Samningur um hagsmunagæslu hælisleitenda í óvissu

Eftir að mál­efnum útlend­inga var skipt á milli tveggja ráðu­neyta í nýrri rík­is­stjórn lítur dóms­mála­ráðu­neytið svo á að for­sendur fyrir fram­leng­ingu samn­ings við Rauða kross­inn um þjón­ustu og aðstoð við hæl­is­leit­endur séu brostnar.

Rauði kross Íslands sinnir hagsmunagæslu og annarri þjónustu við hælisleitendur á meðan þeir bíða úrlausn sinna mála í stjórnkerfinu.
Rauði kross Íslands sinnir hags­muna­gæslu og annarri þjón­ustu við hæl­is­leit­endur á meðan þeir bíða úrlausn sinna mála í stjórn­kerf­inu. Mynd: Bára Huld Beck

Þjón­ustu­samn­ingur dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins og Útlend­inga­stofn­unar við Rauða kross Íslands um aðstoð og þjón­ustu við hæl­is­leit­endur verður ekki fram­lengdur líkt og heim­ild er fyrir er hann rennur út í lok febr­úar næst­kom­andi.

Með nýjum for­seta­úr­skurði milli ráðu­neyta hefur þjón­usta við umsækj­endur um alþjóð­lega vernd verið flutt frá dóms­mála­ráðu­neyti (inn­an­rík­is­ráðu­neyti) til félags­mála­ráðu­neytis. Félags­leg aðstoð fær­ist þar með frá dóms­mála­ráðu­neyt­inu og „með vísan til þess hafa for­sendur breyst og eðli máls­ins sam­kvæmt mun dóms­mála­ráðu­neytið ekki ganga frá bind­andi samn­ingi um þjón­ust­una,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið.

Rauði kross­inn hefur sinnt stuðn­ingi og hags­muna­gæslu fyrir hæl­is­leit­endur síðan 2014 þegar samn­ingur þess efnis var fyrst und­ir­rit­aður. Samkvæmt núgild­andi samn­ingi, sem gerður var árið 2018 í kjöl­far foraug­lýs­ingar á EES-svæð­inu, sinna sam­tökin félags­legum stuðn­ingi við hæl­is­leit­endur og gæta hags­muna þeirra á meðan þeir bíða nið­ur­stöðu sinna mála eða flutn­ings úr landi. Einnig sinnir Rauði kross­inn rétt­ar­að­stoð og tals­manna­þjón­ustu vegna umsókna um vernd á lægra og æðra stjórn­sýslu­stigi.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Rauða krossi Íslands eru um 600 hæl­is­leit­endur í hæl­is­kerf­inu. Það af eru um 400 mann­eskjur með umsókn um vernd í gangi, ýmist hjá Útlend­inga­stofnun eða kæru­nefnd útlend­inga­mála, og um 200 hafa fengið nið­ur­stöðu í mál sín og bíða flutn­ings úr landi.

[adspot]

Fimmtán lög­fræð­ingar starfa hjá Rauða kross­inum og sinna lög­fræði­þjón­ustu við þennan stóra hóp fólks. Samtals starfar 21 starfs­maður á grund­velli þjón­ustu­samn­ings­ins hjá sam­tök­unum enda snýst þjón­ustan ekki aðeins um lög­fræði­að­stoð heldur einnig félags­legan stuðn­ing af ýmsu tagi.

Markmið samn­ings­ins er að tryggja „sjálf­stæða og óháða hags­muna­gæslu, þ.á.m. rétt­ar­að­stoð til allra umsækj­enda í þeim til­gangi að jafn­ræðis og skil­virkni sé gætt, allir umsækj­endur fái vand­aða máls­með­ferð, við­eig­andi þjón­ustu og eigi greiðan aðgang að stuðn­ingi og upp­lýs­ingum. Áhersla er lögð á að þessi þjón­usta sé veitt með þeim hætti að ein­falt sé fyrir umsækj­endur að leita eftir henni og þeir þurfi ekki að ganga á milli þjón­ustu­að­ila“.

Hvað tekur við?

Þjón­ustu­samn­ing­ur­inn var síð­ast fram­lengdur 24. febr­úar í ár, aðeins örfáum dögum áður en hann rann út. Sú fram­leng­ing gildir til 28. febr­úar næst­kom­andi en heim­ild er í samn­ingnum til að fram­lengja hann einu sinni til við­bótar. Að öðrum kosti þarf, að því er Kjarninn kemst næst, að bjóða verk­efnið út að nýju. Und­ir­bún­ingur og fram­kvæmd slíks útboðs getur reynst tíma­frek og þá má einnig búast við að færsla svo við­kvæmra verk­efna sem mál hæl­is­leit­enda eru á milli aðila, verði það nið­ur­staða stjórn­valda, taki drjúgan tíma. Það er hins vegar ekki mik­ill tími til stefnu. Samn­ing­ur­inn rennur að óbreyttu út eftir tvo og hálfan mánuð. Enn er ekki ljóst hvað taki við.

Í svari dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans segir að gengið sé „út frá því að þjón­usta við umsækj­endur um vernd verði óbreytt meðan unnið er að inn­leið­ingu breyt­ing­anna“.

Rof verði ekki á þjónustu

Samkvæmt núgild­andi samn­ingi á ákvörðun um fram­leng­ingu að liggja fyrir þremur mán­uðum áður en samn­ing­ur­inn rennur út eða fyrir nóv­em­ber­lok. Þing­kosn­ingar fóru fram í sept­em­ber og ný rík­is­stjórn, með ráðu­neytum og ýmsum til­færslum verk­efna, tók ekki við fyrr en í lok nóv­em­ber. Ákvörðun um hvort stjórn­völd hefðu hug á því að fram­lengja samn­ing­inn lá því ekki fyrir um mán­aða­mótin.

Atli Viðar Thorsten­sen, sviðs­stjóri á alþjóða­sviði Rauða kross­ins, segir við Kjarnann að sam­tökin leggi fyrst og fremst áherslu á að ekki verði rof í þjón­ustu við hæl­is­leit­endur, sem séu fólk í við­kvæmri stöðu, hverjum svo sem verði falið að veita hana í fram­tíð­inni. Rauði kross­inn hafi lagt til að samn­ing­ur­inn yrði end­ur­nýj­aður einu sinni til við­bótar til að nægur tími gæf­ist til að und­ir­búa til­færslu þjón­ust­unnar, ef slíkt yrði nið­ur­staða stjórn­valda. Atli von­ast til þess að fram­haldið skýrist síðar í vik­unni svo allri óvissu verði eytt.

Fleiri sækja um hæli og fleiri fá vernd

Segja má að Rauði kross Íslands hafi talað fyrir bættu kerfi og þjón­ustu við mót­töku hæl­is­leit­enda allt frá því að fyrsti hæl­is­leit­and­inn kom hingað til lands á níunda ára­tug síð­ustu aldar. Fyrir um ára­tug ákváðu stjórn­völd að hæl­is­leit­endur ættu rétt á end­ur­gjalds­lausri lög­fræði­að­stoð. Sjálf­stætt starf­andi lög­menn með mis­mikla þekk­ingu á mál­efnum flótta­fólks sáu fyrst um sinn um þjón­ust­una sem Útlend­inga­stofnun greiddi fyrir ákveðið marga klukku­tíma – oft án sam­hengis við eðli og umfang máls. Raunin varð því sú að gæði þjón­ust­unnar voru afar mis­mun­andi.

Rauði kross­inn benti á að byggja yrði upp sann­gjarnt og skil­virkt kerfi hvað þetta varðar og bauðst til að taka verk­efnið að sér. Það varð úr og und­an­farin ár hefur þjón­ustan verið hjá sam­tök­unum sam­kvæmt samn­ingi við stjórn­völd.

Á þessum tíma hefur umsóknum fólks um alþjóð­lega vernd hér á landi fjölgað mikið. Máls­með­ferð­ar­tími hæl­is­um­sókna hefur engu að síður styst veru­lega og hlut­fall þeirra sem fá vernd stór­auk­ist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár