Segir að mistök við einkavæðingu hafi breytt bönkum í spilavíti

Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, segir að í síð­ustu einka­væð­ingu banka­kerf­is­ins upp úr alda­mót­unum hafi íslenskum bönkum verið breytt í spila­víti, í þeim spilað djarft og Ísland var lagt að veði. Síðasta spilið tap­að­ist og þjóðin sat eftir í rúst­unum. Sú saga megi ekki end­ur­taka sig nú þegar ríkið hugar á ný að sölu á eign­ar­hlutum sínum í bönkum. Þetta kemur fram í ára­móta­grein Bene­dikts sem birt var í Morg­un­blað­inu í dag. Þar skrifa allir leið­togar stjórn­mála­flokka sem eiga full­trúa á þingi að venju grein.

Tilkynnt var um það í gær að form­legar við­ræður séu nú hafnar milli Við­reisnar, Bjartrar fram­tíðar og Sjálf­stæð­is­flokks um myndun nýrrar rík­is­stjórnar og að mál­efna­samn­ingur sé langt komin. Fyrir liggur að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, verði for­sæt­is­ráð­herra í slíkri stjórn en heim­ildir Kjarnans herma að allar líkur séu á því að Benedikt verði fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Eign­ar­hlutir rík­is­ins í bönkum, og sala á þeim, myndi þá heyra undir hans ráðu­neyti. Íslenska ríkið á nær allt hlutafé í Lands­bank­anum og allt hlutafé í Íslands­banka. Heimild er í fjár­lögum til að selja stóran hlut í Lands­bank­anum og allan hlut­inn í Íslands­banka.

Í grein Bene­dikts segir að versta ákvörðun stjórn­valda við einka­væð­ingu bank­anna í upp­hafi 21. ald­ar­innar hafi verið sú að hverfa frá stefnu um dreift eign­ar­hald og hand­velja þess í stað „kjöl­festu­fjár­festa“ sem litu á bank­ana sem fram­leng­ingu á eigin buddu. „Bankar sem áður höfðu verið þung­lama­legar þjón­ustu­stofn­anir skiptu út flestum „gam­al­mennum“ yfir fer­tugt og inn stigu djarf­huga menn sem vildu „láta pen­ing­ana vinna“. Bank­arnir hættu að vera þjónar atvinnu­lífs­ins og aðhalds­samir ráð­gjafar. Þess í stað urðu þeir beinir þátt­tak­endur í fyr­ir­tækjum og atvinnu­lífið skipt­ist í fylk­ingar sem tengd­ust bönk­unum og eig­endum þeirra. Bank­arnir voru eins og spila­víti, spilað var djarft og Ísland sett að veði. Síðasta spilið tap­að­ist og þjóðin sat eftir í rúst­unum. Nú þegar ríkið hugar að sölu á eign­ar­hlut sínum í bönk­unum verður að hafa þessa sögu í huga, því að hún má ekki end­ur­taka sig.“

Tilefni til að tala um hugmyndafræði

Í greinum hinna tveggja leið­togar flokk­anna sem eru í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum er einnig fjallað stutt­lega um þær við­ræður. Óttarr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar, segir að nið­ur­stöður kosn­ing­anna í haust hafi verið óljósar og erf­iðar úrlausnar. Rík­is­stjórnin hafi misst meiri­hluta sinn en stjórn­ar­and­staðan fékk ekki heldur meiri­hluta. Nýr flokkur hafi kom­ist á þing og bæst í hóp tveggja ann­arra nýrra flokka sem hafa bæst í íslensku stjórn­málaflór­una frá hruni. „Hvorki hægri arm­ur­inn né sá vinstri fengu skýran stuðn­ing heldur fengu flokkar sem skil­greina sig sem miðju­flokka, eða hvorki hægri né vinstri, góða kosn­ingu. Þetta er mikil upp­stokkun á íslensku stjórn­mála­lands­lagi og verður athygl­is­vert að sjá hvert fram­haldið verður. Breytt staða kallar á að unnið sé úr henni og lausnir fundnar. Það tókst að sam­þykkja þverpóli­tísk fjár­lög í des­em­ber þegar ekki var fyrir hendi tryggur meiri­hluti eins og venju­lega. Það að ekki sé hægt að halla sér að því sem hefur virkað hingað til kallar á eitt­hvað nýtt. Þótt staðan sé snúin fel­ast líka í henni óþekkt tæki­færi. Það er á ábyrgð okkar sem störfum í stjórn­málum að finna leiðir til að vinna saman landi og þjóð til gagns.“

Bjarni Bene­dikts­son segir einnig í sinni grein að þrátt fyrir hag­felldar aðstæður í efna­hags­málum Íslend­inga hafi nið­ur­stöður kosn­ing­anna reynst öllum flokkum flókið úrlausn­ar­efni. Leið­togar stjórn­mála­flokk­anna ásamt nýkjörnum for­seta hafi því þurft að takast á við stjórn­ar­myndun sem hefur tekið lengri tíma en þekkst hefur í ára­tugi. „Þótt æski­legt sé að slík staða komi ekki upp hefur hún þó gefið flokk­unum til­efni til að ræða saman um hug­mynda­fræði og mál­efni á öðrum nótum en venju­lega tíðkast í íslenskum stjórn­málum. Ef til vill hafa þau sam­töl leitt til þess að þing­inu auðn­að­ist að ljúka mik­il­vægum málum fyrir jól, þar á meðal fjár­lögum og brýnum breyt­ingum á líf­eyr­is­rétt­indum opin­berra starfs­manna, sem verða mik­il­vægt lóð á vog­ar­skál­arnar þegar kemur að því að mynda hér einn vinnu­markað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...
Fréttirkosningar2016

Katrín stað­festir við­ræður við Framsókn og Sam­fylk­ingu

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, stað­festir að flokkur hennar hafi átt í óform­legum við­ræðum við Fram­sókn­ar­flokk og Sam­fylk­ingu um félags­legar áherslur sem flokk­arnir þrír geti sam­ein­ast um hvort sem er við stjórn­ar­myndun eða í stjórn­ar­and­stöðu. Hún segir ótíma­bært og ekki við hæfi að svara spurn­ingum um hvort þessir flokkar stefndu á stjórn­ar­mynd­ar­við­ræður við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Frá þessu er greint á mbl.is....
Fréttirkosningar2016

Bjarni kom­inn með umboð til að mynda rík­is­stjórn

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands boð­aði Bjarna Bene­dikts­son, for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins á Bessa­staði í dag og fól honum umboð til að mynda rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar. Bjarni verður for­sæt­is­ráð­herra í þeirri rík­is­stjórn tak­ist flokk­unum að mynda hana. Í yfir­lýs­ingu frá for­set­anum segir að Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, og Óttarr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar, hafi gengið á fund hans fyrr...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár