Þingveturinn framundan: „Ár glataðra tækifæra“

Nýtt þing hefst þriðju­dag­inn 11. sept­em­ber. Kjarn­inn tók nokkra þing­menn úr mis­mun­andi flokkum tali um þing­vet­ur­inn framundan og áherslu­mál flokk­anna þetta árið. Í þetta skiptið var það Oddný Harð­ar­dóttir þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar.

Nýtt þing hefst fljót­­lega, nánar til­­­tekið þriðju­dag­inn 11. sept­­em­ber. Rík­­is­­stjórnin mun leggja fram fjár­­lög á fyrsta fundi, sem segja má að verði í raun fyrstu fjár­­lög þess­­arar rík­­is­­stjórnar þar sem vænt­an­­lega má sjá stefn­u­­mótun hennar þar sem fjár­­lög síð­­asta árs voru lögð fram sér­­stak­­lega seint vegna rík­­is­­stjórn­­­ar­slit­anna og kosn­­inga.

[links]Kjarn­inn tók nokkra þing­­menn úr mis­­mun­andi flokkum tali um þing­vet­­ur­inn framundan og áherslu­­mál flokk­anna þetta árið. Í þetta skiptið var það Oddný Harð­ar­dóttir þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar.

Hver talar fyrir stefnu ríkisstjórnarinnar?

„Fjár­lögin eru nátt­úru­lega mik­il­væg­asta plagg vetr­ar­ins og teng­ist líka því hver verður raun­veru­legur tals­maður rík­is­stjórn­ar­innar. Er það for­sæt­is­ráð­herr­ann, fjár­mála­ráð­herr­ann, er það sam­göngu­ráð­herr­ann eða er það kannski for­maður atvinnu­vega­nefndar? Hver er það sem er að tala fyrir stefnu rík­is­stjórn­ar­innar af því þetta hefur verið svo­lítið sund­ur­laust hingað til,“ segir Oddný.

Hún seg­ist telja að vet­ur­inn muni reyna á þol­rifin hjá bak­landi Vinstri grænna þegar for­sæt­is­ráð­herr­ann byrji að tala fyrir hönd rík­is­stjórn­ar­innar, ef skila­boðin halda áfram að vera svona út og suður eins og verið hefur í öllum málum.

Ávísun á miklar deilur

„Í fjár­laga­frum­varp­inu munum við sjá í texta og tölum stefnu rík­is­stjórn­ar­innar. Hvað á að gera á næsta ári og það skiptir nátt­úru­lega veru­legu máli hvað á að gera þar.“

Oddný seg­ist munu fylgj­ast með hvernig farið verði með heil­brigð­is­málin og hús­næð­is­málin og þess hvernig tekið verður á mál­efnum þeirra sem verst standa í sam­fé­lag­inu. Hvort að jöfn­un­ar­tækin verða nýtt. „Kjara­málin tengj­ast þessu líka. Það veltur svo­lítið á því hvernig tekið verður á þessum málum í frum­varp­inu hvernig síðan umræðan þró­ast við samn­inga­borðið af því hún er ekki bara á milli atvinnu­rek­enda og laun­þega. Það er ekki þannig. Það eru líka stjórn­völd sem stýra þessu. Ef að nið­ur­staðan verður sú að það verður ekk­ert komið til móts við þá sem verst standa en síðan farið að fullu fram með lækkun veiði­gjalda þá verður allt brjálað. Það er bara ávísun á miklar deildur.“

Mun þurfa málamiðlanir

Oddný seg­ist vona að stjórn­völd muni hlusta á ráð­legg­ingar um hvernig mæta eigi þeim sem ekki hafa fengið að njóta góð­ær­is­ins. Til að mynda ungt barna­fólk, öryrkjar og aldr­aðir og þeir sem þurfi að reiða sig ein­göngu á greiðslur Trygg­inga­stofn­unar. „Ég er að vona að það verði brugð­ist við þarna og menn sjái að auð­vitað verður að snúa þess­ari þróun við,“ segir Oddný sem seg­ist þó ekk­ert endi­lega bjart­sýn á að þetta tak­ist. „Þetta er ekki hægri póli­tík - þetta er ekki póli­tík Sjálf­stæð­is­flokks­ins þannig að það mun þurfa ein­hverja mála­miðlun þarna milli stjórn­ar­flokk­anna en sem jafn­að­ar­mann­eskja vona ég auð­vitað að það tak­ist.“

Skattahækkanir erfiðar þegar lægðin er komin

Oddný seg­ist hafa áhyggjur af stöð­unni í efna­hags­líf­inu. „Að allar þessar fjár­fest­ingar sem búið er að fara í til dæmis í ferða­þjónst­unni muni ekki borga sig og þá mun það bara lenda á almenn­ingi. Þetta höfum við veri að benda á alveg síðan vöxt­ur­inn byrj­aði að ferða­þjón­ust­unni. Að grein­inni hafi verið leyft að vaxta í skatta­styrkjaum­hverfi. Maður notar skatta­styrki í sprotaum­hverfi en ekki til að láta stærstu atvinnu­grein­ina vaxa um of.“ Hún seg­ist hrædd um að nið­ur­sveifla sé á leið­inni og að við höfum ekki hagað okkur nógu skyn­sam­lega. „Þó við hefðum átt að haga okkur eins og brennt barn sem forð­ast eld­inn, nýkomin upp úr efna­hags­hruni. Ég efast um að lægðin verði nálægt því jafn mikil en hættan er sú að þetta verði jafnað út með nið­ur­skurði í vel­ferð­ar­kerf­inu og mennta­kerf­inu. Það er svo erfitt að ætla að jafna þetta út með skatta­hækk­unum þegar lægðin er komin. Það eru þarna ár glat­aðra tæki­færa þar sem við hefðum átt að safna í sarp­inn. Við erum með örgjald­miðil og við höfum tekið út enda­lausar sveiflur. Á meðan við höfum krón­una þá munum við búa við þessar sveiflur og við hefðum átt að búa okkur undir nið­ur­sveifl­una í stað þess að gera það sem stjórn­völd hafa gert und­an­farið að lækka skatta og láta inn­við­ina veikj­ast.“

Nota skattkerfið til jöfnunar

Oddný segir helstu áherslu­mál Sam­fylk­ing­ar­innar í vetur snú­ast um hag barna, hag fatl­aðs fólks og stöðu á hús­næð­is­mark­aði. „Þetta eru þrjú stærstu málin sem Sam­fylk­ingin leggur áherslu á þennan þing­vet­ur­inn. Við höfum lagt fram til­lögur þess efnis aftur og aftur á hverju ári frá árinu 2013 að það sé bætt í barna­bætur og hús­næð­is­bætur og skatt­kerfið notað til jöfn­unar, en þró­unin hefur því miður verið á hinn bóg­inn eins og nýleg dæmi sýna og skýrslur. Það er miður.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

samfylking

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár