Þingveturinn framundan: „Berjast í þágu þeirra sem standa höllustum fæti“

Nýtt þing hefst þriðju­dag­inn 11. sept­em­ber. Kjarn­inn tók nokkra þing­menn úr mis­mun­andi flokkum tali um þing­vet­ur­inn framundan og áherslu­mál flokk­anna. Í þetta skiptið var það Ólafur Ísleifs­son for­maður þing­flokks Flokks fólks­ins.

Nýtt þing hefst fljót­lega, nánar til­tekið þriðju­dag­inn 11. sept­em­ber. Rík­is­stjórnin mun leggja fram fjár­lög á fyrsta fundi, sem segja má að verði í raun fyrstu fjár­lög þess­arar rík­is­stjórnar þar sem vænt­an­lega má sjá stefnu­mótun hennar þar sem fjár­lög síð­asta árs voru lögð fram sér­stak­lega seint vegna rík­is­stjórn­ar­slit­anna og kosn­inga.

[links]Kjarn­inn tók nokkra þing­menn úr mis­mun­andi flokkum tali um þing­vet­ur­inn framundan og áherslu­mál flokk­anna þetta árið. Í þetta skiptið var það Ólafur Ísleifs­son þing­flokks­for­maður Flokks fólks­ins.

Kjarasamningagerð stóra málið

„Það verður mjög áhuga­vert að kynna sér stefnu­ræðu for­sæt­is­ráð­herra þarna um kvöldið 12. sept­em­ber. Þær umræður munu nátt­úru­lega taka sinn tíma eins og hefð­bundið er og er partur af íslensku stjórn­málaum­hverfi. “

Ólafur segir stærsta málið framundan vera vinnu­mark­að­ur­inn. „Að það náist við­un­andi nið­ur­staða á vinnu­mark­aði þar sem allir samn­ingar eru opnir eða að opna. Það er stóra málið.“ Aðspurður um hvort hann sér bjart- eða svart­sýnn á kjara­vet­ur­inn framundan sem margir hafa áhyggjur af seg­ist hann far­inn að muna svo­lítið langt aftur.

Mun reyna á ríkisstjórnina

„Kjara­samn­inga­gerð er nú sjaldn­ast aðveld. Þannig að ég geri ekki ráð fyrir að það verði frekar auð­velt nú. Það mun reyna mjög á rík­is­stjórn­ina að henni tak­ist að leggja þessu lið, að greiða fyrir kjara­samn­ingum, eins og maður segir. Það hafa þó komið fram yfir­lýs­ingar um að hennar vilji standi til þess,“ segir Ólafur sem seg­ist einnig hlakka til að sjá hvernig rík­is­stjórnin muni fara með evr­ópska orku­pakk­ann og hvaða fyr­ir­ætl­anir hún hafi í þeim efnum. Ljóst sé að það mál sé erf­ið­ara í sumum flokkum en öðrum.

Standa með þeim gleymdu

„Verkefni okkar í Flokki fólks­ins eru alveg skýr. Það er standa með þeim og berj­ast í þágu þeirra sem að standa hérna höllustum fæti og hafa ein­hvern veg­inn orðið útundan eða eru gleymdir. Hópar aldr­aðra, öryrkja sem og tekju­lágar fjöl­skyldur vinn­andi fólks og ein­hleyp­ingar.“

Ólafur segir flokk­inn munu halda áfram að beita sér í þágu þess­ara hópa með ýmsum hætti og leit­ast við að verja heim­ilin fyrir vissum þáttum sem við hér á Íslandi búum við og skeri okkur frá öðrum þjóðum.

Gegn verðtryggingunni og ofurvöxtum

„Við munum beita okkur gegn verð­trygg­ing­unni og þessum háu vöxtum sem eru hér og annað af því tagi og reyna að skjóta skyldi yfir heim­ilin sem fóru illa út úr hrun­inu og eft­ir­leik þess. Ég fékk svar frá dóms­mála­ráð­herra sem leiddi í ljós að 9.200 fjöl­skyldur máttu yfir­gefa heim­ili sín frá 2008 til og með 2017 og þá er ekki allt talið. Þetta eru nauð­ung­ar­sölur og sölur af sams­konar tagi á íbúð­ar­hús­næði vegna veð­lána. Þessi tala, á tíunda þús­und, ef við gerum ráð fyrir þremur ein­stak­lingum fjöl­skyldu þá eru þetta 30 þús­und manns sem þetta snertir beint, það eru 10 pró­sent af þjóð­inni. Það hefur ekk­ert verið gert síðan til að reisa ein­hverjar varnir í þágu heim­il­anna.“

Kjarabót vegna breytinga á endurgreiðslum

Ólafur seg­ist með aðgerðir í und­ir­bún­ingi í því skyni en vill ræða þær síðar. Hann seg­ist að end­ingu afar spenntur fyrir frum­varpi frá ráð­herra sem hann á von á í nóv­em­ber. „Það var mál sem við bárum fram á liðnu þingi, sem að varðar sér­stakar upp­bætur til bóta­þega og öryrkja. Hlutir eins og heyrn­ar­tæki og ýmis­legt sem er end­ur­greitt sér­stak­lega, við bentum á það eins og ÖBÍ, að þessar end­ur­greiðslur hafa verið reikn­aðar eins og tekjur. Fólk er krafið um tekju­skatt af þessu og útsvar. Ýmsar bætur geta líka í kjöl­farið farið að skerð­ast vegna hærri tekna. Það var flutt um þetta þings­á­lykt­un­ar­til­laga sem allir flokkar studdu og ráð­herra falið að leggja fram um þetta frum­varp í nóv­em­ber og við hlökkum mikið til að sjá það frum­varp.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flokkurfólksins

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár