Tveir vinstriflokkar ætla að bjóða fram í öllum kjördæmum

Flokkur fólks­ins og Alþýðu­fylk­ingin ætla að bjóða fram til Alþingis í öllum kjör­dæmum. Formenn eru bjart­sýnir á kom­andi kosn­ingar. Alls ætla 11 fram­boð að bjóða fram í öllum kjör­dæmum.

Þorvaldur Þorvaldsson, formaður Alþýðufylkingarinnar, og Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, eru bæði bjartsýn á að flokkar þeirra njóti brautargengi í komandi kosningum.
Þor­valdur Þor­valds­son, for­maður Alþýðu­fylk­ing­ar­innar, og Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, eru bæði bjart­sýn á að flokkar þeirra njóti braut­ar­gengi í kom­andi kosn­ingum.

Nokkur ný fram­boð ætla að bjóða fram í öllum kjör­dæmum í næstu alþing­is­kosn­ingar. Meðal þeirra eru Flokkur fólks­ins og Alþýðu­fylk­ingin. Sú síð­ar­nefnda er reyndar ekki að bjóða fram í fyrsta sinn, en í síð­ustu kosn­ingum árið 2013 bauð flokk­ur­inn fram í Reykja­vík og hlaut 0,1 pró­sent atkvæða.

„Ætlaði að reisa skjaldborg en reisti bara gjaldborg“

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, segir vinn­una vera að fara vel af stað. Fyrsti opni kynn­ing­ar­fund­ur­inn var hald­inn 1. júlí og nú sé sú vinna framundan að full­gera stefn­urnar og úrlausn­irnar.

„Þetta er eini, sanni vel­ferð­ar­flokk­ur­inn sem er í boði í dag,“ segir Inga og bætir við að eng­inn annar flokkur boði alvöru vel­ferð­ar­sam­fé­lag. „Ekki einu sinni þessi upp­gjafar-Sam­fylk­ing sem ætl­aði að reisa skjald­borg en reisti bara gjald­borg.“

Inga segir Flokk fólks­ins ætla að koma í veg fyrir að nokk­urt barn verði svangt á Íslandi.

„Við erum að fá alveg ofboðs­lega góðar und­ir­tektir og fal­legar mót­tökur. Ég geri ekki annað en að búa til flokks­skír­teini og senda út á land og út um allt,“ segir hún. Raðað verður á lista í öllum kjör­dæmum, en Inga furðar sig á því að engin tíma­setn­ing sé komin fyrir kosn­ing­arnar.

„Það er frekar dap­urt,“ segir hún. „Við trúum því að þeir háu herrar, fjár­mála­ráð­herra og nýi for­sæt­is­ráð­herr­ann, standi við orð sín og það verði kosið í haust. Það verður skemmti­leg til­breyt­ing.“

Fjöldi sem kjósi VG af praktískum ástæðum

Alþýðu­fylk­ingin ætlar sér einnig að bjóða fram í öllum kjör­dæmum. Þor­valdur Þor­valds­son, for­maður flokks­ins, segir vinn­unni miða ágæt­lega. Upp­still­ing á lista sé komin vel áleiðis í flestum kjör­dæmum og von­ast sé til að birta lista upp úr næstu mán­að­ar­mótum.

Eins og áður segir hlaut Alþýðu­fylk­ingin ein­ungis 0,1 pró­sent atkvæða í síð­ustu þing­kosn­ingum. Þor­valdur segir ýmis­legt öðru­vísi nú.

„Smám saman sýnum við fram á að við erum ekki einnota fram­boð eins og sum önnur reyn­ast vera. Okkar til­vera byggir ekki á því að við viljum endi­lega inn á þing, heldur á heil­steyptri stefnu­skrá sem við tökum alvar­lega,“ segir hann. „Við vitum um mik­inn fjölda innan VG sem segir að það sé meira sam­mála okkur heldur en sínum flokki, en kjósi VG frekar af praktískum ástæðum.“

Alþýðu­fylk­ingin gengur út frá því að auk­inn ójöfn­uður og aukin fátækt stafi af mark­aðs­hyggju, mark­aðsvæð­ingu og kap­ít­al­ism­anum sem slíkum, að sögn Þor­valdar. „Ekki af sið­ferð­is­legum ástæðum eða vegna þess að það hafi óvart valist slæmir menn í for­ystu,“ segir hann. „Við ætlum að taka vopnin af auð­vald­inu og segja skilið við hagn­að­ar­drifið fjár­mála­kerfi sem rænir hund­ruð millj­arða út úr hag­kerf­inu á ári. Við viljum nota þá í þágu fólks­ins.“

Ellefu flokkar í framboði

Eins og staðan er í dag ætla alls ell­efu flokkar að bjóða fram fyrir kom­andi kosn­ingar. Fyrir utan sitj­andi flokka, Alþýðu­fylk­ing­una og Flokk fólks­ins, ætla stjórn­mála­flokk­arnir Dögun, Íslenska þjóð­fylk­ingin og Viðreisn einnig að bjóða fram í öllum kjör­dæmum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flokkurfólksins

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár