Flestar athugasemdir við breytta skipan ráðuneyta snúa að menntamálum

Mennta­mála­stofnun og stjórn­endur fram­halds­skóla eru meðal þeirra sem lýsa yfir áhyggjum með breytta skipan ráðu­neyta í Stjórn­ar­ráði Íslands. Þá lýsir Rauði kross­inn yfir áhyggjum á til­færslu þjón­ustu við umsækj­endur um alþjóð­lega vernd.

Með stjórn­ar­sátt­mála end­ur­nýj­aðs rík­is­stjórn­ar­sam­starfs sem kynntur var fyrir ára­mót fjölgar ráðu­neytum úr tíu í tólf og fjöl­margir mála­flokkar fær­ast milli ráðu­neyta. Í umsögnum um breytta skipan ráðu­neyta snú­ast margar að flutn­ingi verk­efna frá mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu til ráðu­neyta á borð við félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neytis og háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytis.

Staða framhaldsskólans þurfi að vera skýr

Magnús Þor­kels­son, skóla­meist­ari Flens­borg­ar­skól­ans, segir að í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu for­sæt­is­ráð­herra um breytta skipan ráðu­neyta sjái hann ekki með góðu móti að hugsað hafi verið til enda hver staða fram­halds­skól­ans sé með breyt­ing­unni. Þá segir hann það baga­legt að fram­halds­skól­inn sé ekki nefndur á nafn í þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni.

„Það virð­ist sem eitt ráðu­neyti taki á mál­efnum barna upp að 18 ára aldri og þar með þeim skóla­stigum sem því ald­urs­bili til­heyra,“ segir í umsögn Magnúsar, sem sendir hana í sam­ráði við Kristin Þor­steins­son, for­mann Skóla­meist­ara­fé­lags­ins og skóla­meist­ara FG, sem og í sam­ráði við nokkurn hóp skóla­meist­ara.

[adspot]Í umsögn­inni er spurt um nem­endur 18 ára og eldri sem stunda nám á fram­halds­skóla­stigi og vísað í tölur frá Hag­stof­unni sem sýna að árið 2019 voru 62% þeirra nem­enda sem voru skráð í nám í fram­halds­skólum 18 ára eða eldri. „Staða fram­hald­s­kól­ans þarf að vera skýr í svona plaggi og ljóst undir hvaða ráð­herra skóla­stigið heyrir,“ segir í umsögn­inni.

Gagnýnir flutning framhaldsfræðslu til félags- og vinnumarkaðsráðuneytis

Mennta­mála­stofnun gerir athuga­semd við fyr­ir­hug­aðan flutn­ing mála­flokks­ins fram­halds­fræðsla til félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neytis, sem Guð­mundur Ingi Guð­brans­son, fyrr­ver­andi umhverf­is­ráð­herra, stýrir nú. Stofn­unin telur að með því sé verið að auka lík­urnar á fjar­lægð og aðskiln­aði frá hinu almenna mennta­kerfi. „Mun þetta auka óvissu ein­stak­lingar um það hvort námið verði metið til ein­inga; hvernig nám sem á sér stað á einum stað muni opna leiðir inn í önnur mennt­un­ar­úr­ræði,“ segir í umsögn­inni.

[links]Mennta­mála­stofnun bendir á að á öllum Norð­ur­löndum heyrir fram­halds­fræðslan undir ráðu­neyti mennta­mála og stjórn­sýslu­stofn­anir þeirra ráðu­neyta. Mennta­mála­stofnun mun áfram heyra undir mennta- og barna­mála­ráðu­neyti og er það mat stofn­un­ar­innar að ef færa á stjórn­sýslu­lega ábyrgð fram­halds­fræðslu yfir til ann­ars ráðu­neytis er hætt við að núver­andi hlut­verk stofn­un­ar­innar varð­andi þennan mála­flokk muni riðl­ast.

Meðal ann­arra athuga­semda má nefna Félag háskóla­mennt­aðra starfs­manna Stjórn­ar­ráðs­ins sem segir í umsögn sinni að félag­inu sé ekki kunn­ugt um að þekk­ing sér­fræð­inga Stjórn­ar­ráðs­ins hafi verið nýtt sem skyldi í und­ir­bún­ingi þeirra breyt­inga á skipan ráðu­neyta með breyttri skipan ráðu­neyta. Félagið bendir á mik­il­vægi þess að stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd beini því til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins að við­haft verði full­nægj­andi sam­ráð við sér­fræð­inga Stjórn­ar­ráðs­ins um inn­leið­ingu fyr­ir­hug­aðra breyt­inga.

Samningur Rauða krossins við ráðuneyti og Útlendingastofnun brostinn vegna tilfærslu

Athuga­semdir snúa ekki ein­ungis að mennta­málum. Í umsögn Rauða kross­ins segir að félagið hafi áhyggjur tengdar kynn­ingu og fram­kvæmd á til­færslu þjón­ustu við umsækj­endur um alþjóð­lega vernd frá dóms­mála­ráðu­neyt­inu til félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neyt­is­ins þar sem hún hefur áhrif á gild­andi samn­ing Rauða kross­ins við dóms­mála­ráðu­neytið og Útlend­inga­stofnun og þar með á allt að 600 not­endur þjón­ust­unnar sem eru umsækj­endur um alþjóð­lega vernd á Íslandi.

Fram kemur í umsögn­inni að dóms­mála­ráðu­neytið hafi gefið þá skýr­ingu að með til­færslu hluta verk­efn­is­ins til ann­ars ráðu­neytis séu for­sendur samn­ings­ins brostnar og hefur ákveðið að fram­lengja ekki samn­ingnum út febr­úar 2023 eins og heim­ilt var að gera en hann rennur að óbreyttu út í lok næsta mán­aðar.

Rauði kross­inn hefur talað fyrir því að þjón­usta við umsækj­endur um alþjóð­lega vernd verði ekki á for­ræði Útlend­inga­stofn­unar en áhyggjur félags­ins af flutn­ingi til félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neyt­is­ins snú­ast fyrst og fremst að því að umræddar breyt­ingar og sá skammi tími sem ætl­aður er í þær muni valda rofi á þjón­ustu til umsækj­enda um alþjóð­lega vernd og að verð­mæt reynsla og yfir­grips­mikil þekk­ing og gagna­grunnar sem Rauði kross­inn hefur byggt upp frá árinu 2014 á grund­velli samn­inga félags­ins við dóms­mála­ráðu­neytið glat­ist við til­færsl­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár