang­flestir sem sitja í íslenskum fang­elsum eru íslenskir rík­is­borg­arar. Alls eru 20 erlendir rík­is­borg­arar í afplánun á Íslandi auk þess sem 18 slíkir sitja í gæslu­varð­haldi.

Stór hluti átti við fíkniefnavanda að etja

Þann 22. júní 2015 svar­aði Ólöf Nordal, þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, fyr­ir­spurn á Alþingi um afplánun fanga í fang­elsi. Í svari hennar kom fram að tæp­lega 60 pró­sent þeirra sem sitja í íslenskum fang­elsum eigi við vímu­efna­vanda að etja. Þar sagði einnig að rúm­lega 70 pró­sent þeirra sem sitja í íslenskum fang­elsum ættu sér sögu um slíkan vanda. Svarið byggði á óbirtri rann­sókn sér­fræð­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár