Lilja Dögg kjörin varaformaður – Gunnar Bragi dró framboðið til baka

Lilja Dögg verður vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Gunnar Bragi vildi ekki rit­ara­stól­inn og Sig­mundur Davíð tjáir sig ekki við fjöl­miðla.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir var gerð að utanríkisráðherra í ríkisstjórn Sigurðar Inga. Hún skipar efsta sæti Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður fyrir alþingiskosningarnar 29. október.
Lilja Dögg Alfreðs­dóttir var gerð að utan­rík­is­ráð­herra í rík­is­stjórn Sigurðar Inga. Hún skipar efsta sæti Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður fyrir alþing­is­kosn­ing­arnar 29. októ­ber. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Lilja Dögg Alfreðs­dóttir var kjörin vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins á flokks­þing­inu í dag. Hún hlaut yfir­burða­kosn­ingu í emb­ættið með 95 pró­sent greiddra atkvæða. Einn annar var í kjöri, Vilhelm Úlfar Vil­helms­son.

Eygló Harð­ar­dóttir hafði áður dregið fram­boð sitt til baka eftir að ljóst var að Sigurður Ingi Jóhanns­son hefði verið kjör­inn for­maður flokks­ins. Taldi hún mik­il­vægt að full­trúar beggja fylk­inga, sem barist hafa innan flokks­ins und­an­farna daga, ættu full­trúa í for­ystu flokks­ins.

Gunnar Bragi Sveins­son dró fram­boð sitt til rit­ara flokks­ins einnig til baka eftir að ljóst var að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son hefði tapað for­manns­kosn­ing­unum. Hann hefur verið ein­dreg­inn stuðn­ings­maður Sig­mundar Davíðs og var eini ráð­herra flokks­ins sem lýsti yfir stuðn­ingi við hann í yfir­lits­ræðum ráð­herra á flokks­þing­inu í gær. Gunnar Bragi seg­ist nú ætla að ein­beita sér að kosn­inga­bar­átt­unni fyrir norðan þar sem hann skipar fyrsta sæti á lista Fram­sókn­ar­flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Jón Björn Há­kon­ar­son er því sjálf­kjör­inn rit­ari flokks­ins.

Kjarninn náði tali af Jóhann­esi Þór Skúla­syni, aðstoð­ar­manni Sig­mundar Davíðs og fjöl­miðla­tengilið vegna flokks­þings­ins, fyrir stundu og óskaði eftir sam­tali við Sigmund Davíð. Jóhannes sagð­ist ekki búast við því að Sig­mundur myndi tjá sig í dag.

Þegar Sig­mundur Davíð yfir­gaf flokks­þingið í dag, eftir að úrslitin voru ljós, sagði hann við fjöl­miðla að nið­ur­staðan væru von­brigði. Honum var svo ekið á brott.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

framsóknarflokkur

Fréttirframsóknarflokkur

Sig­mundur Davíð metur stöðu sína góða

Þing­flokks­fundi Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem hófst klukkan 13 í dag, er lokið. Í sam­tali við mbl.is að honum loknum sagði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, að hann meti stöðu sína innan þing­flokks­ins og flokks­ins góða. „Fund­ur­inn var ekki til þess ætl­aður að kveða upp um for­ystu, flokks­þing gerir það,“ sagði Sig­mundur Davíð við mbl.is. Willum Þór Þórsson, þing­maður flokks­ins, sagði í sam­tali...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár