Karlmaður á sextugsaldri í haldi vegna skotárásar á bíl borgarstjóra

Lög­reglan hefur hand­tekið mann í tengslum við rann­sókn hennar á skotárásum á bíl Dags B. Egg­erts­sonar og á hús­næði Sam­fylk­ing­ar­innar.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík.
Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík. Mynd: Bára Huld Beck

Karl­maður á sex­tugs­aldri er í haldi Lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í tengslum við rann­sókn hennar á skemmdum sem voru unnar á bif­reið borg­ar­stjóra og hús­næði Sam­fylk­ing­ar­innar á dög­unum.

Í til­kynn­ingu frá lög­regl­unni segir að málið sé litið mjög alvar­legum augum og hefur rann­sókn þess verið í algjörum for­gangi hjá emb­ætt­inu.

[adspot]Kjarninn greindi frá því í vik­unni byssu­kúlur hafi fund­ist í hurð­inni á bíl í eigu fjöl­skyldu Dags B. Egg­erts­sonar borg­ar­stjóra um síð­ustu helgi.

Dagur sagði í við­tali við RÚV að það væri „höggvið ansi nærri manni þegar heim­ilið er ann­ars veg­ar, því þar býr ekki bara ég heldur fjöl­skylda mín og krakk­arn­ir“

[links]Borg­ar­stjóri sagð­ist í við­tal­inu hafa tekið eftir skot­götum á fjöl­skyldu­bif­reið­inni síð­asta laug­ar­dag, er hann var að ganga inn í bíl­inn. Lög­regla hafi síðan fengið bíl­inn í hend­ur, tekið hann til rann­sóknar og fundið kúlur inni í hurð­inni.

Dagur sagði enn fremur í við­tal­inu að ekki liggi nákvæm­lega ljóst fyrir hvenær skotið var á bíl­inn eða hvort bíll­inn hafi þá staðið fyrir utan heim­ili hans. Þessir hlutir væru á meðal þess sem lög­regla rann­saki nú.

Árás­irnar hafa verið for­dæmdar þverpóli­tískt.

Ólafur Guð­munds­son vara­borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem lét þau orð falla í athuga­semda­kerfi Vísis eftir að málið kom upp að borg­ar­stjóri ætti að byrja á sjálfum sér, bylt­ingin væri „komin heim“ og því ætti borg­ar­stjór­inn bara að taka, vék í gær úr þremur ráðum borg­ar­innar vegna orða sinna.

Ólafur mun ekki lengur vera vara­maður í skipu­lags- og sam­göngu­ráði, öld­unga­ráði og inn­kaupa- og fram­kvæmda­ráði Reykja­vík­ur­borg­ar. Þrátt fyrir það verður hann áfram vara­borg­ar­full­trúi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

samfylking

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár