Framkvæmd „illkvittnu“ laganna að hefjast: Fyrsta vélin á áætlun í kvöld

Í kvöld hefur flug­vél sig á loft frá Bret­landi. Um borð verður fólk sem þangað flúði í leit að betra lífi og á að baki hættu­för um Ermar­sundið. En stjórn­völd vilja sem minnst með þessar mann­eskjur hafa og ætla að senda þær úr landi. Áfanga­staður: Rúanda.

Stöðvið flugið, stendur á skilti sem mótmælendur brottflutnings fólks til Rúanda héldu á lofti í London í gær.
Stöðvið flugið, stendur á skilti sem mót­mæl­endur brott­flutn­ings fólks til Rúanda héldu á lofti í London í gær. Mynd: EPA

Þetta er skelfi­legur gjörn­ingur, sagði Karl Breta­prins um síð­ustu helgi. Þar var hann að tala um ákvörðun stjórn­valda að flytja fólk sem leitar hælis á Bret­landseyjum til Rúanda. Þar á fólkið að dvelja á meðan hæl­is­um­sóknir þess eru afgreiddar. Og ef það fær hæli mun það samt sem áður ekki snúa aftur til Bret­lands.

Fyrsta flug­vélin með hæl­is­leit­endur mun sam­kvæmt áætlun hefja sig til flugs í kvöld. Reynt hefur verið að fá lög­bann á þennan gjörn­ing en von um slíkt virð­ist nú úti. For­sæt­is­ráð­herr­ann Boris Johnson var spurður í gær kvöld að Karl prins hefði á röngu að standa. Svarið: „Það sem ég held að við ættum ekki að gera er að styðja við áfram­hald­andi starf­semi glæpa­gengja.“

Þar var hann að vísa til þess sem stjórn­völd hafa sagt helstu ástæðu þess að flytja hæl­is­leit­endur úr landi með þessum hætti, að það séu glæpa­gengi sem hvetja til hættu­legra ferða­laga frá Frakk­landi til Bret­lands, á vafasömum smá­kænum yfir Ermar­sundið.

[adspot]

Um borð í vél­inni í kvöld verður m.a. fólk frá Írak og Sýrlandi. Einnig fólk sem flúið hefur Íran. Að auki verða um borð hæl­is­leit­endur frá Albaníu og fleiri löndum. Mögulega munu ein­hverjir draga umsóknir sínar um vernd til baka. Snúa frekar aftur til heima­lands­ins. Eða freista þess að fá hæli í öðrum Evr­ópu­löndum.

Það er enn mögu­legt að vélin fari hvergi. Að flug­inu verði að minnsta kosti frestað. Vegna tafa sem orðið hafa í kjöl­far þess að margir hæl­is­leit­endur reyndu að fá ákvörðun um flutn­ing til Rúanda hnekkt kann að vera að fátt yrði um borð í vél­inni ef af ferð­inni yrði. Kannski yrðu aðeins um tíu manns fluttir í kvöld, segir heim­ild­ar­maður Guardian hjá inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu.

Vísa til laga um nútíma þrælahald

Þótt dóm­stólar hafi frá því á föstu­dag vísað hverri áfrýjun nið­ur­stöðu stjórn­valda um brott­flutn­ing frá halda málin áfram að streyma inn á þeirra borð. Í dag verða að minnsta kosti þrjár teknar fyrir.

Lög­fræð­ingar sem tekið hafa mál fólks sem vísa á úr landi með þessum hætti að sér bera m.a. fyrir sig lögum um nútíma þræla­hald.

Írani sem upp­lýsti um mann­rétt­inda­brot í heima­landi sínu og flúði þaðan átti að vera um borð í vél­inni í kvöld. En hann fékk þau tíð­indi frá inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu um helg­ina, að því er segir í Guardian, að flutn­ingi hans til Rúanda hefði verið frestað. „Ég er ennþá mjög áhyggju­fullur um fram­haldið,“ segir hann.

Fólkið sem leggur í hættu­för­ina á smá­bátum frá Frakk­landi yfir Ermar­sund til Bret­lands er flest frá Íran, Írak og Sýrlandi. Um 28 þús­und manns komu þessa leið til Bret­lands í fyrra. Að minnsta kosti 44 drukkn­uðu á leið­inni, þar af 27 í einu og sama slys­inu. Flestir hæl­is­leit­end­urnir eru ungir karl­menn á aldr­inum 18-39 ára.

„Frá árinu 2015 hefur Bretland boðið yfir 185 þús­und mönnum, konum og börnum, skjól, fleirum en nokkuð annað land í Evrópu,“ sagði Boris Johnson nýverið. Bretland er þó langt í frá eft­ir­sókn­ar­verð­asti áfanga­staður fólks á flótta í álf­unni. Í fyrra sóttu tæp­lega 130 þús­und manns um hæli í Þýska­landi. Frakk­land fylgdi þar á eftir en rétt rúm­lega 44 þús­und manns sóttu um hæli í Bret­landi.

Full­trúar skoska þjóð­ar­flokks­ins hafa gagn­rýnt ákvörðun stjórnar Johnson harð­lega. Þau segja aðgerð­irnar til þess gerðar að mylja undan sátt­mála þjóða um flótta­fólk.

Og fleiri hafa tekið í sama streng.

„Fólk sem er að flýja stríð, átök og ofsóknir á skilið samúð. Það á ekki að fara með það eins og vörur, flytja það til útlanda til úrvinnslu.“ Flótta­manna­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna, UNCHR, hefur verið mjög harð­orð í við­brögðum sínum við þvi að stjórn­völd í Bret­landi ætli að senda fólk sem leitar þar alþjóð­legrar verndar inn í miðja Afríku. Stofn­unin leggst alfarið gegn þeim fyr­ir­ætl­unum að flytja út – útvista ef svo má segja – skyldum gagn­vart hæl­is­leit­endum. „Að leita hælis eru mann­rétt­indi.“

Johnson hefur hins vegar sagt að það sé „sið­ferð­is­lega rétt“ að flytja þær þús­undir hæl­is­leit­enda sem koma til Bret­landseyja yfir Ermar­sundið, oft á litlum skektum og stefna lífi sínu og sinna með þeim hætti í voða, með flugi til Rúanda – í um 6.500 kíló­metra fjar­lægð.

„Ég held að við séum komin með fram­úr­skar­andi stefnu í því að reyna að stöðva drukknun fólks á hafi úti,“ hefur Johnson m.a. sagt og undr­ast alla þá gagn­rýni sem áætl­an­irnar hafa fengið. „Ég held að það sé sið­ferð­is­lega rétt að stoppa glæpa­gengi í því að mis­nota fólk og senda það ofan í vota gröf. Ég held að þetta sé skyn­sam­leg, hug­rökk og frum­leg stefna.“

Að senda fólk sem leitar hælis til ann­arra landa „til úrvinnslu“ er þó alls ekki frum­leg stefna. Hún hefur áður verið reynd og það með slæmum árangri. Frum­leik­inn er heldur ekki meiri en svo að í fyrra ákváðu dönsk stjórn­völd að fara nákvæm­lega sömu leið: Senda hæl­is­leit­endur sem þangað leita bein­ustu leið til Rúanda.

[adspot]

Erki­bisk­up­arnir af Kant­ara­borg og York eru í hópi þeirra sem for­dæmt hafa fyr­i­r­á­ætl­an­irnar og segja það að senda hæl­is­leit­endur „aðra leið­ina“ í burtu ekki stand­ast kristið sið­ferði.

Priti Patel, inn­an­rík­is­ráð­herra Bret­lands skrif­aði undir vilja­yf­ir­lýs­ingu um málið við stjórn­völd í Rúanda í vetur, sam­komu­lag sem sagt er munu kosta 120 millj­ónir punda, um 20 millj­arða íslenskra króna.

Þingmenn Verka­manna­flokks­ins greiddu atkvæði gegn breyt­ingum á lögum sem myndu heim­ila flutn­ing hæl­is­leit­enda til ann­ars lands. Sögðu þeir frum­varpið „ófull­nægj­andi og ill­kvittið“.

Mann­rétt­inda­sam­tökin Freedom House sögðu í skýrslu sinni árið 2020 að flótta­fólk frá Austur-Kongó og Búrúndí væri útsett fyrir kyn­ferð­is­legri mis­notkun og ofbeldi í Rúanda auk þess sem það hefði verið þvingað til að ganga í vopn­aðar sveitir í land­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár