Sigurður Ingi skaut fast á Sigmund Davíð

Fram­bjóð­endur til for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins fluttu fram­boðs­ræður sínar í Háskóla­bíó. Full­trúar á flokks­þing­inu kjósa nú nýja for­ystu flokks­ins.

Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins.
Sigurður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Mynd: Birgir Þór

Sigurður Ingi Jóhanns­son og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son fluttu fram­boðs­ræður sínar á flokks­þingi Fram­sókn­ar­flokks­ins nú um klukkan 13 í dag. Um leið og ræð­unum sleppti hófst kosn­ingin. Formaður kjör­stjórn­ar­innar sagð­ist ekki þora að meta hversu langan tíma kosn­ing­arnar muni taka.

Sigurður Ingi tal­aði á undan og fjall­aði í meg­in­at­riðum um það sama og hann tal­aði um í gær; Ef flokknum ætti að vegna vel í kosn­ing­unum þyrfti fólk að kjósa flokk­inn. Hann vitn­aði í skoð­ana­kann­anir sem sýna að fleiri muni kjósa flokk­inn ef nýr for­maður verði kos­inn í flokk­inum. Sigurður Ingi skaut föstum skotum að Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni í ræð­unni og sagði það undir rós að for­mað­ur­inn hafi lent á vegg í bar­áttu sinni eftir að Panama­skjölin afhjúp­uðu eign­ar­hald hans í félagi í skatta­skjóli.

„Sumir segja að allt sem sé ekki bannað sé leyfi­legt,“ sagði hann. „Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefði mun breið­ari skís­kotun ef skipt verður um for­ystu. Ég hef aldrei litið svo á að þeir sem kjósa ekki Fram­sókn­ar­flokk­inn eru ekki óvinir flokks­ins,“ sagði Sigurður Ingi.

Sig­mundur Davíð tal­aði blað­laust í sinni fram­boðs­ræðu. Hann lagði áherslu á að Fram­sókn­ar­menn þyrftu að fylkja liði og standa saman í kosn­ing­unum til þess að ná árangri. Það yrði hans fyrsta verk ef hann hlýtur áfram­hald­andi umboð til þess að leiða flokk­inn að sam­eina hann og koma á sáttum.

Jafn­framt seg­ist hann aldrei hafa fundið fyrir eins miklum stuðn­ingi og und­an­farið. Hann seg­ist heyra það ítrekað að fólk komi til hans og segi: „Ekki gef­ast upp. Þið gef­ist ekki upp núna fyrir lúa­legum brögðum. Látið ekki fella ykkur á slíku.“ Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn sé auð­vitað prinsipp­flokkur og fólkið sem sé „að fara að kjósa okkur er fólkið sem telur að stjórn­mál eigi að snú­ast um prinsipp.“ Hann ætlar að reyna að bæta flokk­inn og sjálfan sig. Hann sé ekki galla­laus og að hann muni vinna að því á hverjum degi að bæta sig á þeim sviðum sem uppá vantar styrk.

Full­trúar á flokks­þing­inu ganga nú til kosn­inga. Ekki er ljóst hvenær nið­ur­stöður liggja fyrir en sam­kvæmt dag­skrá áttu fram­boðs­ræð­urnar að hefj­ast kl. 11: 30. Næsti liður á dag­skránni átti að hefj­ast kl. 12:30 svo gera má ráð fyrir að þetta ferli muni taka um tvær klukku­stundir. Til þess að ná kjöri þarf nýr for­maður að fá minnst helm­ing atkvæða í emb­ættið. Þess vegna gæti farið að kjósa þurfi aftur þar til annar nýtur stuðn­ings meiri­hluta flokks­þings­full­trúa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

framsóknarflokkur

Fréttirframsóknarflokkur

Sig­mundur Davíð metur stöðu sína góða

Þing­flokks­fundi Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem hófst klukkan 13 í dag, er lokið. Í sam­tali við mbl.is að honum loknum sagði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, að hann meti stöðu sína innan þing­flokks­ins og flokks­ins góða. „Fund­ur­inn var ekki til þess ætl­aður að kveða upp um for­ystu, flokks­þing gerir það,“ sagði Sig­mundur Davíð við mbl.is. Willum Þór Þórsson, þing­maður flokks­ins, sagði í sam­tali...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár