Eygló dró framboð sitt til baka

Tvær fylk­ingar hafa tek­ist á og þær eiga báðar að hafa full­trúa í for­ystu flokks­ins, sagði Eygló er hún dró fram­boð sitt til vara­for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins til baka. Hún styður Lilju Alfreðs­dóttur í emb­ættið.

Eygló Harðardóttir velferðarráðherra.
Eygló Harð­ar­dóttir vel­ferð­ar­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Eygló Harð­ar­dóttir ákvað, eftir að ljóst var að Sigurður Ingi Jóhanns­son yrði for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, að hætta við fram­boð sitt í emb­ætti vara­for­manns flokks­ins. Áður en fram­boðs­ræður vara­for­manns­efna hófust til­kynnti hún þetta.

Eygló lýsti yfir stuðn­ingi við Lilju Alfreðs­dóttur í emb­ættið en þær tvær, auk Vilhelms Úlfars Vil­helms­sonar, höfðu lýst yfir fram­boði til vara­for­manns. Eygló sagði að það hefði engum dulist að tvær fylk­ingar hefðu tek­ist á innan flokks­ins og að það hafi verið erfitt að starfa innan flokks­ins. Hún myndi stíga til hliðar því henni þætti eðli­legt að full­trúi hinnar fylk­ing­ar­innar, þeirrar sem studdi Sigmund Davíð, yrði vara­for­maður flokks­ins fyrst Sigurður Ingi varð kjör­inn.

Kosning til var­for­manns fer fram með sama hætti og kosn­ing til for­manns flokks­ins og má búast við úrslitum fyrir kvöld­mat.

Sigmundur er farinn

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son yfir­gaf Háskóla­bíó þegar nið­ur­stöður úr for­manns­kjör­inu lágu fyrir. Blaða­maður mbl.is spurði hann áður en gat ekið af stað í bíl sínum hvað tæki nú við. „Við sjáum bara til,“ sagði Sig­mundur.

Sig­mundur Davíð skipar efsta sæti fram­boðs­lista Fram­sókn­ar­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Í það sæti fékk hann yfir­burða­kosn­ingu.

Kjarninn hefur ekki náð tali af Jóhann­esi Þór Skúla­syni, aðstoð­ar­mann Sig­mundar og fjöl­miðla­tengilið flokks­þings­ins, þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

framsóknarflokkur

Fréttirframsóknarflokkur

Sig­mundur Davíð metur stöðu sína góða

Þing­flokks­fundi Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem hófst klukkan 13 í dag, er lokið. Í sam­tali við mbl.is að honum loknum sagði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, að hann meti stöðu sína innan þing­flokks­ins og flokks­ins góða. „Fund­ur­inn var ekki til þess ætl­aður að kveða upp um for­ystu, flokks­þing gerir það,“ sagði Sig­mundur Davíð við mbl.is. Willum Þór Þórsson, þing­maður flokks­ins, sagði í sam­tali...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár