Þingveturinn framundan: „Árangur í efnahagsmálum forsenda alls góðs á öðrum sviðum“

Nýtt þing hefst þriðju­dag­inn 11. sept­em­ber. Kjarn­inn tók nokkra þing­menn úr mis­mun­andi flokkum tali um þing­vet­ur­inn framundan og áherslu­mál flokk­anna þetta árið. Í þetta skiptið var það Birgir Ármanns­son þing­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Nýtt þing hefst fljót­lega, nánar til­tekið þriðju­dag­inn 11. sept­em­ber. Rík­is­stjórnin mun leggja fram fjár­lög á fyrsta fundi, sem segja má að verði í raun fyrstu fjár­lög þess­arar rík­is­stjórnar þar sem vænt­an­lega má sjá stefnu­mótun hennar þar sem fjár­lög síð­asta árs voru lögð fram sér­stak­lega seint vegna rík­is­stjórn­ar­slit­anna og kosn­inga.

[links]Kjarn­inn tók nokkra þing­menn úr mis­mun­andi flokkum tali um þing­vet­ur­inn framundan og áherslu­mál flokk­anna þetta árið. Í þetta skiptið var það Birgir Ármanns­son þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Fjárlögin stóra verkefnið

„Til ára­móta er fjár­laga­frum­varpið stóra verk­efnið. Við sjáum fyrir okkur að það og frum­vörp sem því tengj­ast verði megin við­fangs­efnið á haust­dögum. Línurnar í þeim efnum hafa að nokkru leyti verið lagðar með fjár­mála­á­ætlun í vor og fjár­mála­stefnu síð­asta vetur þannig að það má segja að útlín­urnar liggja fyrir. En það bryetir auð­vitað ekki því að það eru fjár­lögin sem slík sem eru sam­þykkt fyrir ára­mót sem gilda og menn geta hnikað til ein­hverjum atriðum þó búið sé að leggja ákveðnar línur. Það eru fjár­lögin á end­anum sem ráða því hvaða fjár­veit­ingar renna til mála­flokka og hvernig tekna er aflað fyrir ríkið,“ segir Birgir.

Hann segir tekju­öfl­un­ar­frum­vörpin nú um nokk­urra ára skeið hafa þurft að koma fram sam­hliða fjár­laga­frum­varp­inu, þannig að báðar hlið­arnar, tekju- og gjalda, verða mikið til umræðu núna strax á fyrstu dögum þings­ins.

Lykilatriði í stefnumörkun

Birgir býst bara við hefð­bund­inni mót­stöðu stjórn­ar­and­stöð­unnar við fjár­laga­frum­varp­inu, hvorki meiri né minni en áður. „Þetta er auð­vitað alltaf, fjár­lögin og skyld mál, lyk­il­at­riði í stefnu­mörkun hverrar rík­is­stjórnar. Þannig að það kemur ekk­ert á óvart að þar eigi sér stað póli­tísk átök milli stjórnar og stjórn­ar­and­stöðu.“

Stjórnvöld geti skapað skilyrði

Birgir segir að hitt stóra málið sem hann sér fyrir sér að muni verða fyr­ir­ferð­ar­mikið á nýju þingi verði kjara­málin. „Þessi mál [fjár­lögin og tengd frum­vörp] tengj­ast auð­vitað með sínum hætti öðru stóru við­fangs­efni á vett­vangi stjórn­mál­anna næstu miss­erin sem eru kjara­málin. Auðvitað er það þannig að kjara­samn­ingar aðila á vinnu­mark­aði eru í öllum atriðum samn­inga­mál þeirra á milli, á milli atvinnu­rek­enda og laun­þega. En auð­vitað koma stjórn­völd að þeim málum með einum eða öðrum hætti og geta átt þátt í því að skapa skil­yrði fyrir ásætt­an­legri nið­ur­stöðu.“

Eitthvað svigrúm til staðar

Aðspurður um hvort þing­flokk­ur­inn ræði stöðu kjara­mál­anna mikið og hafi áhyggjur af fram­hald­inu segir Birgir að auð­vitað sé staðan rætt í hópnum og fólk sé að velta fyrir sér hver þró­unin verði.

„Það hefur auð­vitað verið töl­vert her­skár tónn í hluta verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar. Menn eru að velta fyrir sér hvernig það rímar við veru­leik­ann í ljósi þess hvernig kaup­máttur og lífs­kjör hafa þró­ast hér á und­an­förnum miss­erum. Þar hefur verið um veru­lega jákvæða þróun að ræða og hins vegar velta menn fyrir sér auð­vitað mögu­leik­anum á frek­ari kaup­mátt­ar­aukn­ingu og kjara­bótum á næst­unni, þar sem að menn meta það svo að það sé vissu­lega fyrir hendi eitt­hvað svig­rúm en alls ekki í þeim mæli sem hávær­ustu tals­menn verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar tala um. Þetta auð­vitað verður til umræðu áfram.“

Ríkisfjármálin og efnahagsmálin verði að vera í lagi

Um helstu mál sem þing­flokkur Sjálf­stæð­is­flokks­ins mun leggja áherslu á á kom­andi þing­vetri segir Birgir að þau líti þannig á það sé alltaf lyk­il­at­riði í þeirra huga að tryggja að rík­is­fjár­málin og efna­hags­málin verði áfram í lagi.

„Það er líka mik­il­vægt frá okkar bæj­ar­dyrum séð að það náist ein­hvern skyn­sam­leg lend­ing á vett­vangi kjara­mál­anna, sem bæði færir laun­þeg­unum auknar kjara­bætur en þó þannig að það sé inni­stæða til fyrir þeim. Við lítum á okkar rík­is­stjórnar þátt­töku út frá því að ná þessum stóru mark­miðum og svo auð­vitað eins og gengur eru ein­stakir þing­menn eða ein­stakir ráð­herrar með sín áherslu­mál en þetta eru stóru málin. Efna­hags­málin og þró­unin á þeim. Árangur á því sviði er for­senda fyrir öllu því góða sem menn vilja gera á öðrum sviðum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár