Samfylkingin ekki mynduð til að vera „hatrammasti stjórnarandstöðuflokkurinn“

Fyrr­ver­andi þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar segir að honum hafi leiðst átökin í stjórn­mál­unum og leik­irnir kringum þau – enda alltaf verið sátt­fús. Kannski of. „Ég var hins vegar reynslu­lít­ill og gerði mis­tök sem kost­uðu mig starfið, býst ég við.“

Guðmundur Andri Thorsson, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar.
Guð­mundur Andri Thorsson, fyrr­ver­andi þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Guð­mundur Andri Thorsson fyrr­ver­andi þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar segir að árið 2021 hafi verið við­burða­rýrt ár. „Það ein­kennd­ist af von­brigðum og ósigrum sem við þurfum að læra af í mínum flokki; en megum ekki fest­ast í eins og íslenskum vinstri­mönnum hættir til að gera. Sam­fylk­ingin var ekki mynduð til að vera hat­rammasti stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ur­inn með ósveigj­an­leg­ustu kröf­urnar. Hún var mynduð til að stjórna. Og semja. Og laða saman. Og skapa.“

Þetta segir hann í stöðu­upp­færslu á Facebook. Guð­mundur Andri var í öðru sæti í Suð­vest­ur­kjör­dæmi fyrir Sam­fylk­ing­una en komst ekki inn á þing í síð­ustu kosn­ingum. Hann vék sæti fyrir Þórunni Svein­bjarn­ar­dóttur sem nú er komin inn á þing.

Greinir hann frá því að dag­inn eftir að hann datt út af þingi hafi dauðan hval rekið á fjör­una í grennd við hann á Álfta­nesi. „Einhver reyndi að telja mér trú um að þetta væri góðs viti en sú tíð er löngu liðin að dauður hvalur tákni annað en dauðan hval – sem þarf að losna við. Í mínum augum var þetta tákn um stöðu mína í póli­tík­inni – ég var strand­aður – og áminn­ing um að ég þyrfti að svip­ast um eftir öðru að gera.“

Gerði mistök sem kostuðu hann starfið

Guð­mundur Andri segir að honum hafi fund­ist gaman í póli­tík­inni. „Félags­veran í mér naut sam­skipt­anna við fólk, mér fannst gaman að setja mig inn í mál og vinna þau í nefndum og mér fannst gaman halda ræður og skrifa greinar og vera tals­maður sjón­ar­miða sem ég trúi ein­læg­lega á, mér fannst gaman að skoða mann­eskj­urnar í þessum heimi, horfa í návígi hvernig völd og áhrif virka, hvernig fólk beitir þeim – og beitir þeim ekki.

Ég naut sam­starfs­ins við aðra, þvert á flokka, en mér leidd­ust átökin og leik­irnir kringum þau, enda alltaf verið sátt­fús. Kannski of. Ég var hins vegar reynslu­lít­ill og gerði mis­tök sem kost­uðu mig starfið, býst ég við. Þannig gengur það,“ skrifar hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár