Dómsmálaráðherra beiti agaviðurlögum vegna ummæla vararíkissaksóknara

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir segir óboð­legt að hand­hafar valds láti hat­urs­full ummæli falla, og það ítrekað, og kallar eftir því að dóms­mála­ráð­herra beiti aga­við­ur­lögum gegn Helga Magnúsi Gunn­ars­syni vara­rík­is­sak­sókn­ara.

Í færslu á Facebook segir Þorgerður að í krafti stjórnunar- og eftirlitsheimilda sinna geti dómsmálaráðherra kallað eftir því að agaviðurlögum verði beitt.
Í færslu á Facebook segir Þor­gerður að í krafti stjórn­unar- og eft­ir­lits­heim­ilda sinna geti dóms­mála­ráð­herra kallað eftir því að aga­við­ur­lögum verði beitt. Mynd: Bára Huld Beck

Ummæli Helga Magnúsar Gunn­ars­sonar vara­rík­is­sak­sókn­ara um hinsegin hæl­is­leit­endur hafa vakið óhug hjá mörgum, en í tengslum við umfjöllun Vísis um að kyn­hneigð hinsegin hæl­is­leit­enda sé ítrekað dregin í efa sagði Helgi Magnús hæl­is­leit­endur „auð­vitað ljúga“ og spurði hvort ekki væri þegar nóg af hommum á Íslandi.

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra hefur gagn­rýnt ummælin en vísað á rík­is­sak­sókn­ara er varðar ábyrgð í mál­inu og hefur Sigríður Frið­jóns­dóttir rík­is­sak­sókn­ari stað­fest að málið sé til skoð­unar hjá emb­ætt­inu.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir þing­maður er hins vegar ekki sam­mála því að það sé ekki undir dóms­mála­ráð­herra komið að ákveða hvort til­efni sé til þess að áminna Helga Magnús vegna ummæl­anna. Í færslu á Facebook segir Þor­gerður að í krafti stjórn­unar- og eft­ir­lits­heim­ilda sinna geti dóms­mála­ráð­herra kallað eftir því að aga­við­ur­lögum verði beitt.

[adspot]Í færsl­unni segir Þor­gerður að með ummælum sínum sendi Helgi Magnús mjög hættu­leg skila­boð út til sam­fé­lags­ins. Orðræðan hafi félags­mót­andi áhrif og að hat­urs­full orð geti valdið miklum skaða, sem við séum oft minnt á og nú síð­ast þegar skotárás var gerð á sam­komu­stað sam­kyn­hneigðra í Osló í síð­asta mán­uði. Þá séu ummæli sem þessi sér­stak­lega alvar­leg þegar þau komi frá hand­hafa ákæru­valds­ins.

„Um er að ræða einn æðsta emb­ætt­is­mann rétt­ar­vörslu­kerf­is­ins. Hann hefur fullan rétt til þátt­töku í sam­fé­lags­um­ræð­unni. En völdum fylgir ábyrgð og siða­regl­urnar sem ná til starfs­ins eru skýrar. Ákærendur þurfa sér­stak­lega að gæta þess að hlut­leysi þeirra sem ákærendur verði ekki dregið í efa. Það á ekki síður við um fram­göngu utan starfs,“ skrifar Þor­gerður.

Ekki í fyrsta sinn

Þá sé ekki um að ræða fyrsta skiptið sem vara­rík­is­sak­sókn­ar­inn láti út úr sér óvið­eig­andi eða bein­línis hat­urs­full ummæli, hvort sem þau hafi snúið að brota­þolum, hinsegin fólki, hæl­is­leit­endum eða kven­fólki almennt. Skemmst er að minn­ast þess þegar Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, þáver­andi dóms­mála­ráð­herra, gagn­rýndi fram­för Helga Magnúsar á sam­fé­lags­miðlum í kjöl­far þess að hann setti „like“ við færslu Sigurðar G. Guð­munds­sonar hæsta­rétt­ar­lög­manns þar sem hann birti brot úr skýrslu­töku lög­reglu af Þórhildi Gyðu Arn­ar­dóttur, þol­anda í ofbeld­is­máli, og bar saman við færslu Þór­hildar á Twitter í þeim til­gangi að draga úr trú­verð­ug­leika hennar.

[links]Segir Þor­gerður Helga Magnús til dæmis hafa líkt þung­un­ar­rofi við morð og gert lítið úr rétti kvenna og setur hún það í sam­hengi við nýlegar skerð­ingar á sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétti kvenna í Banda­ríkj­unum.

„Þegar æðstu emb­ætt­is­menn fara fram með þessum hætti grefur það undan kerf­inu sjálfu og trausti okkar til þess. Í siða­reglum ákærenda er lögð áhersla á að þátt­taka þeirra í opin­berri umræðu verði ekki til þess að rýra traust og trú almenn­ings á hlut­leysi ákæru­valds­ins.“

Þess má geta að Helgi Magnús hefur tekið ummælin úr birt­ingu og virð­ist gera til­raun til þess að lýsa yfir stuðn­ingi við hinsegin sam­fé­lagið með því að setja regn­boga „filter“ á prófíl­mynd sína á Facebook.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár