Sigurður Ingi Jóhannsson er formaður Framsóknarflokksins

Sigurður Ingi hlaut 370 atkvæði gegn 329 atkvæðum Sig­mundar Davíðs.

Sigurður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra var kjör­inn for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins á flokks­þingi í dag. Hann tekur við emb­ætt­inu af Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni og verður 17. for­maður flokks­ins í hund­rað ára sögu hans. Sig­mundur Davíð bauð sig einnig fram en laut í lægra haldi og tap­aði þess vegna for­manns­stólnum.

Sigurður Ingi hlaut 370 atkvæði gegn 329 atkvæðum Sig­mundar Davíðs. Þrjú atkvæði voru greidd fyrir Lilju Alfreðs­dóttur en hún býður sig fram sem vara­for­mann flokks­ins.

Mikil eft­ir­vænt­ing var vegna for­manns­kjörs­ins enda þótti mjótt á munum milli þeirra Sigurðar og Sig­mundar. Mikil óánægja hafði ríkt um for­ystu flokks­ins fyrir flokks­þingið, eða síðan Sig­mundur Davíð neydd­ist til þess að segja af sér sem for­sæt­is­ráð­herra í byrjun apríl á þessu ári. Þing­flokkur Fram­sókn­ar­flokks­ins hafði til að mynda ákveðið að setja Sigmund Davíð af sem for­sæt­is­ráð­herra áður en ráð­herr­ann kom á fund þing­flokks­ins og bauðst sjálfur til þess að stíga til hliðar.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur und­an­farið mælst með um 11 pró­sent fylgi í Kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar. Stuðn­ingur við flokk­inn með Sigmund Davíð í for­ystu eða ekki hefur einnig verið kann­aður. Í könnun Frétta­blaðs­ins sögð­ust aðspurðir vera frekar lík­legri til að kjósa Fram­sókn­ar­flokk­inn með Sigurð Inga í brúnni.

Í könnun Gallup sem gerð var fyrir Við­skipta­blaðið og birt var 29. sept­em­ber kom hins vegar í ljós að Sig­mundur Davíð naut stuðn­ings meiri­hluta Fram­sókn­ar­manna. Sigurður Ingi naut hins vegar yfir­burð­ar­stuðn­ings meðal stuðn­ings­manna allra flokka; 47 pró­sent vilja hann sem for­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

framsóknarflokkur

Fréttirframsóknarflokkur

Sig­mundur Davíð metur stöðu sína góða

Þing­flokks­fundi Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem hófst klukkan 13 í dag, er lokið. Í sam­tali við mbl.is að honum loknum sagði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, að hann meti stöðu sína innan þing­flokks­ins og flokks­ins góða. „Fund­ur­inn var ekki til þess ætl­aður að kveða upp um for­ystu, flokks­þing gerir það,“ sagði Sig­mundur Davíð við mbl.is. Willum Þór Þórsson, þing­maður flokks­ins, sagði í sam­tali...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár