Íslenska þjóðfylkingin ætlar að bjóða fram til Alþingis í öllum kjördæmum

Íslenska þjóð­fylk­ingin ætlar að bjóða fram í öllum kjör­dæmum í kom­andi Alþing­is­kosn­ingum. Flokk­ur­inn leggur áherslu á herta inn­flytj­enda­lög­gjöf og bann við iðkun íslam. Formaður flokks­ins seg­ist ekki vilja tví­menn­ingu í land­inu. Aðal­fundur var í fyrra­dag.

Helgi Helgason formaður segir flokkinn hafa fengið fjölmargar stuðningsyfirlýsingar frá Íslendingum á Norðurlöndunum.
Helgi Helgason for­maður segir flokk­inn hafa fengið fjöl­margar stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingar frá Íslend­ingum á Norð­ur­lönd­unum.

Íslenska þjóð­fylk­ingin (ÍÞ) ætlar að bjóða fram til Alþingis í næstu kosn­ingum og eru listar farnir að mynd­ast í öllum kjör­dæmum. Flokk­ur­inn leggur mikla áherslu á herta inn­flytj­enda­lög­gjöf, bann við iðkun íslam og vill vinna gegn fjöl­menn­ingu.

Fjölmennur aðalfundur

ÍÞ hélt aðal­fund í fyrra­dag á Café Catalínu í Kópavogi þar sem for­maður og vara­for­maður var kos­inn. Að sögn Helga Helga­sonar for­manns mættu um 130 manns á fund­inn, þar af fóru 22 í flokks­stjórn.

„Vísir af listum eru þegar byrj­aðir að mynd­ast í öllum kjör­dæmum. Við vinnum að því í sumar og þeir verða til­búnir í haust. Þess vegna er það mjög ákveðið hjá okkur að klára það í sumar og setja upp kjör­dæm­is­ráð,“ segir Helgi í sam­tali við Kjarnann. Hann segir ákveðin grund­vall­ar­at­riði skilja ÍÞ frá stefnu­málum ann­arra flokka, eins og til dæmis að banna skóla­hald múslima, bygg­ingu moska og notkun búrka.

„Þessi stefna kemur fyrst og fremst fram vegna þess sem er að ger­ast í nágranna­lönd­unum. Þar smygla blaða­menn sér inn í moskur og afhjúpa þar sjar­ía­ráð þar sem er predikað hvernig það eigi að hundsa danskt sam­fé­lag og hvernig eigi að grýta fólk,“ segir Helgi og bætir við að Íslend­ingar á Norð­ur­lönd­unum hafi sett sig í sam­band við flokk­inn og lýsa yfir stuðn­ingi við stefn­una.

Vilja ekki tvímenningu

Í stefnu­skránni segir að ÍÞ vilji ein­ungis styðja við þá inn­flytj­endur sem aðlag­ast íslensku sam­fé­lagi.

„Við erum fyrst og fremst að hugsa um fólk sem hefur fengið rík­is­borg­ara­rétt,“ segir Helgi. „Það var til dæmis flott stelpa frá Ísafirði, inn­flytj­andi býst ég við, hvort hún dúxaði í skól­anum, og fór í upp­hlut á útskrift­ina. Það er bara þetta sem við erum að tala um. Við viljum ekki tví­menn­ingu. Að hér búi tvær þjóðir með sitt­hvora menn­ing­una.“

Spurður hvort Helgi sé sam­mála ummælum Donalds Trump, for­seta­fram­boðs­efni Repúblikana­flokks­ins í Banda­ríkj­unum, um að meina múslimum aðgöngu í landið segir hann að það hafi ekki verið rætt.

[quote font="0" align="right"]Það var til dæmis flott stelpa frá Ísafirði, inn­flytj­andi býst ég við, hvort hún dúxaði í skól­anum, og fór í upp­hlut á útskrift­ina. Það er bara þetta sem við erum að tala um. Við viljum ekki tví­menn­ingu.[/quote]

Stórefld löggæsla og aukin þátttaka í varnarmálum

Flokk­ur­inn hafnar alfarið aðild Íslands að ESB og TISA og vill Ísland úr Schengen og EES. Þá styður ÍÞ „kristin gildi og við­horf.“ Þá seg­ist flokk­ur­inn virða trú­frelsi, en hafni þó trú­ar­brögðum sem séu and­stæð stjórn­ar­skrá, sem sé til dæmis islam. Flokk­ur­inn vill herta inn­flytj­enda­lög­gjöf og að hæl­is­leit­endur verði sendir úr landi innan tveggja sól­ar­hringa ef þeir fái ekki sam­þykkt hæli á þeim tíma. Lögð er áhersla á stór­eflda lög­gæslu í land­inu og þátt­taka Íslands í varna­málum verði aukin. Flokk­ur­inn vill einnig að líf­eyr­is­sjóðs­kerfið verði end­ur­skoðað, lögum um fjár­mála­fyr­ir­tæki breytt og per­sónu­af­sláttur hækk­aður.

Flugvöllinn áfram í Vatnsmýri

Í grunn­stefnu ÍÞ segir að flokk­ur­inn „vilji standa vörð um full­veldi, sjálf­stæði og íslenska menn­ingu.“ Áhersla er lögð á ein­stak­lings­frelsi, aukið beint lýð­ræði, tak­mörkun rík­is­af­skipta, nátt­úru­vernd, frið­söm og hafta­laus milli­ríkja­við­skipti. Flokk­ur­inn seg­ist ætla að beita sér fyrir aukni jafn­vægi í byggðum lands­ins, mál­efnum fjöl­skyldna og heim­ila. Þá eru mál­efni öryrkja og aldr­aðra í önd­vegi. Flokk­ur­inn vill skulda­leið­rétt­ingu íbúða­lána, nýjan gjald­miðil og hækkun per­sónu­af­sláttar. Flug­völl­inn vilja flokks­menn hafa áfram í Vatns­mýri.

Hægri grænir urðu ÍÞ og Ásmundi boðið með

Guð­mundur Franklín Jónsson hætti sem for­maður Hægri grænna eftir síð­ustu Alþing­is­kosn­ingar og var Helgi kos­inn for­maður í kjöl­farið. Í febr­úar var það svo ákveðið að leggja þann flokk niður og stofna nýjan flokk á nýrri kenni­tölu, Íslensku þjóð­fylk­ing­una.

Í mars bauð ÍÞ Ásmundi Frið­riks­syni, þing­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, að ganga til liðs við flokk­inn. Ásmundur hafði þá lýst þeirri skoðun sinni að hann vildi skoða alvar­lega að loka landa­mær­unum og senda flótta­fólk aftur til síns heima. Féllu þau orð á þingi í til­efni þess að hæl­is­leit­andi hót­aði að kveikja í sér vegna óánægju með afgreiðslu Útlend­inga­stofn­unar á hæl­is­um­sókn hans.

„Með hlið­sjón af því að for­ysta Sjálf­stæð­is­flokks­ins leyfir ekki skoð­ana­frelsi og hefur for­dæmt eðli­leg og öfga­laus var­úð­ar­sjón­ar­mið Ásmundar, þá hvetur stjórnin Ásmund að ganga í okkar raðir og býður hann vel­kom­inn,“ sagði Helgi í yfir­lýs­ingu sem hann sendi frá sér í kjöl­farið.

Facebookhópur ÍÞ hefur rúm­lega 1.000 með­limi. Þar inni tjáir fólk sig mest um mál­efni tengd inn­flytj­endum, hæl­is­leit­endum eða islam. Útganga Bret­lands úr ESB er líka rædd þar og skoð­anir gegn Evr­ópu­sam­band­inu almennt eru áber­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...
Fréttirkosningar2016

Katrín stað­festir við­ræður við Framsókn og Sam­fylk­ingu

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, stað­festir að flokkur hennar hafi átt í óform­legum við­ræðum við Fram­sókn­ar­flokk og Sam­fylk­ingu um félags­legar áherslur sem flokk­arnir þrír geti sam­ein­ast um hvort sem er við stjórn­ar­myndun eða í stjórn­ar­and­stöðu. Hún segir ótíma­bært og ekki við hæfi að svara spurn­ingum um hvort þessir flokkar stefndu á stjórn­ar­mynd­ar­við­ræður við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Frá þessu er greint á mbl.is....
Fréttirkosningar2016

Segir að mis­tök við einka­væð­ingu hafi breytt bönkum í spila­víti

Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, segir að í síð­ustu einka­væð­ingu banka­kerf­is­ins upp úr alda­mót­unum hafi íslenskum bönkum verið breytt í spila­víti, í þeim spilað djarft og Ísland var lagt að veði. Síðasta spilið tap­að­ist og þjóðin sat eftir í rúst­unum. Sú saga megi ekki end­ur­taka sig nú þegar ríkið hugar á ný að sölu á eign­ar­hlutum sínum í bönkum. Þetta kemur...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár