„Þarf ekki meira en eitt pennastrik til að sýna aukna mannúð“

Þing­maður Pírata segir að rík­is­stjórnin sé í her­ferð gegn ákveðnum hópum flótta­fólks og gagn­rýnir brott­vís­anir stjórn­valda til Grikk­lands. Dóms­mála­ráð­herra telur aftur á móti að það gangi bara „nokkuð vel og hratt fyrir sig“ í Grikk­landi að afgreiða mál.

Andrés Ingi Jónsson þingmaður Pírata.
Andrés Ingi Jónsson þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra og Andrés Ingi Jónsson þing­maður Pírata voru ekki sam­mála á Alþingi í dag um ágæti þess að senda umsækj­endur um alþjóð­lega vernd sem fengið hafa synjun aftur til Grikk­lands eins og til stendur hjá stjórn­völdum að gera.

Þing­mað­ur­inn spurði ráð­herr­ann í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma hvort hann teldi raun­veru­lega að vernd­ar­kerfið í Grikk­landi gæti boðið upp á virka alþjóð­lega vernd fyrir fólkið sem flúið hefur til Íslands frá Grikk­landi.

Ráð­herr­ann sagði meðal ann­ars að það væri ekki mat grískra stjórn­valda að þau réðu ekki við vand­ann. Þau væru að vinna ágæt­lega í því að afgreiða mál þeirra sem þangað leita. „Það er alla­vega sam­kvæmt þeim upp­lýs­ingum sem ég fékk,“ sagði hann.

Andrés Ingi hóf fyr­ir­spurn sína á því að segja að rík­is­stjórnin væri í her­ferð gegn ákveðnum hópum flótta­fólks. „Þau sýna það reglu­lega með útlend­inga­frum­varpi sem er sér­stak­lega beint gegn þeim sem hafa fengið sam­þykkta umsókn um alþjóð­lega vernd í öðru ríki eins og fólkið sem er að flýja brotin vernd­ar­kerfi Grikk­lands. En það er nákvæm­lega ekk­ert öruggt við að vera með alþjóð­lega vernd í Grikk­landi. Við vitum að fólk í þeirri stöðu býr á göt­unni, það er aft­ast í röð­inni þegar kemur að hús­næði, atvinnu, menntun fyrir börnin sín. Þau eru útsett fyrir mis­munun og ofbeldi á hverjum ein­asta degi. Þessu bera íslensk stjórn­völd ábyrgð á í hvert sinn sem þau brott­vísa fólki aftur til Grikk­lands.“

Hann sagði jafn­framt að þetta væru engin ný tíð­indi heldur hefði verið bent á þetta í mörg ár af sér­fræð­ingum og mann­rétt­inda­sam­tökum. Nú ætl­uðu stjórn­völd að halda upp­teknum hætti með því að vísa næstum 300 flótta­mönnum í þess­ari stöðu frá Íslandi.

Stærstu og ógeðfelldustu fjöldabrottvísanir Íslandssögunnar

Þing­mað­ur­inn benti á að lög væru verk þing­fólks og spurði í fram­hald­inu hvað þingið gæti gert í þessum málum núna. Hann svar­aði spurn­ing­unni með því að segja að Alþingi gæti til að mynda breytt lögum á þann hátt að heim­iluð yrði sér­stök með­ferð þeirra flótta­manna sem hafa verið fastir í tvö ár vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs.

„Þar eigum við meira að segja for­dæmi í frum­varpi sem Katrín Jak­obs­dóttir, þá þing­maður, lagði fram fyrir kosn­ingar 2017. Ráðherra gæti meira segja bara sett reglu­gerð sem skil­greinir ástandið vegna heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru sem sér­stakar aðstæður og þar með væri heim­ilt að veita hæli öllum þeim sem vegna ástands­ins ílengd­ust hér á landi. Það þarf nefni­lega bara eitt penna­strik til að grípa inn í. Það þarf ekki meira en eitt penna­strik til að sýna aukna mannúð.

Núna þegar dóms­mála­ráð­herra býr sig undir að fylla nokkrar flug­vélar af flótta­fólki og hefja þannig stærstu og ógeð­felld­ustu fjölda­brott­vísun Íslands­sög­unnar liggur bein­ast við að spyrja af hverju. Það er hægt að breyta reglum til að ná utan um þennan hóp. Það þarf bara eitt penna­strik, það þarf bara póli­tískan vilja. Af hverju er það ekki gert? Er það þetta sem rík­is­stjórnin öll sem eitt vilja gera?“ spurði Andrés Ingi.

Ekki verið hægt að framfylgja brottvísunum – og hópurinn því safnast upp

Dóms­mála­ráð­herra svar­aði og sagði að mik­il­vægt væri að hafa það í huga að vernd­ar­kerfið gengi út á sam­komu­lag milli landa um skil­grein­ingu á fólki á flótta sem væri í bráðri hættu af ein­hverjum ástæðum.

[links]„Það er regla hjá okkur og flestum öðrum ríkjum Evrópu að hafi fólk fengið vernd í öðru ríki þá sé það ekki að sækja um vernd ann­ars staðar. Við erum því ekk­ert almennt að skilja okkur frá öðrum ríkjum sem við berum okkur saman við þegar við sendum fólk úr landi. Máls­með­ferðin sem hér er stunduð er víð­tæk­ari og meiri en gengur og ger­ist í mörgum löndum í kringum okkur, þar sem aðilar hafa kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að synja við­kom­andi um vernd meðal ann­ars á þessum for­sendum. Það verður að hafa í huga að fyrst ger­ist þetta á stjórn­sýslu­stigi sam­kvæmt lögum, gegnum Útlend­inga­stofnun. Fólk getur svo áfrýjað máli sínu til úrskurð­ar­nefndar útlend­inga­mála. Það er eftir slíka máls­með­ferð, þar sem fólkið hefur bæði fram­færslu og lög­lærðan tals­mann sér við hlið í öllu ferl­inu, að fólk er orðið hér í ólög­mætri dvöl ef það fer ekki úr landi.

Það er alveg rétt að hér hafa verið vel á þriðja hund­rað manns, ætli það séu ekki svona 270 manns. Almennt er ástæðan sú að það hefur neitað að fara í svo­kallað PCR-próf og því hefur ekki verið hægt að fram­fylgja brott­vísun. Þá hefur þessi hópur safn­ast upp og við því er verið að bregð­ast núna þegar ríkið er að fella niður þetta eft­ir­lit á landa­mærum sínum. Alþingi getur vissu­lega breytt þessu. Alþingi setti okkur reglur og eftir þeim erum við að vinna í öllu ferl­inu. Það er þá Alþingis að breyta þeim ef það vill við­hafa önnur vinnu­brögð,“ sagði ráð­herr­ann.

Ráðherrann kominn í mótsögn við sérfræðinga

Andrés Ingi kom aftur í pontu og sagði að það væri alltaf jafn stuð­andi að heyra dóms­mála­ráð­herra tala eins og það væri eitt­hvað ann­ar­legt að flótta­fólk und­ir­geng­ist ekki þving­aða lækn­is­rann­sókn til að vera vísað út „á guð og gadd­inn“.

„Hér ger­ist það enn einu sinni. Auðvitað neit­aði fólk að fara í PCR-próf eins og því ber réttur til sam­kvæmt lögum, lög­unum sem ráð­herra hvetur okkur til að breyta. Vernd­ar­kerfið er sett upp til að tryggja að umsækj­endur um alþjóð­lega vernd fái ein­hvers staðar efn­is­lega með­ferð sinna umsókna frekar en að þeim sé skákað á milli. Það var ekki sett upp til að vera mis­notað eins og gert er af íslenskum stjórn­völdum til að senda fólk til fyrsta við­komu­lands og segja bara: Grikk­land, dílið þið við þetta. Við nennum því ekki. Grikk­land er búið að senda út neyð­ar­kall árum saman því að það ræður ekki við verk­efnið. Hvar er sam­staðan með grískum stjórn­völdum hjá ráð­herra?“ spurði þing­mað­ur­inn.

„Í lög­unum er líka talað um að fólk eigi að fá virka alþjóð­lega vernd þegar því er vísað til ann­ars ríkis. Ætlar ráð­herr­ann í alvöru að standa hér og segja okkur að vernd­ar­kerfið í Grikk­landi geti boðið upp á virka alþjóð­lega vernd? Þá er hann kom­inn í mót­sögn við alla sér­fræð­inga,“ sagði Andrés Ingi í síð­asti fyr­ir­spurn sinni.

„Það gengur bara nokkuð vel og hratt fyrir sig í Grikklandi að afgreiða mál“

Jón svar­aði í annað sinn en hann telur að það sé ekki „eitt­hvert ann­ar­legt sjón­ar­mið að biðja fólk um að gang­ast undir PCR-próf“. Hann sagði að stjórn­völd væru ekki með þving­unar­úr­ræði í þeim efnum í lögum í dag eins og mörg önnur lönd væru með þar sem þetta væri gert að skil­yrði. „Reyndar er reynslan sú hjá þeim löndum þar sem þetta skil­yrði er fyrir hendi að þá reynir sárasjaldan á það.“

Hann sagði að það væri rétt hjá Andrési Inga að vernd­ar­kerfið væri til að fólk á flótta fengi ein­hvers staðar máls­með­ferð og það væri nákvæm­lega það sem gerð­ist í Grikk­landi.

„Varðandi það að Grikk­land hafi sent út neyð­ar­kall og ráði ekki við vand­ann þá er það ekki mat grískra stjórn­valda vegna þess að grísk stjórn­völd eru að taka á móti þessu fólki og eru að vinna ágæt­lega í því að afgreiða mál þeirra sem þangað leita. Það er alla­vega sam­kvæmt þeim upp­lýs­ingum sem ég fékk. Það gengur bara nokkuð vel og hratt fyrir sig í Grikk­landi að afgreiða mál þeirra sem þangað leita til að fá vernd þegar það á við,“ sagði ráð­herr­ann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár