Þingveturinn framundan: „Sterk pólitísk forysta nauðsyn í þriðja orkupakkanum“

Nýtt þing hefst þriðju­dag­inn 11. sept­em­ber. Kjarn­inn tók nokkra þing­menn úr mis­mun­andi flokkum tali um þing­vet­ur­inn framundan og áherslu­mál flokk­anna þetta árið. Í þetta skiptið var það Willum Þór Þórsson vara­þing­flokks­for­maður Fram­sóknar.

Nýtt þing hefst fljót­­­lega, nánar til­­­­­tekið þriðju­dag­inn 11. sept­­­em­ber. Rík­­­is­­­stjórnin mun leggja fram fjár­­­lög á fyrsta fundi, sem segja má að verði í raun fyrstu fjár­­­lög þess­­­arar rík­­­is­­­stjórnar þar sem vænt­an­­­lega má sjá stefn­u­­­mótun hennar þar sem fjár­­­lög síð­­­asta árs voru lögð fram sér­­­stak­­­lega seint vegna rík­­­is­­­stjórn­­­­­ar­slit­anna og kosn­­­inga.

[links]Kjarn­inn tók nokkra þing­­­menn úr mis­­­mun­andi flokkum tali um þing­vet­­­ur­inn framundan og áherslu­­­mál flokk­anna þetta árið. Í þetta skiptið var það Willum Þór Þórsson vara­for­maður þing­flokks Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Stefnan skýrist enn frekar

Eðli máls­ins sam­kvæmt byrjar þingið svo­lítið á fjár­lög­unum. Það verður stóra málið og í fyrstu umræðu munu þar flétt­ast inn önnur mál í tengslum við fjár­lögin. Við vitum meira að hverju við göngum núna þar sem við höfum verið að vinna með bæði rík­is­fjár­mála­stefn­una og rík­is­fjár­mála­á­ætl­un­ina og þessi fjár­lög hvíla á þessum skjölum. Stefna rík­is­stjórn­ar­innar mun koma bara sterkar og sterkar fram eftir því sem frá líður og skýrist enn frekar með þessum fjár­lögum,“ segir Willum.

Aðgerðir í fjölskyldumálum

Hann seg­ist reikna með að stjórn­ar­and­staðan komi að þeim málum sem fyr­ir­séð er að verði stór í umræð­unni og taki rými í vetur. „Það eru auð­vitað kjara­við­ræð­urnar og þær mögu­legu aðgerðir sem að stjórn­völd koma með inn í samn­ing­ana. Við höfum séð eitt­hvað nú þegar af þeim aðgerðum sem fyr­ir­hug­aðar eru og eru þá stað­festar í þessum fjár­lögum, eins og lækkun á trygg­ing­ar­gjaldi. Svo er spurn­ing hvort við munum stíga lengra og hraðar til jarðar í því, það auð­vitað vitum við ekki. En þetta verða til dæmis ein­hverjar aðgerðir í fjöl­skyldu­málum, til dæmis þegar kemur að barna­bótum, en þetta mun allt koma frekar í ljós.“

Munu verja kaupmáttinn

Aðspurður um hvort hann sjái fyrir sér harðan kjara­vetur framundan seg­ist Willum ætla að leyfa sér að vera bjart­sýnn. „Við erum bara sem þjóð búin að ná of miklum árangri og ná langt í að ná niður skuldum, lækka vaxta­byrði og nú erum við í færum til að setja inn í stóru kerfin okkar, heil­brigðis-, mennta­kerfið og sam­göng­urnar. Það hefur náðst hér verð­stöð­ug­leiki og þar af leið­andi kaup­mátt­ar­aukn­ing yfir lín­una síð­ustu miss­eri og það veru­leg. Spár og gagn­rýni í kringum rík­is­fjár­mála­á­ætlun, var að spár um mjúka lend­ingu myndu ekki halda - þær líta vel út þannig að ég held að þegar að aðilar vinnu­mark­að­ar­ins ganga að fullri alvöru að borð­inu þá muni þeir horfa til þess­ara þátta og verja kaup­mátt­inn.“

Taka á vanda sauðfjárbænda til lengri tíma

Áherslur Fram­sóknar í vetur verða marg­vís­legar segir Willum. „Við þurfum að taka utan um vanda sauð­fjár­bænda sem brugð­ist var við bara með skamm­tíma inn­leggi. Við höfum farið vel yfir það og viljum styðja við aðgerðir í þeim efnum. Það þarf að finna lausn til lengri tíma, skoða þessa virð­is­keðju og stöð­una og ég heyri að það er vilji til er vilji til þess og okkur er mjög umhugað um að vinna að því.“

Þá seg­ist Willum ánægður með að sam­göngu­á­ætl­unin muni koma fram á næstu vikum. „Við erum að setja veru­lega aukna fjár­muni í þennan mála­flokk,“ segir hann og lítur á hana sem svar við ákalli í þessum mála­flokki.

[adspot]Þá er Willum einnig ánægður með stöðu mennta­mál­anna. „Mér finnst Lilja standa sig vel hún er dug­leg að koma skila­boðum að um hvað þau eru að gera í ráðu­neyt­inu. Þar er það auð­vitað mennta­stefnan og þá fáum við heild­ræna sýn á mennta­málin. Síðan er líka von á úrlausnum á mál­efnum fjöl­miðl­anna á næstu dögum, sem mér finnst mik­il­vægt. Það hefur mikið verið talað um þennan vanda og búið að gefa út skýrslu og nú er komið að því að gera eitt­hvað.“

Orkumálin of hratt í farveg tilfinninga og ESB

Willum nefnir einnig þriðja orku­pakk­ann sem hann segir að rík­is­stjórnin muni þurfa að taka sterka stöðu í og það muni hvíla á öllum flokkum. Aðspurður um hvort Framsókn muni leggj­ast gegn pakk­anum segir hann svo ekki vera en það séu tvær hliðar á þessu máli.

„Hér er búið að inn­leiða fyrsta og annan pakk­ann og það er í raun og veru eðli­legt að sam­eig­in­lega EES nefndin kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að þriðji pakk­inn komi í kjöl­farið. Það er ekk­ert þar sem að breytir neinu hér á landi þangað til ef ein­hvern tím­ann yrði sett í sam­band með sæstreng til Bret­lands. Þangað til reynir ekk­ert á það og ég reikna með að, ef það myndi ein­hvern tím­ann reyna á það inn í fram­tíð­ina, þá yrði gengið frá öllum skil­málum og skil­yrðum varð­andi fram­sali á valdi. Við erum ekk­ert að fram­selja meira vald heldur en við höfum gert.“

Willum segir brýna þörf á umræðu um þetta mál, þennan þátt til­skip­un­ar­innar og orku­málin almennt af yfir­vegun. „Mér finnst málið fara of hratt í far­veg til­finn­inga og ESB. Við stjórn­mála­menn þurfum að fara yfir þetta af yfir­vegum og mér finnst afar mik­il­vægt að það sé sterk póli­tísk for­ysta af hálfu rík­is­stjórn­ar­innar þegar kemur að þessu. Við í Framsókn höfum mjög sterka ályktun þegar kemur að fram­sali valds og virðum hana og högum okkur út frá því.“

Grænu málin falli vel að Framsókn

Að end­ingu segir Willum afar jákvætt hversu aukið sé fram­lag til grænu mál­anna. „Til umhverfis og lofts­lags­mála og farið í raun­veru­legar aðgerðir til að við getum staðið við okkar skuld­bind­ingar sam­kvæmt Par­ís­ar­sátt­mál­anum og það eru verk­efni sem að falla mjög vel að hug­mynda­fræði okkar Fram­sókn­ar­manna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

framsóknarflokkur

Fréttirframsóknarflokkur

Sig­mundur Davíð metur stöðu sína góða

Þing­flokks­fundi Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem hófst klukkan 13 í dag, er lokið. Í sam­tali við mbl.is að honum loknum sagði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, að hann meti stöðu sína innan þing­flokks­ins og flokks­ins góða. „Fund­ur­inn var ekki til þess ætl­aður að kveða upp um for­ystu, flokks­þing gerir það,“ sagði Sig­mundur Davíð við mbl.is. Willum Þór Þórsson, þing­maður flokks­ins, sagði í sam­tali...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár