Segir Klausturmenn litla karla sem hatast út í konur

Inga Sæland segir að þrír fyrr­ver­andi Sjálf­stæð­is­menn sem gengið hafi til liðs við flokk hennar 2017 hafi viljað fá stjórn yfir fjár­munum flokks­ins. Ólafur Ísleifs­son og Karl Gauti Hjalta­son hafi ein­ungis átt eitt erindi á Klaustur, að svíkja flokk sinn.

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins.
Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins. Mynd: Birgir Þór Harðarson

„Ég hef lært að ekki eru allir við­hlæj­endur í stjórn­málum vinir. Sömu­leiðis hef ég fundið á eigin skinni að það er gömul saga og ný, bæði í póli­tík og atvinnu­lífi, að til eru karlar sem eiga afar erfitt með að sæta því að hlíta stjórn sterkrar konu. Þeir láta engin tæki­færi ónotuð til að freista þess að grafa undan slíkum konum. Gera þær tor­tryggi­legar með baknagi, dylgjum, ósann­indum og hreinni ill­mælgi; – hatri og heift, er þeir skynja að konan er ekki reiðu­búin að afhenda þeim þau yfir­ráð sem þeir krefj­ast.“

Þetta segir Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, í grein í Morg­un­blað­inu í dag sem ber fyr­ir­sögn­ina „Karlar sem hat­ast við konur“ þar sem hún gerir upp Klaust­ur­málið og eft­ir­mála þess.

[adspot]Hún segir þar enn fremur að í umræð­unum sem fóru fram á Klaustri milli fjög­urra þing­manna Mið­flokks­ins og tveggja þing­manna Flokks fólks­ins hafði alþjóð fengið inn­sýn inn í þennan for­arpytt. „Þar sátu litlir karlar sem höt­uð­ust út í konur, þar á meðal hina hræði­legu Ingu Sæland. Klaust­urs­málið hefur verið mér erfitt en skömmin er þeirra, hvorki mín né Flokks fólks­ins. Fram­ganga þeirra Ólafs Ísleifs­sonar, Karls Gauta Hjalta­sonar og Halldórs Gunn­ars­sonar í okkar garð hefur valdið mér miklum von­brigðum. Nú er komið á dag­inn að þessir gömlu vagn­hestar Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa síður en svo reynst happa­fengur fyrir okkur í Flokki fólks­ins.“

Tilgangur fundarins á Klaustri augljós

Meg­in­þorri greinar Ingu bein­ist að fyrr­ver­andi sam­starfs­mönnum hennar, þeim Ólafi Ísleifs­syni og Karli Gauta Hjalta­syni, sem reknir voru úr þing­flokki Flokks fólks­ins í lok nóv­em­ber og starfa nú sem óháðir þing­menn. Hún segir menn­ina tvo ein­ungis hafa átt eitt erindi á Klaustur Bar þetta kvöld og að þeir hafi mæta­vel vitað hvað til stóð. „Þeir voru að svíkja flokk­inn sem kom þeim á þing. Er upp­víst varð hvað þarna hafði farið fram átti stjórn Flokks fólks­ins engan annan kost en að fara fram á afsögn þess­ara tveggja þing­manna.“

Inga segir að eng­inn stjórn­mála­flokkur hefði getað látið for­ystu­menn þing­flokks síns eins og Ólaf og Karl Gauta kom­ast upp með önnur eins svik og framin hafi verið á Klaust­ur­bar 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn án þess að slíkir stjórn­mála­menn hefðu verið látnir axla ábyrgð. „Með þá Ólaf og Karl Gauta áfram inn­an­borðs hefði þing­flokkur Flokks fólks­ins ekki aðeins verið óstarf­hæfur heldur einnig með­sekur í þeirri and­styggð sem fram fór á Klaustur Bar.“

Inga segir fyrrum félaga sína, þá Ólaf og Karl Gauta, nú vera farna í sögu­bæk­urnar sem fyrstu þing­menn lýð­veld­is­sög­unnar sem séu látnir sæta ábyrgð fyrir gjörðir sínar með því að þeir eru reknir úr sínum eigin flokki fyrir afbrot sín. „Engir nema þeir sjálfir frömdu þau ótrú­legu afglöp að fara til sam­sær­is­fundar við stjórn flokks póli­tískra and­stæð­inga Flokks fólks­ins á Klaustur Bar, stein­snar frá Alþing­is­hús­inu þann 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Öll heims­byggðin hefur þegar fengið að frétta af því í fjöl­miðlum hvað gerð­ist þar.“

Inga segir að fund­ur­inn á Klaust­ur­bar hafi haft skýrt mark­mið: að fá Ólaf og Karl Gauta til að ganga til liðs við Mið­flokk­inn. „Þess vegna sat gervöll stjórn Mið­flokks­ins á barnum Klaustri með þeim. Tilefni fund­ar­ins aug­ljóst, þessi „hættu­legi“ flokkur fátæka fólks­ins sem auð­mað­ur­inn Sig­mundur Davíð [Gunn­laugs­son] og félagar hans vildu fyrir hvern mun koma fyrir katt­ar­nef.“

Vildu fá vald yfir fjármunum flokksins

Inga segir að bæði Ólafur og Karl Gauti hafi gengið til liðs við flokk­inn haustið 2017, eftir að boðað hafði verið til kosn­inga í októ­ber­lok það ár. „Þeir komu að krás­unum sem aðrir höfðu mat­reitt ofan í þá í boði Flokks fólks­ins og fengu 1. sæti, hvor í sínu kjör­dæm­inu. Eftir að þeir voru kjörnir á þing var Ólafur gerður að þing­flokks­for­manni. Karl Gauti varð vara­for­maður þing­flokks.“

[box]Hún víkur svo að ásök­unum þeirra Ólafs, Karls Gauta og Halldórs Gunn­ars­son, oft­ast kenndum við Holt, um að fjár­mál Flokks fólks­ins hefðu verið í ólestri og að hún hafi haldið á öllum þráðum þeim tengdum. Karl Gauti sagði m.a. í grein í Morg­un­blað­inu um liðna helgi að hann gæti ekki sætt sig við að „opin­beru fé sé varið til launa­greiðslna í þágu nán­ustu fjöl­skyldu­með­lima stjórn­mála­leið­toga. Lands­lög kveða skýrt á um vand­aða með­ferð þeirra fjár­muna sem stjórn­mála­flokkar þiggja úr almanna­sjóðum og er mik­il­vægt að eftir þeim sé far­ið.“ Þar vís­aði hann til þess að Flokkur fólks­ins hefði ráðið son Ingu í launað starf.

Inga segir í grein sinni að ástæða þess að hún sé enn með pró­kúru og hafi lengi verið gjald­keri flokks­ins sam­hliða for­mennsku, sem hún sé ekki lengur, sé að finna í því að flokk­ur­inn sé ein­ungis tveggja og hálfs árs gam­all. Flokkur fólks­ins hafi barist fjár­hags­lega í bökkum eftir stofnun en búi nú við heil­brigðan rekstur, sé skuld­laus og slíkt sé afar fátítt meðal íslenskra stjórn­mála­flokka.

Hún segir Ólaf og Karl Gauta hafa ásamt Halldóri Gunn­ars­syni í Holti þrýst á að hún afsal­aði sér „pró­kúru og aðgangi að reikn­ingum flokks­ins og færði þetta vald þeim í hendur. Stjórn flokks­ins tók það ekki í mál enda alla farið að gruna þessa menn um græsku færi svo að þeir fengju vald yfir fjár­munum flokks­ins. Enda hlýtur öllum nú að vera ljóst að þeim var ekki treystandi. Okkur sem af ein­lægni störfum í Flokki fólks­ins hrýs hugur við til­hugs­un­inni um að þeir hefðu haft sitt fram.“.

Inga segir aumt að horfa upp á menn­ina þrjá „í hefnd­ar­leið­angri nú þar sem þeir reyna að sá fræjum efa­semda og tor­tryggni um fjár­mál Flokks fólks­ins um leið og þeir vita betur.“ Sonur hennar hafi verið ráð­inn eftir að hafa sinnt sjálf­boða­liða­störfum fyrir flokk­inn og áunnið sér traust með kunn­áttu og dugn­aði. Annað fólk í trún­að­ar­störfum innan Flokks fólks­ins en hún hefðu tekið ákvörðum um ráðn­ingu hans og Inga seg­ist hafa vikið af fundi stjórnar þegar ráðn­ingin var ákveðin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flokkurfólksins

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár