Viðreisn boðar til stofnfundar

Myndin er af siðferðisfundi sem Viðreisn hélt nýverið.
Myndin er af sið­ferð­is­fundi sem Viðreisn hélt nýverið.

Stjórn­mála­aflið Viðreisn hefur boðað til stofn­fundar þriðju­dag­inn 24. maí. Þar verður kosin stjórn og stefnu­yf­ir­lýs­ing sam­þykkt. Í frétta­til­kynn­ingu frá flokknum segir að Viðreisn sé „flokkur allra þeirra sem vilja að unnið sé að almanna­hags­munum og gegn­sæi í póli­tísku starfi. Mark­miðin eru rétt­látt sam­fé­lag, stöðugt efna­hags­líf og fjöl­breytt tæki­færi. Áhersla er lögð á mark­aðs­lausnir, vest­ræna sam­vinnu, frelsi, jafn­rétti og jafnan atkvæð­is­rétt fyrir alla. Viðreisn vill einnig að þjóðin fái svo fljótt sem auðið er að greiða atkvæði um hvort ljúka skuli við­ræðum um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu."

Jórunn Frí­manns­dóttir, fyrrum borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins er ein þeirra sem und­ir­búið hefur stofnun Við­reisnar. Hún segir að flokk­ur­inn sé það frjáls­lynda stjórn­mála­afl sem lengi hafi verið kallað eftir. „Íslensk stjórn­mál hafa ein­kennst af sér­hags­muna­stefnu og sið­leysi sem komið hefur greini­lega í ljós upp á síðkastið. Þessa þróun verður að stöðva og end­ur­vekja þarf traust almenn­ings á full­trúum sem kosnir eru til að gæta hags­muna þjóð­ar­innar. Und­an­farin tvö ár höfum við haldið marga fjöl­sótta mál- og stefnu­mót­un­ar­fundi um helstu mál­efni sam­fé­lags­ins og það verður því spenn­andi þegar Viðreisn hellir sér á fullu inn í bar­átt­una.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár