Katrín staðfestir viðræður við Framsókn og Samfylkingu

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, stað­festir að flokkur hennar hafi átt í óform­legum við­ræðum við Fram­sókn­ar­flokk og Sam­fylk­ingu um félags­legar áherslur sem flokk­arnir þrír geti sam­ein­ast um hvort sem er við stjórn­ar­myndun eða í stjórn­ar­and­stöðu. Hún segir ótíma­bært og ekki við hæfi að svara spurn­ingum um hvort þessir flokkar stefndu á stjórn­ar­mynd­ar­við­ræður við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Frá þessu er greint á mbl.is.

Í Morg­un­blað­inu í morgun var full­yrt að Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, og Katrín hafi und­an­farna daga farið yfir mál og sett punkta á blað sem eigi að vera grund­völlur við­ræðna við Sjálf­stæð­is­flokk­inn um rík­is­stjórn­ar­sam­starf. Því væru Vinstri græn og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn að reyna að gera sig að val­kosti fyrir Sjálf­stæð­is­flokk í stjórn­ar­sam­starfi nú þegar form­legar við­ræður hans við Við­reisn og Bjarta fram­tíð um myndun rík­is­stjórnar eru langt komnar og búist er við að stjórn­ar­sátt­máli þeirra verði kynntur fyrir viku­lok.

Fram til þessa hefur mik­ill meiri­hluti þing­flokks Vinstri grænna lagst alfarið gegn því að mynda rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki.

Frétta­blaðið greindi hins vegar frá því í morgun að sátt hafi náðst í öllum þeim stóru málum sem steytti á í síð­ustu tveimur við­ræðu­lotum milli Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíð­ar. Þar segir að þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla verði haldin um hvort hefja eigi aðild­ar­við­ræður að Evr­ópu­sam­band­inu að nýju og að ákvæði verði í stjórn­ar­sátt­mála um að skoð­anir rík­is­stjórn­ar­flokk­anna á mál­inu séu afar mis­mun­andi. Þeim verði því í sjálf­vald sett hvernig þeir greiði atkvæði um þings­á­lyktun um atkvæða­greiðsl­una. Sam­kvæmt þessu mun málið því verða sett til þings­ins í formi þings­á­lykt­unar og án fulls stuðn­ings nýrrar rík­is­stjórn­ar. Það mun svo ákveða hvort atkvæða­greiðslan fari fram eður ei.

Óttarr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar, stað­festi í Morg­un­út­varp­inu á Rás 2 í morgun að við­ræður flokks hans, Við­reisnar og Sjálf­stæð­is­flokks væru lengra komnar en fyrri stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður. Allir flokk­arnir hafi gefið eitt­hvað eftir frá kosn­inum. Stjórn­ar­sátt­máli væri hins vegar ekki und­ir­rit­aður enn sem komið er.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...
Fréttirkosningar2016

Segir að mis­tök við einka­væð­ingu hafi breytt bönkum í spila­víti

Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, segir að í síð­ustu einka­væð­ingu banka­kerf­is­ins upp úr alda­mót­unum hafi íslenskum bönkum verið breytt í spila­víti, í þeim spilað djarft og Ísland var lagt að veði. Síðasta spilið tap­að­ist og þjóðin sat eftir í rúst­unum. Sú saga megi ekki end­ur­taka sig nú þegar ríkið hugar á ný að sölu á eign­ar­hlutum sínum í bönkum. Þetta kemur...
Fréttirkosningar2016

Bjarni kom­inn með umboð til að mynda rík­is­stjórn

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands boð­aði Bjarna Bene­dikts­son, for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins á Bessa­staði í dag og fól honum umboð til að mynda rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar. Bjarni verður for­sæt­is­ráð­herra í þeirri rík­is­stjórn tak­ist flokk­unum að mynda hana. Í yfir­lýs­ingu frá for­set­anum segir að Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, og Óttarr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar, hafi gengið á fund hans fyrr...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár