Helga Vala og Kristrún í oddvitasætin hjá Samfylkingunni í Reykjavíkurkjördæmum

Fram­boðs­listar Sam­fylk­ing­ar­innar fyrir kom­andi Alþing­is­kosn­ingar voru sam­þykktir á alls­herj­ar­fundi í dag. Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir mun ekki leiða lista flokks­ins í SV kjör­dæmi heldur verður hún önnur í Reykja­vík suður.

Þær Helga Vala og Kristrún munu sitja í oddvitasætum Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmunum í komandi Alþingiskosningum.
Þær Helga Vala og Kristrún munu sitja í odd­vita­sætum Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum í kom­andi Alþing­is­kosn­ingum. Mynd: Samsett/Kjarninn

Þær Helga Vala Helga­dóttir og Kristrún Frosta­dóttir munu sitja í odd­vita­sætum á fram­boðs­listum Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum í kom­andi Alþing­is­kosn­ingum. Fram­boðs­listar flokks­ins fyrir kom­andi kosn­ingar voru sam­þykktir á alls­herj­ar­fundi Sam­fylk­ing­ar­fé­laga í Reykja­vík í dag. Alls greiddu 280 atkvæði og af þeim stað­festu 79 pró­sent kjós­enda list­ann, 17,5 pró­sent höfn­uðu honum og 3,5% skil­uðu auðu.

Helga Vala hefur verið þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður síðan árið 2017. Hún er auk þess for­maður vel­ferð­ar­nefndar. Kristrún er á ný á lista hjá flokknum en hún starf­aði áður sem aðal­hag­fræð­ingur Kviku banka.

Rósa Björk og Jóhann Páll næst á eftir oddvitunum

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir gekk í raðir Sam­fylk­ing­ar­innar fyrr á þessum þing­vetri eftir að hafa setið á þingi um nokk­urt skeið sem óháður þing­maður. Hún var kjörin á þing fyrir Vinstri­hreyf­ing­una – grænt fram­boð árið 2016. Hún hefur setið sem þing­maður suð­vest­ur­kjör­dæmis allt frá því hún var kjörin á þing og í til­kynn­ingu sem hún sendi frá sér í síð­ari hluta jan­úar á þessu ári sagð­ist hún vilja leiða flokk­inn í því kjör­dæmi. Í kom­andi kosn­ingum verður hún hins vegar önnur á lista Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður.

Nýr á lista Sam­fylk­ing­ar­innar kemur Jóhann Páll Jóhanns­son sem starfað hefur sem blaða­maður um ára­bil. Hann tekur annað sæti á lista flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður. Á eftir þeim Rósu Björk og Jóhanni Páli koma þau Viðar Egg­erts­son, leik­stjóri, í þriðja sæti í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður og Dagbjört Hákon­ar­dóttir, lög­fræð­ingur, í þriðja sæti í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður.

Fram­boðs­listar flokks­ins sem sam­þykktir voru í dag líta svona út:

Reykja­vík norður

1.sæti Helga Vala Helga­dóttir, alþing­is­maður

2.sæti Jóhann Páll Jóhanns­son, blaða­maður

3.sæti Dagbjört Hákon­ar­dóttir, lög­fræð­ingur

4.sæti Magnús Árni Skjöld, dós­ent

5.sæti Ragna Sig­urð­ar­dóttir, for­seti UJ og lækna­nemi

6.sæti Finnur Birg­is­son, arki­tekt

7.sæti Ásta Guðrún Helga­dóttir, ráð­gjafi

8.sæti Ásgeir Bein­teins­son, fyrrv. skóla­stjóri

9.sæti Magnea Mar­in­ós­dóttir, alþjóða­stjórn­mála­fræð­ingur

10.sæti Sigfús Ómar Hösk­ulds­son, rekstr­ar­fræð­ingur og þjálf­ari

11.sæti Sonja Björg Jóhanns­dóttir, deild­ar­stjóri í leik­skóla

12.sæti Hall­grímur Helgason, rit­höf­undur

13.sæti Alex­andra Ýr, rit­ari Sam­fylk­ing­ar­innar

14.sæti Hlal Jarrah, veit­inga­maður

15.sæti Inga Auðbjörg Straum­land, for­maður Sið­menntar og kaospilot

16.sæti Rúnar Geir­munds­son, fram­kvæmd­ar­stjóri

17.sæti Kolbrún Birna Hall­gríms­dóttir, lag­ana­emi

18.sæti Ólafur Örn Ólafsson, veit­inga­maður

19.sæti Sólveig Ásgríms­dóttir, sál­fræð­ingur og for­maður 60+

20.sæti Vil­hjálmur Þor­steins­son, hug­bún­að­ar­hönn­uður

21.sæti Heiða Björg Hilm­is­dóttir, vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar

22.sæti Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra

Reykja­vík suður:

1.sæti Kristrún Mjöll Frosta­dóttir, hag­fræð­ingur

2.sæti Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, alþing­is­maður

3.sæti Viðar Egg­erts­son, leik­stjóri og verð­andi eldri borg­ari

4.sæti Vilborg Odds­dóttir, félags­ráð­gjafi

5.sæti Birgir Þór­ar­ins­son, tón­list­ar­maður

6.sæti Aldís Mjöll Geirs­dóttir, lög­fræð­ingur

7.sæti Gunnar Alex­ander Ólafsson, heilsu­hag­fræð­ingur

8.sæti Ellen Calmon, borg­ar­full­trúi og for­maður SffR

9.sæti Viktor Stef­áns­son, stjórn­mála­hag­fræð­ingur

10.sæti Elín Tryggva­dóttir, hjúkr­un­ar­fræð­ingur

11.sæti Hlynur Már Vil­hjálms­son, starfs­maður á frí­stunda­heim­ili

12.sæt Margret Adams­dóttir, leik­skóla­kenn­ari

13.sæti Axel Jón Ellen­ar­son, graf­ískur hönn­uður

14.sæti Ingi­björg S. Guð­munds­dóttir, hjúkr­un­ar­fræð­ingur

15.sæti Jakob Magn­ús­son, veit­inga­maður

16.sæti Ingi­björg Gríms­dóttir, þjón­ustu­full­trúi

17.sæti Jónas Hreins­son, raf­iðn­að­ar­maður

18.sæti Sólveig Jón­as­dóttir, kynn­ing­ar­full­trúi Sameykis

19.sæti Hildur Kjart­ans­dóttir, mynd­list­ar­maður

20.sæti Ellert B. Schram, fyrr­ver­andi alþing­is­maður

21.sæti Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir, fyrr­ver­andi alþing­is­maður

22.sæti Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár