Þingveturinn framundan: „Við fylgjumst með öllu“

Nýtt þing hefst fljót­lega, nánar til­tekið þriðju­dag­inn 11. sept­em­ber. Kjarninn tók nokkra þing­menn úr mis­mun­andi flokkum tali um þing­vet­ur­inn framundan og áherslu­mál flokk­anna þetta árið og byrj­aði á Þórhildi Sunnu Ævars­dóttir þing­flokks­for­manni Pírata.

Nýtt þing hefst fljót­lega, nánar til­tekið þriðju­dag­inn 11. sept­em­ber. Rík­is­stjórnin mun leggja fram fjár­lög á fyrsta fundi, sem segja má að verði í raun fyrstu fjár­lög þess­arar rík­is­stjórnar þar sem vænt­an­lega má sjá stefnu­mótun hennar þar sem fjár­lög síð­asta árs voru lögð fram sér­stak­lega seint vegna rík­is­stjórn­ar­slit­anna og kosn­inga.

Kjarninn tók nokkra þing­menn úr mis­mun­andi flokkum tali um þing­vet­ur­inn framundan og áherslu­mál flokk­anna þetta árið og byrj­aði á Þórhildi Sunnu Ævars­dóttir þing­flokks­for­manni Pírata.

Stefnumótun í fjárlögunum

„Það verða nátt­úru­lega fjár­lög kynnt þarna strax í upp­hafi og þá eigum við kannski séns á að skilja hvað rík­is­stjórnin ætlar að gera í skatta­málum. Ég hef átt erfitt með að átta mig á hvað stendur til, ætla þau að lækka milli­þrepið um eitt pró­sent, ætla þau að hækka per­sónu­af­slátt­inn eða gera eitt­hvað allt annað. Þau hafa talað svo mikið í kross um þessi mál en kannski sjáum við þetta í fjár­lög­unum núna,“ segir Þór­hildur.

Hún seg­ist einnig gera ráð fyrir að á kom­andi þing­vetri verði mik­il­vægt að fylgj­ast grannt með rík­is­stjórn­inni þegar kemur að stöðu ferða­þjón­ust­unnar, að almenn­ingur verði ekki lát­inn taka skell­inn af því ef til dæmis dragi til tíð­inda í flug­geir­anum þar sem nú sjást miklar hrær­ingar. „Annað eins höfum við séð.“

Verkalýðshreyfingin fer á fullt

Þá nefnir Þór­hildur að kjara­málin verði fyr­ir­ferða­mikil á þessum þing­vetri og staða þeirra lægst laun­uðu í víð­ara sam­hengi. „Við vitum það nátt­úru­lega að verka­lýðs­hreyf­ingin er að fara á fullt. Vinnu­mark­aðs­málin og hús­næð­is­málin verða í for­grunni. Við í Pírötum munum leggja áherslu á að auka stuðn­ing við óhagn­að­ar­drifin leigu­fé­lög og grípa til aðgerða til að létta undir með almennum kostn­aði í líf­inu og þá kemur annað til, lífs­gæðin, barna­bætur og slíkt, skatt­byrðin hefur hækkað á þá tekju­lægstu.“

Uppreist æra snýr aftur

Þór­hildur segir að Pírtar ætli einnig að fylgj­ast með því sem hún kallar „gömul mál og ný“.

„Nú kemur út upp­reist æru frum­varpið. Það er að mínu mati frekar þunnur þrett­ándi,“ segir Þór­hildur sem furðar sig á því að dóms­mála­ráð­herra hafi talað um að hún stæði fyrir alls­herjar end­ur­skoðun þessa lagaum­hverfis í byrjun árs 2017, áður en upp­reist ræðu málið komst í hámæli. Hún telur að þarna vanti tölu­vert af breyt­ingum, til að myndi að ýmsir opin­berir starfs­menn sem beri ábyrgð á börnum megi ekki hafa hlotið dóma fyrir alvar­leg­ustu brotin eins og til að mynda nauðgun, morð, mis­notkun á börnum og alvar­legar lík­ams­meið­ingar.

„Þetta er ekki að finna þarna og mér finnst þetta frekar rýrt og ekki taka á þessu vanda­máli að upp­reist æra og óflekkað mann­orð sneri allt að því að menn sem áttu að höndla með pen­inga rík­is­ins hefðu ekki hafa mátt fengið á sig dóm.“

Fylgjast með öllu

Þá nefnir Þór­hildur nokkur önnur mál sem hún segir flokk­inn munu leggja áherslu á í vetur. „Barna­vernda­málin eru nátt­úru­lega líka í for­grunni hjá okkur. Það mál hefur ekki verið leitt til lykta sér­stak­lega ekki gagn­vart þing­inu og síðan þessi rann­sókn sem var allt öðru­vísi en gefið var út í upp­hafi. Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd mun taka þetta mál áfram að því leyti sem það snýr að ráð­herra. svo eru það nátt­úru­lega útlend­inga­lög­gjöfin. Við sjáum það að dóms­mála­ráð­herra er sífellt að herða að bæði hæl­is­leit­endum og útlend­ingum almennt. Lög­gæslu­málin og Lands­rétt­ar­málið og svo vitum við líka til þess að bráðum standi til þess að birta kostn­að­ar­greiðslur þing­manna aftur í tím­ann. Við fylgj­umst með þessu öllu og meira til,“ segir Þór­hildur að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár