Ekki einhugur um ráðherraval innan Sjálfstæðisflokksins

Haraldur Benediktsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi.
Haraldur Bene­dikts­son, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu.

Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að hafa ekki orðið ráð­herra og að það hafi verið sam­eig­in­leg hug­mynd hans og Bjarna að gera Þórdísi Kolbrúnu Reyk­fjörð Gylfa­dóttur að ráð­herra, en hún skip­aði annað sætið í kjör­dæm­inu. Ástæðan, að sögn Haraldar, var að hann vissi að for­maður flokks­ins væri í vand­ræðum vegna kynja­halla. „Ég treysti Þórdísi afskap­lega vel og vænti mik­ils af henni. Það er góður bragur á því fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn að hafa haft tæki­færi til að velja hana sem ráð­herra,“ segir Haraldur við Morg­un­blaðið. Bjarni segir sjálfur að það hafi verið „lúx­us­vanda­mál“ að velja ráð­herra úr þing­flokki Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Tilkynnt var um ráð­herra­skipan nýrrar rík­is­stjórnar í gær­kvöldi. Í henni munu sitja ell­efu ráð­herrar. Bjarni Bene­dikts­­son verður for­sæt­is­ráð­herra, Þór­­dís Kol­brún Reyk­­fjörð Gylfa­dótt­ir verður ráð­herra ferða­mála, iðn­aðar og ný­­sköp­un­­ar, Guð­laug­ur Þór Þórð­ar­­­son verður ut­an­­rík­s­i­ráð­herra, Sig­ríður And­er­­sen verður dóms­­mála­ráð­herra, Jón Gunn­­ar­s­­son verður ráð­herra sam­­göng­u­­mála, byggða­mála, sveita­­stjórn­­­ar­­mála og Krist­ján Þór Júlí­us­­son verður mennta­­mála­ráð­herra. Þá verð­ur Unn­ur Brá Kon­ráðs­dótt­ir for­­seti Alþing­­is. Því verða ráð­herrar Sjálf­stæð­is­flokks­ins sex tals­ins en hinir tveir flokk­arnir í rík­is­stjórn­inni, Við­reisn og Björt fram­tíð, fá saman fimm ráð­herra.

Bene­dikt Jóhann­es­son verður fjár­mála­ráð­herra, Þor­steinn Víglunds­son félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dótt­ir, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, Ótt­arr Proppé heibrigð­is­ráð­herra og Björt Ólafs­dóttir umhverf­is­- og auð­linda­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...
Fréttirkosningar2016

Katrín stað­festir við­ræður við Framsókn og Sam­fylk­ingu

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, stað­festir að flokkur hennar hafi átt í óform­legum við­ræðum við Fram­sókn­ar­flokk og Sam­fylk­ingu um félags­legar áherslur sem flokk­arnir þrír geti sam­ein­ast um hvort sem er við stjórn­ar­myndun eða í stjórn­ar­and­stöðu. Hún segir ótíma­bært og ekki við hæfi að svara spurn­ingum um hvort þessir flokkar stefndu á stjórn­ar­mynd­ar­við­ræður við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Frá þessu er greint á mbl.is....
Fréttirkosningar2016

Segir að mis­tök við einka­væð­ingu hafi breytt bönkum í spila­víti

Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, segir að í síð­ustu einka­væð­ingu banka­kerf­is­ins upp úr alda­mót­unum hafi íslenskum bönkum verið breytt í spila­víti, í þeim spilað djarft og Ísland var lagt að veði. Síðasta spilið tap­að­ist og þjóðin sat eftir í rúst­unum. Sú saga megi ekki end­ur­taka sig nú þegar ríkið hugar á ný að sölu á eign­ar­hlutum sínum í bönkum. Þetta kemur...
Fréttirkosningar2016

Bjarni kom­inn með umboð til að mynda rík­is­stjórn

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands boð­aði Bjarna Bene­dikts­son, for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins á Bessa­staði í dag og fól honum umboð til að mynda rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar. Bjarni verður for­sæt­is­ráð­herra í þeirri rík­is­stjórn tak­ist flokk­unum að mynda hana. Í yfir­lýs­ingu frá for­set­anum segir að Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, og Óttarr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar, hafi gengið á fund hans fyrr...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár