Andmælir því harðlega að Ísland stefni í að vera með hörðustu útlendingastefnu í Evrópu

For­sæt­is­ráð­herra vill ekki kvitta upp á það að hér á landi sé hörð útlend­inga­stefna. Ísland hafi tekið „á móti fleirum en nokkru sinni fyrr, hlut­falls­lega fleirum líka af þeim sem hafa sótt um“.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra seg­ist ekki annað geta gert en að and­mæla því harð­lega þegar því er haldið fram að Ísland stefni í að vera með hörð­ustu útlend­inga­stefnu í Evrópu.

Þetta kom fram í máli ráð­herr­ans í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag þegar Logi Ein­ars­son for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar spurði hana meðal ann­ars út í það hvort hún ætl­aði að beita sér fyrir því að það fólk, sem hér hefur dvalið, unnið og fest rætur í tals­verðan tíma en á nú að senda til Grikk­lands, fengi dval­ar­leyfi.

Logi Ein­ars­son benti á í upp­hafi fyr­ir­spurnar sinnar að Silja Bára Ómars­dóttir for­maður Rauða kross­ins hefði sagt að hér væri verið að taka upp útlend­inga­stefnu sem yrði með þeim harð­ari í Evrópu og hefði bent á að flótta­fólki væri mis­munað eftir upp­runa.

[links]„Við sáum þessa stefnu í síð­ustu viku þegar fram kom hjá hæst­virtum dóms­mála­ráð­herra að til standi að vísa hátt í 300 manns til Grikk­lands. Þetta ger­ist á sama tíma og þörf fyrir vinnu­fúsar hendur hefur auk­ist hér á landi vegna auk­ins ferða­manna­straums. Okkur vantar fólk og rík­is­stjórnin hyggst senda úr landi 300 manns,“ sagði hann.

Greindi Logi frá því að í þeim hópi væri 22 ára sómölsk stúlka sem starf­aði sem sjálf­boða­liði hjá Rauða kross­inum og hennar biði hræði­leg örlög í Grikk­landi. „Þarna er líka Palest­ínu­maður sem hefur dvalið hér í tvö ár og starfað í ferða­þjón­ustu og vinnu­veit­andi hans skilur ekki af hverju rík­is­stjórnin hyggst senda hann úr landi. Hvert og eitt í þessum hópi á sína sér­stöku sögu en hæst­virtur dóms­mála­ráð­herra tal­aði ein­ungis um ólög­mæta dvöl eins og að hér séu á ferð glæpa­menn en ekki fólk á flótta undan óbæri­legum aðstæðum, fólk sem ekk­ert hefur til saka unnið annað en að reyna að brjót­ast út úr ómann­úð­legum aðstæðum.“

Vísaði þing­mað­ur­inn í frétt sem birt­ist á visi.is þar sem Katrín sagði að það þyrfti að horfa á stóru mynd­ina og kenndi síðan skorti á heild­ar­stefnu­mótun í mála­flokknum um. Benti hann á að þessir 300 ein­stak­lingar sem nú eiga yfir höfði sér brott­vísun væru í vanda og þeim gagn­að­ist ekki heild­ar­stefnu­mótun sem eng­inn vissi hver væri og eng­inn geng­ist við. Spurði hann Katrínu hvort hún ætl­aði að beita sér fyrir því að það fólk sem hér hefur dvalið, unnið og fest rætur í tals­verðan tíma en á nú að senda til Grikk­lands, fengi dval­ar­leyfi.

Mikilvægt að horfa til þess hverjar aðstæður eru í Grikklandi áður en fólk er sent þangað

Katrín svar­aði og þakk­aði Loga fyrir að taka þessi mál upp. „Það er þrennt sem mig langar að nefna af því að það voru þrjú atriði sem hann kom inn á í sinni fyr­ir­spurn. Í fyrsta lagi er því haldið fram að Ísland stefni í það að vera með hörð­ustu inn­flytj­enda- og flótta­fólks­stefnu í Evrópu. Ég get ekki annað en and­mælt því harð­lega þegar við skoðum ein­fald­lega þróun síð­ustu ára þar sem einmitt hefur verið tekið á móti fleirum en nokkru sinni fyrr, hlut­falls­lega fleirum líka af þeim sem hafa sótt um.

Ef við berum okkur saman til að mynda við Norð­ur­lönd hefur Ísland verið með mun frjáls­lynd­ari stefnu þar sem aðilar í þess­ari stöðu, sem hátt­virtur þing­maður gerir hér að umtals­efni, eru geymdir í lok­uðum búðum áður en þeir eru sendir úr landi. Við heyrum núna fregnir frá Danmörku þar sem Danmörk hefur í huga að útvista þjón­ustu sinni við fólk með alþjóð­lega vernd til Rúanda, sem er það sama fyr­ir­komu­lag og Bretar hafa kynnt,“ sagði ráð­herr­ann og bætti því við að hún hlyti að and­mæla því þegar Logi héldi þessu fram í sinni fyr­ir­spurn.

„Í öðru lagi er spurt líka: Eru ein­hverjar sér­reglur um suma? Vænt­an­lega er þá verið að vitna til fólks sem hingað leitar frá Úkraínu, hvort það gildi aðrar reglur um það en aðra flótta­menn. Auðvitað hefur fjöld­inn einn og sér, í ljósi þess að hingað hafa núna meira en 1.000 manns óskað eftir alþjóð­legri vernd frá Úkraínu og aðstæður eru mjög sér­stakar í Evrópu, gert það að verkum að það hefur verið brugðið á sér­stök úrræði og ég vil nefna sér­staka mót­töku­stöð í Domus Medica, tíma­bundnar aðgerðir vegna mót­töku barna í skóla. Það eru engar sér­reglur sem gilda um rétt­indi og þjón­ustu við ein­stak­linga af einu þjóð­erni umfram annað en það var gripið til ákveð­inna aðgerða til að bregð­ast við for­dæma­lausum fjölda.

Þá hvað varðar þennan hóp núna. Ég legg á það áherslu að sjálf­sögðu að við horfum til þess að þetta eru auð­vitað ein­stak­lingar. Þetta er ekki eins­leitur hópur. Aðstæður fólks eru mis­mun­andi. Ég veit það hins vegar að þau eiga það sam­merkt að hafa beðið hér vegna COVID. Ég hef ekki fengið svör við því en ég veit að dóms­mála­ráðu­neytið er að afla sér upp­lýs­inga um það hvort það sé verið að senda fólk til Grikk­lands sem stendur. Ég hef ekki fengið það stað­fest. En mér finnst mjög mik­il­vægt að við horfum til þess hverjar aðstæður eru þar áður en slíkar ákvarð­anir eru teknar. Ég kem nánar að þessu í seinna svari,“ sagði hún.

Ætlar Katrín að beita sér?

Logi kom aftur í pontu og sagði að auð­vitað ætti sér stað mis­munun. „Hér er til dæmis verið að veita börnum af einu þjóð­erni tölu­vert meiri stuðn­ing en öðrum. Það þarf nátt­úr­lega bara sér­staka útskýr­ingu á því.“

Spurði hann í fram­hald­inu út í orð Katrínar um heild­ar­mynd­ina. Væri stóra myndin sú að sam­þykkja útlend­inga­frum­varp Jóns Gunn­ars­sonar dóms­mála­ráð­herra sem þrengdi enn að mögu­leikum flótta­fólks? „Er for­svar­an­legt að vísa 300 manns úr landi til Grikk­lands í aðstæður sem mann­úðar- og mann­rétt­inda­sam­tök telja óör­uggar?“

Hann spurði enn fremur hvort Katrín ætl­aði að beita sér sér­stak­lega fyrir þennan 300 manna hóp sem hér hefur fest rætur. Og ef hún hefði tíma þá lang­aði þing­mann­inn að vita hvort hún styddi útlend­inga­frum­varp dóms­mála­ráð­herra.

Þyrfti að móta stefnu sem byggir á lögunum

Katrín sagði að sam­kvæmt þeim upp­lýs­ingum sem hún hefði fengið frá dóms­mála­ráð­herra þá hefði meiri­hluti þeirra sem sendir verða út landi á næst­unni fengið vernd í öðru Evr­ópu­ríki, þar af 80 í Grikk­landi.

„Ég hef óskað eftir upp­lýs­ingum um það hvort önnur Evr­ópu­ríki séu að senda til Grikk­lands miðað við aðstæður þar, því að það er eitt af því sem er bent á, að aðstæður þar séu ekki full­nægj­andi, og ég hef ekki fengið svör við því. Mér finnst skipta miklu máli að við kynnum okkur þau mál til hlítar áður en slíkar ákvarð­anir eru teknar,“ sagði hún.

Hún sagði jafn­framt að henni hefði þótt skorta, og þætti enn, „á það að við – eftir að hafa komið okkur saman um lög um mál­efni útlend­inga sem voru sam­þykkt í mik­illi sátt en höfum hins vegar reglu­lega verið að bregð­ast við ýmissi þeirri gagn­rýni sem hefur komið upp, meðal ann­ars með breyt­ingum á máls­með­ferð­ar­tíma og fleira – gerum atlögu að því að móta okkur ein­hverja stefnu sem byggir á þessum lögum“.

Katrín sagð­ist að lokum vita til þess að Guð­mundur Ingi Guð­brands­son félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra væri að und­ir­búa slíka stefnu­mótun og að ljóst væri að ekki hefði ríkt full sátt um fram­kvæmd þess­ara laga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár