Hlutverk RÚV ekki „að mála opinbera embættismenn upp sem einhverjar grýlur“

Þingmenn Mið­flokks­ins hrósa Útlend­inga­stofnun fyrir við­brögð við jóla­daga­tali RÚV þar sem meðal ann­ars er fjallað um fólk á flótta. Formaður Mið­flokks­ins segir stofn­un­ina hafa orðið fyrir árásum og áróðri af hálfu ann­arrar rík­is­stofn­unar.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, og Bergþór Ólason, segja Útlendingastofnun ekki hrósað nóg á Alþingi og bættu úr því undir störfum þingsins í dag þar sem þeir hrósuðu stofnuninni fyrir viðbrögð við jóladagatali RÚV.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, og Bergþór Ólason, segja Útlend­inga­stofnun ekki hrósað nóg á Alþingi og bættu úr því undir störfum þings­ins í dag þar sem þeir hrósuðu stofn­un­inni fyrir við­brögð við jóla­daga­tali RÚV. Mynd: Bára Huld Beck

„Mig langar í dag undir störfum þings­ins að hrósa Útlend­inga­stofnun. Það er ekki gert mikið af því hér úr þessum ræðu­stól,“ sagði Bergþór Ólason, þing­maður Mið­flokks­ins, við upp­haf þing­fundar í morgun.

Tilefnið er sér­stakur vefur Útlend­inga­stofn­unar sem settur var í loftið í vik­unni þar sem farið er yfir efn­is­at­riði í jóla­daga­tal­inu sem sýnt er á RÚV nú á aðvent­unni, en það ber heitið Randa­lín og Mundi: Dagar í des­em­ber og fjallar meðal ann­ars um fólk á flótta.

[adspot]Á vef Útlend­inga­stofn­unar segir að jóla­daga­talið sé „vel tíma­sett“ því aldrei hafi áður jafn margir flúið til Íslands og á þessu ári, sem þýði að aldrei áður hafi jafn mörg börn á Íslandi átt bekkj­ar­systkin og nágranna sem hafi þurft að flýja heima­lönd sína.

[links]„Per­sónur þátt­anna eru skáld­aðar en áhorf­endur velta því örugg­lega fyrir sér hvort þætt­irnir gætu gerst í raun­veru­leik­an­um. Randa­lín og Mundi eru klárir krakkar sem spyrja margra skyn­sam­legra spurn­inga um flótta­fólk. Full­orðna fólkið í þátt­unum á hins vegar oft ekki til nein svör við spurn­ingum þeirra. Fyrir þá krakka, for­eldra og kenn­ara, sem eru að velta þessum spurn­ingum fyrir sér, ákváðum við hjá Útlend­inga­stofnun að taka saman upp­lýs­ingar í tengslum við efni þeirri þátta sem fjalla um mál­efni flótta­fólks. Við vonum að upp­lýs­ing­arnar nýt­ist sem grunnur að góðum sam­tölum á aðvent­unni og í fram­tíð­inn­i,“ segir einnig á vef Útlend­inga­stofn­un­ar.

„Meira að segja ég skildi þennan texta ágætlega“

Bergþór segir Útlend­inga­stofnun hafa tek­ist vel til þar sem „meira að segja“ hann sjálfur hafi skilið text­ann ágæt­lega. Hvetur hann fólk ein­dregið til að kynna sér við­brögð stofn­un­ar­innar við jóla­daga­tal­inu.

Meðal útskýr­inga sem settar eru fram á vefnum er að þrátt fyrir að for­stjóri Útlend­inga­stofnun sé „svaka­leg gribba“ í þátt­unum sé það svo að í „al­vör­unni vinna engar gribbur hjá Útlend­inga­stofn­un“ og útskýrt er að fólkið sem vinni hjá Útlend­inga­stofnun vilji fólki eins og Fatimu, karakter í þátt­unum sem senda á úr landi, vel, „þótt það þurfi að segja henni að lögin séu þannig að hún fái ekki að vera áfram á land­in­u“.

„Ég held að þetta sé til mik­illa bóta og til fyr­ir­myndar. Ég vil ítreka það að ég hrósa Útlend­inga­stofnun fyrir þetta fram­tak því eins og við vitum í þessum þing­sal þá kom til hvassra orða­skipta vegna barna­efnis Rík­is­út­varps­ins í síð­ustu viku,“ sagði Bergþór.

Jóla­daga­talið var gagn­rýnt nokkuð í upp­hafi mán­að­ar, í kjöl­far þess að leik­konan Ilmur Krist­jáns­dótt­ir, sem er einn höf­unda jóla­daga­tals­ins og túlkar jafn­framt for­stjóra Útlend­inga­stofn­unar í þátt­un­um, lét hafa eftir sér í skemmti­þætt­inum Vik­unni með Gísla Mart­eini að hún hefði sett sér það ára­móta­heit að taka að sér hlut­verk vondrar konu á árinu og upp­fyllt það með því að leika for­stjóra Útlend­inga­stofn­un­ar.

Andri Steinn Hilm­ars­son bæj­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Kópa­vogi sagði það nýjan lág­punkt „þegar útlend­inga­stefna RÚV er orðin að meg­in­þema í jóla­barna­efni sem er fram­leitt“ og að emb­ætt­is­menn væru „settir í skot­miðin hjá stofn­un­inni með þessum hætt­i“.

Ásmundur Frið­riks­son þing­maður sama flokks tók svo málið upp á þingi og í kjöl­farið sagði í leið­ara Morg­un­blaðs­ins að alvar­legt væri að „RÚV skuli bjóða upp á barna­efni þar sem veist er að opin­berum emb­ætt­is­manni og fluttur áróður um póli­tísk mál­efn­i“.

Bergþór sagði það ekki geta verið hlut­verk Rík­is­út­varps­ins að „mála opin­bera emb­ætt­is­menn upp sem ein­hverjar grýlur þegar stofnun við­kom­andi aðila er ein­göngu að fram­fylgja lögum sem við á Alþingi höfum sam­þykkt“.

„Það er þá okkar hér að gera breyt­ingar ef til­efni er til,“ sagði Bergþór.

Útlendingastofnun reyni að gaslýsa börn

Arndís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dóttir, þing­maður Pírata, var hrós ekki efst í huga þegar hún tók til máls. „Fyrir utan það hversu van­hugsað og und­ar­legt útspil stofn­un­ar­innar er — hver í alvör­unni er að fara að lesa þetta upp fyrir börnin sín? — þá er margt við útskýr­ingar stofn­un­ar­innar gagn­rýni­vert,“ sagði Arndís í ræðu sinni.

Arndís Anna sagði að sam­kvæmt útskýr­ingum Útelnd­inga­stofn­unar eru brott­vís­an­irnar á ábyrgð þing­manna. „Fyrir þau okkar sem vita betur og þekkja lög um útlend­inga vel er þetta grát­bros­legur snún­ingur á raun­veru­leik­anum þegar litið er til allra þeirra sér­stöku og mats­kenndu heim­ilda og ákvæða sem stjórn­sýsl­unni er mögu­legt að beita til þess að kom­ast hjá því að vísa fólki af landi brott,“ sagði Arndís, sem segir stofn­un­ina svo gott sem reyna að gaslýsa börnin.

Ríkisstofnun beiti árás og áróðri gegn annarri ríkisstofnun

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, tók undir orð flokks­bróð­urs síns og lýsti yfir mik­illi ánægju með við­brögð Útlend­inga­stofn­unar við þeim „árásum og áróðri, það er ekki hægt að kalla það annað, sem stofn­unin hefur orðið fyrir af hálfu ann­arrar rík­is­stofn­unar og það í formi meints barna­tíma“.

Sig­mundur sagði Útlend­inga­stofnun hafa það erf­iða hlut­verk að fram­fylgja reglum án þess að mega nokkurn tím­ann að ræða ein­stök mál sem birt­ast í fjöl­miðlum.

„En þarna er á mjög kurt­eis­legan hátt farið yfir stað­reyndir mála og ég hvet fólk til að kynna sér það. En þess­ari stofnun, sem fæst við mjög erfitt verk­efni, er ekki gert auð­veld­ara fyrir af stjórn­völdum því eins og við þekkjum og meira að segja ráð­herra mála­flokks­ins hefur við­ur­kennt þá eru þessi mál í ólestri, stjórn­laus,“ sagði Sig­mundur.

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra sagði í októ­ber að ástandið í mál­efnum flótta­fólks væri stjórn­laust og að bregð­ast þurfi við auknum fjölda hæl­is­leit­enda með hertum reglum. Önnur umræða um útelnd­inga­frum­varp dóms­mála­ráð­herra var fyr­ir­huguð á Alþingi fyrir jól en á fundi þing­flokks­for­manna í hádeg­inu var ákveðið að fresta umræður um útlend­inga­frum­varp dóms­mála­ráð­herra fram yfir ára­mót.

Farið var því að vilja stjórn­ar­and­stöðu­þing­manna eftir að til­laga þing­manns Pírata um að taka af frum­varpið af dag­skrá var felld á Alþingi í síð­ustu viku. Stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn sögðu það fárán­legt að afgreiða eigi frum­varpið áður en ein­greiðsla til öryrkja verði tekin fyrir á þingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár