„Hvað getum við gert hér og nú í okkar eigin kerfi?“

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra segir að Íslend­ingar þurfi að spyrja sig að því hvernig þeirra eigið kerfi sé undir það búið að taka við stór­auknum fjölda flótta­fólks.

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­maður Mið­flokks­ins ræddu mál flótta­fólks og umsækj­enda um alþjóð­lega vernd í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag. Sig­mundur Davíð spurði ráð­herr­ann meðal ann­ars hvort íslensk stjórn­völd hygð­ust styðja við löndin næst Úkraínu vegna hins gríð­ar­lega fjölda flótta­manna sem þangað sækir eftir inn­rás Rússa.

Sig­mundur Davíð hóf mál sitt á því að vísa í orð­ræðu dóms­mála­ráð­herra, Jóns Gunn­ars­sonar, þar sem hann vakti athygli á því fyrir nokkrum dögum að „hæl­is­leit­enda­kerfið á Íslandi væri í ólagi og sá vandi gerði okkur erfitt fyrir núna þegar við stöndum frammi fyrir því að taka á móti tölu­verðum fjölda flótta­manna frá Úkraínu“.

Dóms­mála­ráð­herra sagði í sam­tali við mbl.is þann 25 febr­úar að íslensk stjórn­völd væru opin fyr­ir því að taka á móti flótta­mönn­um frá Úkraínu. Það sem tefði fyr­ir því væri aft­ur á móti sá fjöldi hæl­is­leit­enda sem hér er stadd­ur sem þegar hefði verið vísað úr landi en neit­aði meðal ann­ars að fara í PCR-próf.

„Eitt af ógeðfelldari atvikum í íslenskri útlendingapólitík“

Ýmsir hafa for­dæmt þessi orð dóms­mála­ráð­herra, meðal ann­ars þing­maður Pírata, Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, sem and­mælti ráð­herr­anum í Viku­lok­unum á Rás 1 helg­ina eftir. „Vegna þess að ég er að horfa í algjörri for­undran á það hvernig dóms­mála­ráð­herra Íslands leyfir sér, og ég myndi eig­in­lega kalla þetta eitt af ógeð­felld­ari atvikum í íslenskri útlend­ingapóli­tík sem ég hef séð,“ sagði hún.

„Hann tekur til máls undir því hvort að við eigum ekki að taka á móti úkra­ínsku flótta­fólki og hendir fyrir sér að það sé hópur af fólki hérna sem lætur ekki brott­vísa sér á göt­una og guð og gadd­inn til Grikk­lands ef það kemst hjá því og hann beitir þeim gegn fólk­inu í Úkraínu og gerir þá ein­hvern veg­inn að óvinum þess að við getum aðstoðað fólk í Úkraínu,“ sagði Þór­hildur Sunna.

Spurði hvort línur yrðu lagðar varðandi fjárstuðning við hælisleitendur

Sig­mundur Davíð er aftur á móti sam­mála dóms­mála­ráð­herr­anum og sagði á þingi í dag að mik­il­vægt væri að hefja „loks umræðu um þetta“.

„Mér þótti þó heldur halla undan fæti í við­tali við hæst­virts ráð­herra á Bylgj­unni í morgun þar sem hann virt­ist fyrst og fremst vera að bíða eftir leið­sögn frá stjórn­kerf­inu um hver væru næstu skref. Hæst­virtur ráð­herra nefndi þó að í síð­ustu viku hefði Útlend­inga­stofnun tekið á leigu um 200 hót­el­her­bergi fyrir hæl­is­leit­endur og þau væru nú öll full og útlit fyrir að tekin yrðu á leigu 200 í við­bót sem myndu fyll­ast fljótt. Við heyrðum í fréttum að í febr­ú­ar­mán­uði hefði verið mesti fjöldi hæl­is­um­sókna sem hefur verið hér í all­mörg ár, sem er auð­vitað afleið­ing af þeirri stefnu sem hefur verið rekin hér. Og þetta er áður en við bregð­umst við stöð­unni í Úkraínu,“ sagði Sig­mundur Davíð.

Spurði hann Bjarna hvort von væri til þess að rík­is­stjórnin myndi „loks­ins taka sér tak í þessum málum“ og að línur yrðu lagðar varð­andi fjár­stuðn­ing við hæl­is­leit­endur. Einnig hvort vænta mætti þess að Ísland myndi styðja við löndin næst Úkraínu eins og Pólland, sem hefði nú þegar tekið við milljón flótta­mönnum. Þannig vill þing­mað­ur­inn styðja við þau lönd sér­stak­lega þannig að þau verði betur í stakk búin til að taka við flótta­fólki sam­hliða því sem Íslend­ingar taka á móti fólki hér á landi.

„Óásættanlegt“ að fólk neiti að fara í sýnatöku

Bjarni svar­aði og sagði að í mörg horn væri að líta í mál­efnum flótta­manna, hæl­is­leit­enda og í útlend­inga­lög­gjöf­inni í víð­ara sam­hengi.

„Fyrst vil ég nefna það í þess­ari umræðu að það er mjög miður að Alþingi skuli ekki hafa afgreitt frum­vörp, þrátt fyrir að dóms­mála­ráð­herra hafi ítrekað lagt þau fram hér á þing­inu, um að laga þau atriði sem hátt­virtur þing­maður vísar meðal ann­ars til hérna, sem hafa gert íslenska hæl­is­leit­enda­kerfið nokkuð frá­brugðið því sem gildir víða ann­ars staðar á því svæði þar sem Dyfl­inn­ar­reglu­gerðin hefur verið virk. Hérna er um að ræða nokkur við­kvæm atriði sem ég veit að ráð­herr­ann ætlar að leggja til að við reynum einu sinni enn að breyta með því að koma með frum­varp um það efni aftur inn í þingið.

Síðan aðeins um þá stöðu sem er komin upp núna. Það er að mínu áliti alger­lega óásætt­an­legt að við séum hér með nokkur hund­ruð manns á Íslandi sem hafa fengið efn­is­lega með­ferð sem hefur lokið með því að við­kom­andi ein­stak­lingar eiga ekki rétt á því að fá stöðu hæl­is­leit­enda á Íslandi, fá sem sagt ekki alþjóð­lega vernd, en fara ekki úr landi vegna þess að þeir neita að fara í sýna­töku, sem er for­senda fyrir því að við getum þeim komið heim aftur til þess lands sem þeir höfðu síð­ast við­komu í og hafa vernd hjá. Það að við náum ekki að höggva á þennan hnút kostar íslenska skatt­greið­endur rúman millj­arð á ári. 1 millj­arður fer í það að halda uppi fólki sem við höfum afgreitt erindi frá með neitun. Þetta er dæmi um atriði sem við hljótum að sam­mæl­ast um að laga þegar frum­varp ráð­herr­ans kemur hingað inn í þingið,“ sagði ráð­herr­ann.

Verðum að vera í stakk búin að taka á móti fólki frá Úkraínu

Sig­mundur Davíð sagð­ist í fram­hald­inu geta tekið undir margt í svari ráð­herr­ans. Hann sagði það mik­il­vægt að frum­varp dóms­mála­ráð­herra klárað­ist þó að það væri „kannski ekki eins víð­tækt til að taka á þessum vanda eins og til­efni er til“.

„En þótt ég sé ánægður að heyra við­brögð hæst­virts ráð­herra þá velti ég áfram fyrir mér: Má vænta ein­hverra aðgerða í sam­ræmi við orð hæstv. ráð­herra? Því að þessi rík­is­stjórn hefur á sama tíma hún hefur ekki náð að koma í gegn því frum­varpi sem boðað hefur verið frá hæst­virtum dóms­mála­ráð­herra, í þriðja skipti að ég held, lagt fram frum­varp sem gengur í þver­öf­uga átt og aug­lýsir Ísland sem áfanga­stað fyrir þá sem selja ferðir til flótta­manna. Nú þegar staðan er sú sem hún er í Úkraínu þá verðum við að vera í stakk búin til að taka við fólki á þeim for­sendum sem lagt var upp með eftir seinni heims­styrj­öld­ina þegar flótta­manna­sátt­máli Sam­ein­uðu þjóð­anna var gerður. En við þurfum líka að styðja við löndin, Pólland og önnur lönd sem eru næst Úkraínu,“ sagði hann í lok fyr­ir­spurnar sinnar.

Flóttafólk frá Úkraínu nokkurn veginn sjálfkrafa samþykkt

Bjarni kom aftur í pontu og sagð­ist taka undir að það væri góð nálgun að hugsa það þannig: „Hvað getum við gert til þess að standa með þeim sem helst finna fyrir komu flótta­fólks frá Úkraínu til sín? Hér er Pólland nefnt sér­stak­lega. Ég held samt sem áður að akkúrat þessa dag­ana þurfum við að spyrja okkur að því hvernig okkar eigið kerfi er undir það búið að taka við stór­auknum fjölda flótta­fólks, sér­stak­lega í ljósi þess að nú hefur þessi 44. gr. lag­anna verið virkjuð í fyrsta sinn sem þýðir efn­is­lega að það þarf ekki að fara fram efn­is­leg með­ferð beiðn­anna heldur eru þeir sem eru flótta­menn frá Úkraínu nokkurn veg­inn sjálf­krafa sam­þykktir.

Við þurfum að spyrja okkur spurn­inga sem tengj­ast atvinnu­leyf­unum, sem eru ein áherslu­breyt­ing sem við í þess­ari rík­is­stjórn höfum viljað beita okkur fyrir og ég hygg að verði sér­stak­lega tekið fyrir í frum­varpi ráð­herr­ans. Þannig að áður en við förum að spyrja okkur: Hvað getum við gert í Póllandi? þá held ég að við verðum að spyrja okkur: Hvað getum við gert hér og nú í okkar eigin kerfi?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár