Sigmundur Davíð metur stöðu sína góða

Þing­flokks­fundi Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem hófst klukkan 13 í dag, er lokið. Í sam­tali við mbl.is að honum loknum sagði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, að hann meti stöðu sína innan þing­flokks­ins og flokks­ins góða. „Fund­ur­inn var ekki til þess ætl­aður að kveða upp um for­ystu, flokks­þing gerir það,“ sagði Sig­mundur Davíð við mbl.is.

Willum Þór Þórsson, þing­maður flokks­ins, sagði í sam­tali við Vísi.is að allur þing­flokkur Fram­sókn­ar­flokks­ins standi ein­huga á bak­við Sigmund Davíð. Willum Þór sagði þó einnig að það væri mik­il­vægt að fram myndi fara for­manns­kosn­ing á kom­andi flokks­þingi Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem fram fer í byrjun októ­ber, og að hann gæti hugsað sér að kjósa Sigurð Inga Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra, í slíkri kosn­ingu.

Á fund­inum var staða Sig­mundar Davíðs sem for­manns flokks­ins rædd. Í fréttum RÚV í hádeg­inu kom fram að mikil óánægja væri með ástandið í for­ystu flokks­ins innan raða þing­flokks­ins. Sér­stak­lega væri óánægja með fram­göngu Sig­mundar Davíðs að und­an­förnu og það lága fylgi sem flokk­ur­inn hefur mælst með í skoð­ana­könn­unum, þar sem fylgið mælist um tíu pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

framsóknarflokkur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár