Konur upplifi sig ekki öruggar á Ásbrú – og erfitt að koma óskum á framfæri

UN Women á Íslandi gera alvar­legar athuga­semdir við svör Útlend­inga­stofn­unar varð­andi útbúnað og aðstæður fyrir flótta­fólk og umsækj­endur um alþjóð­lega vernd á Ásbrú.

Jarðskjálftahrinur ollu mikilli hræðslu meðal barna og engar upplýsingar voru veittar til fólksins, sem margt glímir við áfallastreituröskun. Ásbrú er því ekki ákjósanlegasti dvalarstaðurinn fyrir fólk sem flúið hefur stríðsátök, að mati UN Women.
Jarð­skjálfta­hrinur ollu mik­illi hræðslu meðal barna og engar upp­lýs­ingar voru veittar til fólks­ins, sem margt glímir við áfallastreituröskun. Ásbrú er því ekki ákjós­an­leg­asti dval­ar­stað­ur­inn fyrir fólk sem flúið hefur stríðs­á­tök, að mati UN Women. Mynd: Reykjanesbær

Konurnar sem dvelja á Ásbrú á vegur Útlend­inga­stofn­unar (ÚTL) eiga erfitt með að fá skýr og skil­merki­leg svör frá starfs­mönnum stofn­un­ar­innar við spurn­ingum sem þær kunna að hafa. Margar treysta sér ekki til að eiga í sam­skiptum við starfs­menn­ina og leita frekar til sjálf­boða­liða við öflun upp­lýs­inga um rétt­indi, atvinnu­tæki­færi og hús­næð­is­leit, sam­kvæmt UN Women á Íslandi.

Þetta er ein af athuga­semdum UN Women við svörum Útlend­inga­stofn­unar (ÚTL) sem Kjarninn fjall­aði um í gær varð­andi aðstöðu fyrir umsækj­endur um alþjóð­lega vernd og fólk á flótta á Ásbrú í Reykja­nesbæ þar sem meðal ann­ars kom fram að kvart­anir hefðu borist til ÚTL varð­andi aðbún­að­inn á Ásbrú frá ein­stak­lingum sem láta sig mál þeirra sem þar búa varða en ekki frá íbú­unum sjálfum nema í einu til­viki.

[links]Margt af því sem bent hefði verið á „byggir á mis­skiln­ingi“ að mati ÚTL en UN Women á Íslandi hafði í síð­ustu viku lýst yfir þungum áhyggjum af aðstæðum þeirra kvenna sem dvelja á Ásbrú. Í svari ÚTL kom jafn­framt fram að stofn­unin hefði brugð­ist við þeim kvört­unum með því að vinna að því að færa til og búa til pláss inni í öðrum úrræðum til að flytja karl­menn­ina þang­að.

UN Women á Íslandi fagna því ef brugð­ist hefur verið við ábend­ingum um mik­il­vægi kynja­skiptra rýma og mun áfram fylgj­ast með stöðu mála.

[adspot]

ÚTL ekki í „almennum hótelrekstri“

Í svari ÚTL kom jafn­framt fram að öll búsetu­úr­ræði sem stofn­unin rekur væru með „her­bergjum líkt og á hót­elum eða gisti­heim­ilum“ og upp­fylli stofn­unin allar lág­marks­kröfur sem gerðar séu til rekst­urs hót­ela og ann­arra gisti­rýma. Þá væru þau tekin út af þar til bærum eft­ir­lits­að­ilum með reglu­legu milli­bil­i.

UN Women gagn­rýna þessi orð og benda á að stofn­unin sé ekki í almennum hót­el­rekstri og því ætti þjón­ustan sem hún veitir ekki að „upp­fylla lág­marks­kröfur sem gerðar eru til rekst­urs gisti­heim­ila“, heldur þess í stað upp­fylla lág­marks­kröfur UN Women og ann­arra stofn­ana Sam­ein­uðu þjóð­anna um þjón­ustu til ber­skjald­aðra kvenna og barna á flótta.

„Ein­stak­lingar sem flúið hafa vopnuð átök þurfa öryggi, sál­ræna aðstoð, góða heil­brigð­is­þjón­ustu og mjög skýrar og grein­ar­góðar upp­lýs­ingar á móð­ur­máli um þá þjón­ustu sem í boði er, rétt­indum þeirra í mót­töku­ríki og upp­lýs­ingum um sam­fé­lagið,“ segir í ábend­ingum sam­tak­anna.

Flug herþota yfir svæðið vakti ofsahræðslu meðal barna

Fram kemur hjá UN Women á Íslandi að kon­urnar á Ásbrú hafi þurft að leita til sjálf­boða­liða eftir upp­lýs­ingum um her­æf­ingar á Kefla­vík­ur­flug­velli en flug her­þota yfir svæðið vakti ofsa­hræðslu meðal barn­anna sem þar dvelja.

„Jarð­skjálfta­hrinur ollu einnig mik­illi hræðslu og engar upp­lýs­ingar voru veittar til fólks­ins, sem margt glímir við áfallastreituröskun. Ásbrú er því ekki ákjós­an­leg­asti dval­ar­stað­ur­inn fyrir fólk sem flúið hefur stríðs­á­tök.“

Hvað öryggi varðar, eru upp­lýs­ing­arnar sem UN Women á Íslandi hefur fengið þær að hvorki hafi verið tryggt að starfs­fólk ÚTL á Ásbrú sé af öllum kynjum, né örygg­is­verðir.

Öryggisgæsla af mjög skornum skammti

Upp­lýs­ingar UN Women á Íslandi stang­ist á við stað­hæf­ingar ÚTL sem birt­ust í Kjarn­anum í gær og nefna sam­tökin sex atriði í því sam­bandi.

Í fyrsta lagi séu úrræði ÚTL á Ásbrú ekki aðgangs­stýrð. Í öðru lagi sé örygg­is­gæsla af mjög skornum skammti en sam­kvæmt upp­lýs­ingum UN Women á Íslandi sinnir einn örygg­is­vörður tveimur íbúða­blokkum. Örygg­is­verðir hafi að auki ekki hlotið sér­staka þjálfun í mót­töku fólks á flótta eða í að greina hættu­merki um kyn­bundið ofbeldi eða man­sal. Konurnar sem UN Women á Íslandi ræddu við sögð­ust fæstar upp­lifa sig öruggar á Ásbrú.

Í þriðja lagi benda sam­tökin á að tak­mörkuð örygg­is­gæsla þýði að fatn­aður hafi horfið úr þvotta­vélum og aðrar eigur fólks einnig. Í fjórða lagi séu afmörkuð fjöl­skyldu­rými ekki á svæð­inu sem tryggja öryggi og aðbúnað barna.

Ekki boðið upp á þjónustu túlks

Í fimmta lagi er, sam­kvæmt upp­lýs­ingum UN Women, starfs­fólk ÚTL á staðnum á milli klukkan 9:00 og 11:00 á dag­inn. Enginn túlkur sé með í för og tali ekki allar kon­urnar ensku. Það hafi reynst kon­unum erfitt að fá upp­lýs­ingar um rétt­indi sín, þjón­ustu sem í boði er sem og upp­lýs­ingar um atvinnu- og fram­tíðar hús­næði.

Í sjötta og síð­asta lagi gera UN Women athuga­semd við þá stað­hæf­ingu ÚTL að hafa ekki fengið til­kynn­ingar frá íbúum Ásbrúar um slæman aðbúnað heldur hafi þær borist frá sjálf­boða­liðum sem aðstoða íbúa. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá sam­tök­unum hafa kon­urnar leitað sér­stak­lega til eins sjálf­boða­liða sem er af úkra­ínskum upp­runa og talar úkra­ínsku við að koma á fram­færi óskum sínum, enda hafi ÚTL ekki boðið upp á þjón­ustu túlks fram að þessu og því erfitt fyrir þær konur sem ekki tala ensku að koma óskum sínum á fram­færi með öðrum hætti. Þær konur sem tala ensku hafi jafn­framt sagt að þeim þyki erfitt að með­taka upp­lýs­ingar á ensku um íslensk atvinnu- og skatta­mál.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár