Umsóknum um alþjóðlega vernd fjölgaði um 33 prósent milli ára

Heims­far­aldur COVID-19 hafði tölu­verð áhrif á umsóknir um alþjóð­lega vernd hér á landi en þeim fer fjölg­andi á ný. Til stendur að legggja fram frum­varp um breyt­ingar á útlend­inga­lögum í fjórða sinn.

871 umsókn um alþjóð­lega vernd barst stjórn­völdum í fyrra sem er fjölgun um 33 pró­sent frá 2020 þegar umsókn­irnar voru 654. Heims­far­aldur COVID-19 hefur haft tölu­verð áhrif á umsóknir um alþjóð­lega vernd en fjöldi umsókna í fyrra voru örlítið fleiri en árið 2019 þegar þær voru 867.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í grein­ar­gerð frum­varps um breyt­ingu á lögum um útlend­inga sem birt hefur verið í sam­ráðs­gátt stjórn­valda. Samhliða fjölgun umsókna hafa heild­ar­út­gjöld vegna umsækj­enda um alþjóð­lega vernd auk­ist und­an­far­inn ára­tug, eða úr rúmum 220 millj­ónum árum 2012 í rúm­lega 3,3 millj­arða árioð 2020. Kostn­aður á síð­asta ári nam 2,3 millj­örðum króna. Inn í þessar tölur vantar þó útgjöld vegna rekst­urs Útlend­inga­stofn­unar og kæru­nefndar útlend­inga­mála.

Fjöldi umsókna um alþjóð­lega vernd tíföld­uð­ust á fjórum árum þegar þær fóru úr 118 árið 2012 í 1.132 árið 2016. Í kjöl­farið réð­ust stjórn­völd í aðgerðir til að draga úr „fjölda ber­sýni­lega til­hæfu­lausum umsóknum“ og fækk­aði umsóknum í 1.096 árið 2017 og 800 árið á eftir. Frumvarp um breyt­ingar á útlend­inga­lögum sem nú er í sam­ráðs­gátt stjórn­valda­var fyrst lagt fram að Sigríði Á. Andersen, þáver­andi dóms­mála­ráð­herra, vorið 2018 og var þá fyrst og fremst við­brögð við mik­illi fjölgun umsækj­enda um alþjóð­lega vernd hér á landi, ekki síst frá fólki sem þegar hefur verið veitt vernd í öðrum ríkjum Evrópu.

Fjöldi umsókna jókst um mitt ár í fyrra

Árið 2019 voru umsókn­irnar 867. Árið eftir, þegar heims­far­aldur COVID-19 skall á, fækk­aði umsóknum hér á landi fyrst um sinn. Í mars 2020 fækk­aði umsóknum um 35% frá fyrstu tveimur mán­uðum árs­ins og í apríl bár­ust ein­ungis fimm umsóknir og fjórar í maí. Á hinn bóg­inn fjölg­aði málum í efn­is­með­ferð umtals­vert þegar Útlend­inga­stofnun og kæru­nefnd útlend­inga­mála ákváðu tíma­bundið að aðlaga mat sitt á því hvort taka bæri Dyfl­innar- og vernd­ar­mál til efn­is­með­ferðar að virtum þessum sér­stöku aðstæðum sem komu upp í kjöl­far far­ald­urs­ins.

Í júní 2020 fjölg­aði umsóknum á ný, einkum á síð­ari hluta mán­að­ar­ins, þegar 19 umsóknir bár­ust og í júlí voru þær 106 en það voru flestar umsóknir sem höfðu borist í einum mán­uði síðan í ágúst 2017. Heild­ar­fjöldi umsókna 2020 var 654.

Fyrstu fimm mán­uði árs­ins 2021 bár­ust heldur fáar umsóknir um alþjóð­lega vernd eða að jafn­aði um 30 á mán­uði. Fjöldi umsækj­enda jókst hins vegar hratt í byrjun sum­ars. Í júní til sept­em­ber bár­ust að með­al­tali um 75 umsóknir á mán­uði og í októ­ber einum bár­ust 124 umsóknir. Á árinu 2021 bár­ust sam­tals 871 umsókn um alþjóð­lega vernd og fjölg­aði þeim því um 33% milli ára, þrátt fyrir áfram­hald­andi tak­mark­anir vegna Covid-19 heims­far­ald­urs­ins.

228 bíða flutnings úr landi

Í grein­ar­gerð­inni er fjallað um nýjar áskor­anir sem stoð­deild lög­reglu mætti við að flytja úr landi ein­stak­linga sem hlotið höfðu synjun á umsóknum sínum um alþjóð­lega vernd, vegna krafna við­töku­ríkja um PCR-próf, vott­orðs um afstaðna Covid-19 sýk­ingu eða bólu­setn­ingu gegn veirunni. „Þeir ein­stak­lingar, sem lögum sam­kvæmt eiga að yfir­gefa landið, hafa nýtt sér þessa stöðu og ítrekað neitað að und­ir­gang­ast PCR-próf og kom­ast þannig undan fram­kvæmd­inni. Jafn­framt reynd­ist erfitt og í sumum til­vikum ómögu­legt fyrir stoð­deild að fá upp­lýs­ingar frá heil­brigð­is­yf­ir­völdum um það hvort ein­stak­ling­arnir væru bólu­settir eða höfðu þegar fengið Covid-19 sýk­ingu,“ segir í grein­ar­gerð­inni. Hópur þeirra ein­stak­linga sem biðu flutn­ings úr landi hefur stækkað hratt og í lok árs 2021 var um 228 ein­stak­linga að ræða.

Í grein­ar­gerð frum­varps­ins segir að frum­varpið sem lagt er fram nú sé „liður í nauð­syn­legri end­ur­skoðun lag­anna og felur í sér efn­is­meiri laga­breyt­ingar varð­andi mót­töku og máls­með­ferð umsókna um alþjóð­lega vernd en gerðar hafa verið til þessa“.

Sams konar frum­varp hefur þrisvar áður verið lagt fyrir þingið en hefur ekki náð fram að ganga. Frum­varpið varðar ákvæði útlend­inga um alþjóð­lega vernd og lögum um atvinnu­rétt­indi útlend­inga, útgáfu tíma­bund­inna leyfa vegna sér­stakra ástæðna. Frestur til að skila inn umsögn um frum­varpið rennur út á föstu­dag, 4. febr­úar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár