Þingveturinn framundan: „Stjórnvöld flækjast frekar fyrir“

Nýtt þing hefst þriðju­dag­inn 11. sept­em­ber. Kjarn­inn tók nokkra þing­menn úr mis­mun­andi flokkum tali um þing­vet­ur­inn framundan og áherslu­mál flokk­anna þetta árið. Í þetta skiptið var það Hanna Katrín Frið­riks­son þing­flokks­for­maður Við­reisnar.

Nýtt þing hefst fljót­­lega, nánar til­­­tekið þriðju­dag­inn 11. sept­­em­ber. Rík­­is­­stjórnin mun leggja fram fjár­­lög á fyrsta fundi, sem segja má að verði í raun fyrstu fjár­­lög þess­­arar rík­­is­­stjórnar þar sem vænt­an­­lega má sjá stefn­u­­mótun hennar þar sem fjár­­lög síð­­asta árs voru lögð fram sér­­stak­­lega seint vegna rík­­is­­stjórn­­­ar­slit­anna og kosn­­inga.

[links]Kjarn­inn tók nokkra þing­­menn úr mis­­mun­andi flokkum tali um þing­vet­­ur­inn framundan og áherslu­­mál flokk­anna þetta árið. Í þetta skiptið var það Hanna Katrín Frið­riks­son þing­flokks­for­maður Við­reisnar.

Óbærileg vaxtakjör

„Ég held að við munum fara bratt af stað. Efna­hags­málin og þær blikur sem eru á lofti þar verða í brennid­epli í allan vetur og munu strax mark sitt á fjár­lagaum­ræð­una. Sér­fræð­ingar eru að vara við að kuln­unin geti orðið jafn­vel harð­ari og sneggri en við bjugg­umst við,“ segir Hanna Katrín. Hún segir að þau í Viðreisn hafi talið fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar bjart­sýna. „Kjara­málin eru síðan líka nátengd þess­ari umræðu allri. Við í Viðreisn munum halda áfram okkar orð­ræðu um vaxta­kjörin sem fólk og fyr­ir­tæki hér þurfa að búa við og íslenska krónan leiðir af sér. Þessi óbæri­legu vaxta­kjör sem stjórn­völd þurfa að taka ábyrgð á.“

Vantar stefnu

Hanna Katrín seg­ist eiga von á því í fjár­laga­frum­varp­inu að sjá áfram áherslu rík­is­stjórn­ar­innar á að leggja meiri pen­inga í ákveðna mála­flokka án þess að því fylgi skýr aðgerð­ar­á­ætlun eða stefna. „Ég tel til dæmis ástæðu til að hafa tölu­verðar áhyggjur af þeirri veg­ferð sem stjórn­völd eru á með heil­brigð­is­kerfið. Það verður mikil áhersla á þennan mála­flolkk í vetur. Við í Viðreisn höfum lagt áherslu á jafnan aðgang fólks að góðri þjón­ustu sama hvaðan hún kemur. Við teljum að þessu mark­miði verði ekki náð nema með skyn­sam­legri nýt­ingu þess fjár­magns sem fer í gegnum kerfið og ég ótt­ast að frum­varpið muni ekki end­ur­spegla þetta,“ segir Hanna Katrín og bætir því við að sama eigi við um mennta­málin. „Við erum með fullt af frá­bæru fag­fólki sem kann til verka í þessum risa mála­flokki en ein­hvern veg­inn er til­finn­ingin sú að stjórn­völd flæk­ist frekar fyrir þegar kemur að því að marka skýra fram­tíð­ar­sýn og aðgerð­ar­á­ætlun til lengri tíma. Áherslan virð­ist bara vera á hversu miklir pen­ingar fara í gengum kerfið í stað þess hvernig þeir eru best nýttir.“

Verndartollar skaðlegir fyrir bændur og neytendur

Hún segir land­bún­að­ar­málin líka munu taka pláss. „Það liggur fyrir að það þarf að fara í mark­vissan stuðn­ing við bændur. En jafn­framt er ég og við í Viðreisn ennþá meira sann­færð um að gam­al­dags vernd­ar­tollar séu bara skað­legir fyrir bæði bændur og neyt­endur og þetta verður mál sem verður mikið í umræð­unni.“

Hanna Katrín segir að ferða­þjón­ustan þurfi athygli. „Ég hljóma eins og biluð plata þegar ég tala um þetta stefnu­leysi enda­laust, en stefnu­leysi í ferða­þjón­ust­unni verður sífellt meira áber­andi. Allir aðilar, þeir sem starfa í ferða­þjón­ust­unni, nátt­úran, almenn­ingur, fjár­festar, það þurfa allir á því að halda að það séu settar skýrar leik­reglur.“

Full harka gegn lækkun álagna á stórútgerðir

Fyrstu dagar þings­ins munu fara í hefð­bundar umræður um stefnu­ræðu for­sæt­is­ráð­herra og fjár­lögin. „En það er full ástæða til að ótt­ast að stjórn­völd mæti aftur til leiks á fyrstu dögum þings­ins með til­raunir til að lækka álögur á stór­út­gerð­ina og við munum mæta því a af fullri hörku í þing­inu,“ segir Hanna.

Eiga að tryggja viðunandi lífsjör

Kjara­málin munu verða fyr­ir­ferð­ar­mikil á þessum þing­vetri og segir Hanna Katrín að það séu nátt­úru­lega aðilar vinnu­mark­að­ar­ins sem séu með bolt­ann hjá sér. „Aðkoma stjórn­valda á nátt­úru­lega fyrst og fremst að vera sú að hafa rammann í lagi. Þar er fullt óunnið. Ekki síst í sam­bandi við óstöð­ug­leika geng­is­ins og vaxta­kjörin. Mér fynd­ist miklu eðli­legra að stjórn­völd ein­beittu sér að þeim verk­efnum og leystu þau með hags­muni almenn­ings í huga. Jákvæðastsa skerfið sem stjón­völd gætu komið með inn í kjara­við­ræð­urnar er að tryggja hérna við­un­andi lífs­kjör fyrir almenn­ing sem er á pari við það sem ger­ist í nágranna­lönd­unum okkar.“

Ábyrgð í meðferð opinberra fjármuna

Um þau mál sem Viðreisn hyggst leggja áherslu á í vetur vill Hanna Katrín lítið segja, það verði kynnt sér­stak­lega síðar. „Við erum að leggja loka­hönd á þau mál núna. Við munum leggja áherslu á frelsi, jafn­rétti, skyn­semi og viljum að gegn­sæi og ábyrgð í með­ferð opin­berra fjár­muna end­ur­speglist í öllum þeim málum sem við munum leggja fram.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár