„Þetta er álag á kerfið allt saman“

Fram­kvæmda­stjóri lækn­inga hjá Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins segir að þrátt fyrir að mót­taka flótta­fólks frá Úkraínu hafi gengið vel þá nái heil­brigð­is­kerfið ekki að mæta þessu fólki eins og það ætti að gera.

Sigríður Dóra Magnúsdóttir
Sigríður Dóra Magn­ús­dóttir Mynd: Lögreglan

Almennt hefur gengið vel að þjón­usta flótta­fólk frá Úkraínu, að því er fram kemur í svari Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins (HH) við fyr­ir­spurn Kjarnans. Sigríður Dóra Magn­ús­dóttir, fram­kvæmda­stjóri lækn­inga hjá HH, segir í sam­tali við Kjarnann að mikið álag sé á heil­brigð­is­kerfið í heild sinni og að þrátt fyrir að vel hafi gengið að taka á móti flótta­fólki hingað til þurfi að sýna fyr­ir­hyggju varð­andi kom­andi miss­eri svo hægt sé að sinna öllum þeim sem hingað leita.

HH hefur ákveðnu hlut­verki að gegna við mót­töku flótta­fólks, þar með talið þess hóps sem hingað hefur komið og mun koma frá Úkraínu. HH veitir flótta­fólki lækn­is­skoðun eftir kom­una til lands­ins þar sem ski­mað er fyrir berklum, sára­sótt, lifr­ar­bólgu, HIV og COVID-19. Einnig er ski­mað fyrir and­legri van­líðan, farið yfir hvort gefa þurfi út lyf­seðla fyrir lyfjum sem fólkið hefur verið að taka, boðið upp á bólu­setn­ingu við COVID-19 og annað sem ekki þolir bið.

Í svari HH kemur fram að þegar ljóst var að von væri á tals­verðum fjölda flótta­fólks frá Úkraínu hafi verið tekin ákvörðun um að öll þjón­usta við þennan hóp yrði undir sama þaki, í hús­næði Domus Medica.

„HH setti upp aðstöðu í hús­inu og hefur sinnt skimunum þar. Að öðru leyti hefur HH ekki þurft að gera neinar breyt­ingar á sinni starf­semi vegna þessa hóps. Þau eiga rétt á allri þjón­ustu frá heilsu­gæsl­unni eins og aðrir svo okkar heilsu­gæslu­stöðvar hafa tekið á móti þeim sem þurft hafa á þjón­ustu að halda umfram þá sem veitt er í mót­tök­unni í Domus Medica,“ segir í svar­inu.

Öll móttaka umsækjenda um alþjóðlega vernd færð á einn stað

Sigríður Dóra, sem þekkir mót­töku flótta­fólks og þjón­ustu heilsu­gæslu­stöðva vel, segir í sam­tali við Kjarnann að það hafi verið algjör nýbreytni þegar heilsu­gæslan setti upp sér­staka þjón­ustu fyrir hóp flótta­fólks frá Úkraínu. Þau séu enn að skipu­leggja starfið og sjá hvernig hægt verði að sam­þætta þessa þjón­ustu við þá þjón­ustu sem almennir umsækj­endur um alþjóð­lega vernd fá hér á landi. Þeirri skipu­lagn­ingu verði lokið síð­sum­ars.

[links]Á hverju ári koma að sögn Sigríðar Dóru 600 til 800 umsækj­endur um alþjóð­lega vernd í þjón­ustu í Mjódd­inni – jafn­vel fleiri – alls staðar að úr heim­inum en þeir fara í sömu skoðun og Úkra­ínu­flótta­fólkið. „Þannig að við erum að vinna í því að lag­færa þjón­ust­una og ein­falda hana svo allir fái sömu þjón­ustu.“

Hún segir að það hafi verið ákveðin prufu­keyrslu með ferlið þegar Úkra­ínu­flótta­fólkið kom fyrst til lands­ins fyrr á þessu ári. „Svo erum við smám saman að vinna í að koma þessu á einn stað í sam­vinnu við Útlend­inga­stofnun og starfs­fólkið.“ Tekin hefur verið sú ákvörðun að færa alla mót­töku á einn stað í Domus Medica þann 20. júní næst­kom­andi.

Tryggja þarf sálfræðiþjónustu fyrir þennan hóp

Þá minnir Sigríður Dóra á að allir umsækj­endur um alþjóð­lega vernd eigi sama rétt á þjón­ustu og aðrir Íslend­ingar þegar þeir eru komnir með dval­ar­leyfi. „Auðvitað er það álag fyrir heil­brigð­is­kerfið þegar fólk kemur inn í landið með annan bak­grunn og aðra reynslu – og þarf að fá þjón­ustu,“ segir hún og bætir því við að heil­brigð­is­kerfið nái ekki að mæta þessu fólki eins og það ætti að gera. Biðin eftir lækn­is­þjón­ustu sé til að mynda oft löng. „Þetta er álag á kerfið allt saman.“

Hún segir að nú þurfi einnig að huga að því að bæta sál­fræði­þjón­ustu fyrir þennan hóp. „Þetta er fólk sem er í erf­iðri stöðu og hefur erf­iða lífs­reynslu að baki. Það er eitt sem þarf að tryggja betur en hefur verið gert í dag. Við verðum að skoða hvað við getum gert,“ segir hún.

Sigríður Dóra greinir frá því að á göngu­deild­inni séu sál­fræð­ingar í verk­töku og séu þeir því ekki mikið við. „En við verðum bara að skoða þetta og athuga hvaða úrræði eru í gangi en við þurfum að bæta í þarna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár