„Ég er ekki óumdeildur stjórnmálamaður, og verð það líklega aldrei.“

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og Sigurður Ingi Jóhanns­son fluttu ræður á flokks­þingi Fram­sókn­ar­flokks­ins í dag.

Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Sigurður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son. Mynd: Samsett

Bæði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og Sigurður Ingi Jóhanns­son fluttu ræður á flokks­þingi Fram­sókn­ar­flokks­ins í Háskóla­bíói í dag en þeir hafa báðir gefið kost á sér í kjöri til for­manns flokks­ins. Kosið verður á morgun og munu úrslitin liggja fyrir um eða upp úr hádegi. Báðir fjöll­uðu um traust og sam­vinnu í ræðum sínum en nálg­uð­ust það frá mis­mun­andi endum.

Sig­mundur Davíð tal­aði sem for­maður flokks­ins í nærri því klukku­stund og fór vítt og breitt yfir áherslur flokks­ins, bæði sögu­legar áherslur og þau mál­efni sem flokk­ur­inn hefur barist fyrir undir for­ystu hans. Hann vís­aði ítrekað í ræðu sem hann hélt á flokks­þingi fyrir fimm árum og lagði áherslu á þá sam­stöðu sem hann sagði ein­kenna Fram­sókn­ar­menn þegar þeir standa frammi fyrir stórum og erf­iðum verk­efnum.

Sig­mundur Davíð var einnig auð­mjúkur í ræðu sinni og bað flokks­menn afsök­unar á því að þeir hafi þurft að tala hans máli und­an­farna mán­uði. Vísaði hann þar til þess þegar hann sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra og dró sig í hlé frá þing­störfum eftir að upp komst um að hann hafi átt félag í skatta­skjóli ásamt eig­in­konu sinni. „Ég er ekki óum­deildur stjórn­mála­maður, og verð það lík­lega aldrei,“ sagði Sig­mundur Davíð meðal ann­ars.

Við hugs­an­legar stjórn­ar­mynd­anir í kjöl­far kosn­ing­anna í lok mán­að­ar­ins sagði Sig­mundur Davíð að Framsókn vilji ekki bara fá að vera með, heldur taka þátt út frá styrk­leika. Flokk­ur­inn hefur verið að mæl­ast með um og yfir 10 pró­sent fylgi í Kosn­inga­spánni und­an­farnar vikur. Í kosn­ing­unum árið 2013 hlaut flokk­ur­inn 24,4 pró­sent fylgi og 19 þing­menn og gat myndað rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokknum.

Sigurður Ingi fjall­aði um þann trausts­missi sem Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og for­ysta flokks­ins hefur orðið fyrir í kjöl­far þess að upp komst um eignir Sig­mundar Davíðs í aflands­fé­lagi. „Það hefur ýmis­legt gerst síðan við komum saman síð­ast á flokks­þingi,“ sagði hann og rak það hvernig hann hafi tekið það verk­efni að sér að halda rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu við Sjálf­stæð­is­flokk­inn áfram eftir að Sig­mundur Davíð sagði af sér.

Sigurður Ingi lagði áherslu á að til þess að geta haft áhrif á fram­vindu mála yrði flokk­ur­inn að geta unnið með öðrum flokkum og aðrir flokkar að geta unnið með honum. „Við verðum að vera í aðstöðu til þess að hafa áhrif á fram­vindu mála,“ sagði hann og spurði síðan: „Hver er staðan nú í þeim efnum?“.

Sig­mundur Davíð gaf sér rúm til þess að ræða hugs­an­leg stefnu­mál flokks­ins í kom­andi kosn­ingum. Nefndi hann þar sér­stak­lega að hægt væri að setja tíma­bundin lög á hámarks­raun­vexti; að ríkið taki sér heim­ild til þess að ákveða á hvaða kjörum bankar og líf­eyr­is­sjóðir megi lána.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár