Margar kvartanir byggðar „á misskilningi“

UN Women lýsa yfir þungum áhyggjum af aðstæðum ein­stak­linga sem hingað hafa leitað að skjóli og eru hluti af búsetu­úr­ræði ÚTL á Ásbrú. Samkvæmt ÚTL hefur aðstaðan verið í stöðugri end­ur­skoðun und­an­farna rúma tvo mán­uði.

Útlend­inga­stofnun (ÚTL) hafa borist kvart­anir varð­andi aðbúnað fyrir fólk á flótta og umsækj­endur um alþjóð­lega vernd á Ásbrú í Reykja­nesbæ frá ein­stak­lingum sem láta sig mál þeirra sem þar búa varða en ekki frá íbú­unum sjálfum nema í einu til­viki. Margt af því sem bent hefur verið á byggir á mis­skiln­ingi, að því er fram kemur í svari ÚTL við fyr­ir­spurn Kjarnans.

UN Women á Íslandi greindi frá því í yfir­lýs­ingu í síð­ustu viku að þeim hefði borist til eyrna þungar áhyggjur fólks af aðbún­aði og aðstæðum ein­stak­linga sem hingað hafa leitað að skjóli og eru hluti af búsetu­úr­ræði ÚTL á Ásbrú.

Heyrðu að ungar stúlkur flýðu á milli herbergja og jafnvel út úr húsinu

„Samkvæmt þeim upp­lýs­ingum sem UN Women á Íslandi hafa undir höndum eru aðstæður á Ásbrú með öllu óvið­un­andi. Eldhúsin eru tóm, það vantar leir­tau, potta og pönnur og engin rúm­föt á staðnum. Ungar stúlkur eru að flýja á milli her­bergja og jafn­vel út úr hús­inu vegna áforma stjórn­valda um að bæta ókunn­ugum her­berg­is­fé­lögum í her­bergi þeirra. Umsjón­ar­menn hafa verið að birt­ast fyr­ir­vara­laust inn í her­bergin til að kanna aðstæður fyrir nýja og ókunn­uga her­berg­is­fé­laga.

Öllum er blandað saman og ekki virð­ist vera kynja­skipt­ing á milli húsa eða hæða. Konur og börn eru þannig í næsta her­bergi við ókunn­uga karl­menn. Strangar reglur eru á svæð­inu um heim­sóknir – til að vernda öryggi íbúa, en á sama tíma hamlar það eft­ir­liti óháðra aðila til að kanna hvort aðbún­aður sé við­eig­andi og verk­lag í lagi,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

[adspot]

Stofnunin uppfyllir allar lágmarkskröfur sem gerðar eru til reksturs hótela

Kjarninn sendi fyr­ir­spurn á ÚTL þar sem spurt var hvort þessi lýs­ing hjá UN Women væri rétt. Í svar­inu segir að alla jafna dvelji ein­stæðir karl­menn ekki í sama hús­næði og ein­stæðar konur en örfáar und­an­tekn­ingar hafi verið á því síð­ustu vikur þar sem úrræðin fyrir karl­menn hafi verið full­nýtt.

„Í þessum til­fellum sem þeir hafa dvalið í úrræði með konum er bæði örygg­is­vörður í hús­næð­inu allan sóla­hring­inn og starfs­menn stofn­un­ar­innar á dag­inn. Þá deila ein­stak­lingar af gagn­stæðu kyni ekki her­bergi ef ekki eru fjöl­skyldu­tengsl þeirra á milli.

Öll búsetu­úr­ræði sem Útlend­inga­stofnun rekur eru með her­bergjum líkt og á hót­elum eða gisti­heim­ilum og upp­fyllir stofn­unin allar lág­marks­kröfur sem gerðar eru til rekst­urs hót­ela og ann­arra gisti­rýma, þá eru þau tekin út af þar til bærum eft­ir­lits­að­ilum með reglu­legu milli­bili,“ segir í svar­inu.

Enginn kemur inn sem ekki á erindi

Varðandi búnað þá fá allir umsækj­endur sem koma í þjón­ustu stofn­un­ar­innar afhentan start­pakka sem í er: diskur, glas, skál, hnífa­pör, pottur, panna, sæng, koddi og lak. Sængin og kodd­inn eru sam­bæri­leg því sem er notað á sjúkra­húsum, það er ekki eru notuð rúm­föt heldur skulu sængin og kodd­inn þvegin reglu­lega. Það sem start­pakk­inn inni­heldur til­heyrir þeim sem við honum tekur og geyma umsækj­endur þessa hluti alla jafna ekki í sam­eig­in­legum eld­húsum/rýmum heldur inni á sínum her­bergjum. Önnur eld­un­ar­á­höld eru aðgengi­leg öllum í sam­eig­in­legum eld­húsum, segir í svar­inu.

Samkvæmt ÚTL eru úrræði stofn­un­ar­innar öll aðgangs­stýrð, það er eng­inn kemur þar inn sem ekki á erindi þangað nema í sam­ráði við stofn­un­ina. Íbúar fái alla þá hjálp eða aðstoð sem þau eiga rétt á hjá starfs­fólki stofn­un­ar­innar í úrræði. Eins sinnir Rauði kross Íslands fata­út­hlut­unum til þeirra og er með opna við­tals­tíma og býður upp á félags­starf.

Eins og fram hefur komið hafa kvart­anir borist til ÚTL varð­andi aðbún­að­inn á Ásbrú frá ein­stak­lingum sem láta sig mál þeirra sem þar búa varða en ekki frá íbú­unum sjálfum nema í einu til­viki. Margt af því sem bent hefur verið á byggir á mis­skiln­ingi, sam­kvæmt ÚTL, og vísar stofn­unin til fyrri svara um lýs­ingu hennar á aðstæðum á Ásbrú.

ÚTL hefur brugð­ist við þeim kvört­unum með því að vinna að því að færa til og búa til pláss inni í öðrum úrræðum til að flytja karl­menn­ina þangað.

Aðstaðan í stöðugri endurskoðun

Kjarninn spurði ÚTL einnig hvort stofn­unin ætl­aði að end­ur­skoða þá aðstöðu sem hún hefur til að taka á móti flótta­fólki eða umsækj­endum um alþjóð­lega vernd. „Aðstaðan er og hefur verið í stöðugri end­ur­skoðun und­an­farna rúma tvo mán­uði. Fjöldi umsækj­enda um vernd í þjón­ustu Útlend­inga­stofn­unar meira en tvö­fald­að­ist á örfáum vikum í mars þegar umsækj­endum fjölg­aði á for­dæma­lausum hraða. Félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neytið tók þá fljót­lega við því hlut­verki að afla nýrra búsetu­úr­ræða, eins og sagt var frá í apríl, en Útlend­inga­stofnun mun hætta að sinna þjón­ustu við umsækj­endur um vernd frá og með 1. júlí næst­kom­andi.

Þau nýju úrræði sem hafa verið tekin í notkun hafa hentað mis­vel undir starf­sem­ina og þau hefur oftar en ekki þurft að opna með litlum sem engum fyr­ir­vara. Gengið hefur verið í það hratt og örugg­lega að tryggja að allur nauð­syn­legur bún­aður sé til staðar sem fyrst,“ segir að lokum í svar­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár