Bein útsending: Framsókn kýs forystu í dag – mjög mjótt á munum

Flokks­þing Fram­sókn­ar­flokks­ins kýs sér for­ystu í dag. Sigurður Ingi Jóhanns­son og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son sækj­ast eftir for­manns­emb­ætt­inu.

Flokks­þing Fram­sókna­flokks­ins kýs for­mann, vara­for­mann, rit­ara, laga­nefnd og siða­nefnd í Háskóla­bíó í dag. Fram­boðs­ræður þeirra sem hafa gefið kost á sér verða sýndar beint í streymi Fram­sókn­ar­flokks­ins og eiga að hefj­ast klukkan 11:30 sam­kvæmt dag­skrá. Ein­hverjar tafir hafa orðið á dag­skránni og enn er verið að greiða atkvæði um skýrslur mál­efna­hópa á flokks­þing­inu. Hægt er að horfa í spil­ar­anum hér að neðan.

Bæði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, og Sigurður Ingi Jóhanns­son, vara­for­maður flokks­ins og núver­andi for­sæt­is­ráð­herra, gefa báðir kost á sér í emb­ætti for­manns flokks­ins. Í emb­ætti vara­for­manns hafa bæði Lilja Alfreðs­dóttir, utan­rík­is­ráð­herra, og Eygló Harð­ar­dóttir, vel­ferð­ar­ráð­herra, boðið sig fram.

Samkvæmt frá­sögnum fjöl­miðla af flokks­þing­inu virð­ist vera mjög erfitt að átta sig á hvort Sig­mundur Davíð eða Sigurður Ingi njóti meiri stuðn­ings meðal flokks­þings­full­trúa. Það mun því að öllum lík­indum veðra mjög mótt á munum og við­búið að ef ein­ungis fáein atkvæði skilja á milli að talið verði tvisvar. Það verður eflaust ekki síður gert til þess að koma í veg fyrir atvik eins og þegar Sig­mundur Davíð var fyrst kjör­inn sem for­maður flokks­ins. Þá gerði kjör­stjórnin mis­tök og sagði Höskuld Þór­halls­son vera rétt­kjör­inn for­mann, en þurfti svo að slíta sig­ur­ræðu Hösk­uldar til að til­kynna að hann væri alls ekki for­maður.

Hömruðu á trausti innanflokks og utan

Öll fluttu þau ræður á flokks­þing­inu í gær og gerðu grein fyrir starfi sínu sem ráð­herrar í rík­is­stjórn. Sig­mundur Davíð flutti sitt erindi sem for­maður flokks­ins á hund­rað ára afmæli hans. Þar tal­aði einnig Gunnar Bragi sveins­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, hann var eini ráð­herr­ann sem lýsti yfir stuðn­ingi við annan fram­bjóð­and­ann í for­manns­kjör­inu; Sig­mundur Davíð hlaut það lof. Í ræðum sínum í gær fjöll­uðu báðir um traust og sam­vinnu í ræðum sínum en nálg­uð­ust það frá mis­mun­andi end­um.

Sig­mundur Davíð tal­aði sem for­maður flokks­ins í nærri því klukku­stund og fór vítt og breitt yfir áherslur flokks­ins, bæði sögu­legar áherslur og þau mál­efni sem flokk­ur­inn hefur barist fyrir undir for­ystu hans. Hann vís­aði ítrekað í ræðu sem hann hélt á flokks­þingi fyrir fimm árum og lagði áherslu á þá sam­stöðu sem hann sagði ein­kenna Fram­sókn­ar­menn þegar þeir standa frammi fyrir stórum og erf­iðum verk­efn­um.

Við hugs­an­legar stjórn­ar­mynd­anir í kjöl­far kosn­ing­anna í lok mán­að­ar­ins sagði Sig­mundur Davíð að Fram­sókn vilji ekki bara fá að vera með, heldur taka þátt út frá styrk­leika. Flokk­ur­inn hefur verið að mæl­ast með um og yfir 10 pró­sent fylgi í Kosn­inga­spánni und­an­farnar vik­ur. Í kosn­ing­unum árið 2013 hlaut flokk­ur­inn 24,4 pró­sent fylgi og 19 þing­menn og gat myndað rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokkn­um.

Sig­urður Ingi fjall­aði um þann trausts­missi sem Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og for­ysta flokks­ins hefur orðið fyrir í kjöl­far þess að upp komst um eignir Sig­mundar Dav­íðs í aflands­fé­lagi. „Það hefur ýmis­legt gerst síðan við komum saman síð­ast á flokks­þing­i,“ sagði hann og rak það hvernig hann hafi tekið það verk­efni að sér að halda rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu við Sjálf­stæð­is­flokk­inn áfram eftir að Sig­mundur Davíð sagði af sér.

Sig­urður Ingi lagði áherslu á að til þess að geta haft áhrif á fram­vindu mála yrði flokk­ur­inn að geta unnið með öðrum flokkum og aðrir flokkar að geta unnið með hon­um. „Við verðum að vera í aðstöðu til þess að hafa áhrif á fram­vindu mála,“ sagði hann og spurði síð­an: „Hver er staðan nú í þeim efn­um?“.

Drama

Beinni vefút­send­ingu Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem Kjarninn birti hér á vefnum í gær, lauk um leið og Sig­mundur Davíð lauk ræðu sinni. Inntur eftir svörum sagði Jóhannes Þór Skúlason, aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs og tengiliður fjöl­miðla vegna flokks­þings­ins, að þetta hefðu verið mis­tök og ekki sam­kvæmt þeim fyr­ir­mælum sem tækni­menn hefðu fengið. Tækni­menn­irnir eru þessu hins vegar ósam­mála og segja að farið hafi verið í einu og öllu eftir fyr­ir­mælum for­svars­manna flokks­þings­ins.

Ásmundur Einar Daðason, þing­maður fokks­ins og fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs, lét þung orð fallaá flokks­þing­inu í gær. Hann lýsti því hvernig Sig­mundur Davíð hafi yfir­gefið fund fram­kvæmda­stjórnar flokks­ins í fússi á föstu­dag og neitað að ræða dag­skrá flokks­þings­ins. Ekki hafði verið gert ráð fyrir erindi for­sæt­is­ráð­herra fyrr en eftir þennan fund fram­kvæmda­stjórn­ar­innar.

Í umfjöllun RÚV um málið segir að for­mað­ur­inn hafi yfir­gefið fund­inn þegar ræða átti dag­skrá flokks­þings­ins en Eygló Harð­ar­dóttir hafi gengið á eftir honum og spurt hvort það væri ekki hægt að líta á dag­skrá flokks­þings­ins. „Síðan hefðu nokkur vel valin orð verið látin falla og hurðum skellt. Ásmundur sagði orð eins og sátta­vilja og sam­starf ekki hafa komið upp í hug­ann heldur hroki og ein­ræði.“

Frásögn Ásmundar Einars var svo hrakin af Sigmundi Davíð sjálfum, sem sagð­ist hafa orðið fyrir von­brigðum með ræð­una. Ásmundur Einar segir aðra sem voru á fund­inum geta stað­fest frá­sögn sína.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

framsóknarflokkur

Fréttirframsóknarflokkur

Sig­mundur Davíð metur stöðu sína góða

Þing­flokks­fundi Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem hófst klukkan 13 í dag, er lokið. Í sam­tali við mbl.is að honum loknum sagði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, að hann meti stöðu sína innan þing­flokks­ins og flokks­ins góða. „Fund­ur­inn var ekki til þess ætl­aður að kveða upp um for­ystu, flokks­þing gerir það,“ sagði Sig­mundur Davíð við mbl.is. Willum Þór Þórsson, þing­maður flokks­ins, sagði í sam­tali...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár