Virkja viðbragðsáætlun á hættustig vegna yfirálags á landamærunum

353 ein­stak­linga hafa sótt um alþjóð­lega vernd frá 1. jan­úar síð­ast­liðnum. 107 manns eru með tengsl við Úkraínu og hafa sótt um slíka vernd frá því inn­rás Rússa hófst þar í landi.

Alls hafa 107 ein­stak­lingar með tengsl við Úkraínu sótt um alþjóð­lega vernd á Íslandi síðan 24. febr­úar, að því er fram kemur í til­kynn­ingu frá lög­regl­unni.

Tölurnar eru birtar með fyr­ir­vara um að fleiri umsóknir hafi borist á vinnslu­tíma þess­arar til­kynn­ingar en lög­reglan hefur fundið fyrir umtals­verðir aukn­ingu á umsóknum um alþjóð­lega vernd frá því að stríð braust út í Úkraínu. Heild­ar­fjöldi ein­stak­linga sem hafa sótt um vernd frá 1. jan­úar 2022 til dags­ins í dag er 353, sam­kvæmt til­kynn­ing­unni.

Rík­is­lög­reglu­stjóri hefur því virkjað við­bragðs­á­ætlun vegna yfi­r­á­lags á landa­mærum frá óvissu­stigi yfir á hættu­stig.

Viðbragðsáætlunin virkjuð til þess að taka sem best á móti stærri hópum

„Með virkjun við­bragðs­á­ætl­unar á hættu­stig eru virkjuð þau tæki, tól og aðstoð til þess að taka sem best á móti stærri hópum af fólki í neyð. Við­bragðs­á­ætl­unin gerir til dæmis ráð fyrir þeim mögu­leika að opna fjölda­hjálp­ar­stöð.

Ljóst er að þeim ein­stak­lingum sem leita skjóls á Íslandi mun fjölga veru­lega vegna aðstæðna í Úkraínu og er virkjun þessa hættu­stigs liður í því að taka sem best á móti þessum hópi og öðru fólki sem óskar eftir alþjóð­legri vernd. 44.grein útlend­inga­laga hefur verið virkjuð sem að auð­veldar ferlið við mót­töku á þeim ein­stak­lingum sem hafa tengsl við Úkraínu,“ segir í til­kynn­ingu lög­regl­unnar.

Dómsmálaráðherra virkjaði 44. grein útlendingalaga

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra ákvað á dög­unum að virkja 44. grein útlend­inga­laga vegna fjölda­flótta í kjöl­far inn­rásar Rúss­lands í Úkraínu. Þessi ákvörðun var í sam­ræmi við þá ákvörðun ESB að virkja sams­konar úrræði um tíma­bundna vernd vegna fjölda­flótta.

„Móttaka flótta­manna hér­lendis mun ná til sömu skil­greindu hópa og þeirra sem ESB hefur ákvarðað. Þessi aðferð er fyrst og fremst til þess að geta veitt þeim sem flýja Úkraínu skjóta og skil­virka aðstoð, nánar til­tekið tíma­bundna vernd, án þess að mót­takan og aðstoðin verði vernd­ar­kerfi Íslands ofviða,“ sagði í til­kynn­ingu stjórn­valda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár