Segir Múlaþing ekki vera að útiloka flóttafólk frá öðrum ríkjum en Úkraínu

Múlaþing ætlar að leggja „sér­staka áherslu“ á mót­töku flótta­fólks frá Úkraínu í samn­ingi sem sveit­ar­fé­lagið gerir við stjórn­völd um sam­ræmda mót­töku flótta­fólks. Sveit­ar­stjóri segir sveit­ar­fé­lagið ekki vera að úti­loka flótta­fólk frá öðrum ríkjum.

Sveitarstjóri Múlaþings segir áherslu um að taka fyrst og fremst á móti flóttafólki frá Úkraínu komna frá eigendum Eiða sem boðið hafa húsnæðið fyrir móttöku flóttafólks.
Sveit­ar­stjóri Múla­þings segir áherslu um að taka fyrst og fremst á móti flótta­fólki frá Úkraínu komna frá eig­endum Eiða sem boðið hafa hús­næðið fyrir mót­töku flótta­fólks.

Sveit­ar­stjórn Múla­þings sam­þykkti í vik­unni fyr­ir­liggj­andi drög að samn­ingi um sam­ræmda mót­töku flótta­fólks. Í til­lög­unni sem sam­þykkt var segir að sveit­ar­fé­lagið leggi „sér­staka áherslu á mót­töku flótta­fólks frá Úkraínu“.

„Það þýðir bara nákvæm­lega þetta,“ segir Björn Ingi­mars­son, sveit­ar­stjóri Múla­þings, í sam­tali við Kjarnann. Aðspurður hvort þetta þýði að Múlaþing muni úti­loka flótta­fólk frá öðrum ríkjum segir Björn að svo sé ekki, en að það verði megin áhersla sveit­ar­fé­lags­ins að taka á móti flótta­fólki frá Úkraínu.

Félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neytið vinnur nú að und­ir­ritun samn­inga við sveit­ar­fé­lög um sam­ræmda mót­töku flótta­fólks sem gildir til árs­loka 2023. Samn­ing­ur­inn felur í sér fjár­stuðn­ing frá rík­inu svo sveit­ar­fé­lög geti veitt þeim fjölda flótta­fólks sem það er til­búið til að taka á móti full­nægj­andi þjón­ustu yfir gild­is­tíma samn­ings­ins.

Markmið samn­ing­ins er að sam­ræma mót­töku flótta­fólks þannig að ríkis og sveit­ar­fé­lög tryggi flótta­fólki sam­fellda og jafna þjón­ustu óháð því hvaðan það kemur. Ekkert kemur fram í þjón­ustu­samn­ingnum að sveit­ar­fé­lög geti sett ákveðna fyr­ir­vara um mót­töku, til að mynda frá hvaða löndum flótta­fólkið kemur.

Áhersla frá upphafi á flóttafólk frá Úkraínu

Björn segir áhersl­una fyrst og fremst koma frá eig­endum Eiða sem buðu hús­næði gamla Alþýðu­skól­ans á Eiðum fram undir fólk á flótta eftir inn­rás Rússa í Úkraínu. Í dag eru um 30 flótta­menn búsettir á Eiðum.

„Þetta hefur verið áhersla frá upp­hafi. Við gerum okkur hins vegar alveg grein fyrir því að samn­ing­ur­inn snýst um sam­ræmda mót­töku flótta­fólks en þetta er okkar megin áhersla. Sveit­ar­fé­lagið hafði í raun­inni ekki yfir­ráð á hús­næði til að geta brugð­ist við þessu fyrr en eig­endur Eiða höfðu frum­kvæði að þessu,“ segir Björn.

Fulltrúi Miðflokksins samþykkti með þeim fyrirvara að verið væri að tryggja móttöku fólks frá Úkraínu

Þröstur Jónsson, sveit­ar­stjórn­ar­full­trúi Mið­flokks­ins, lagði fram bókun á fundi sveit­ar­stjórnar í vik­unni þar sem hann seg­ist sam­þykkja samn­ings­drögin þar sem það sé hans skiln­ingur að samn­ing­ur­inn sé ein­göngu til að tryggja fram­gang mót­töku flótta­fólks frá Úkraínu. „Að þeim skiln­ingi gefnum sam­þykki ég fyr­ir­liggj­andi samn­ings­drög,“ segir í bókun Þrastar.

Björn seg­ist ekki geta tjáð sig frekar um bókun Þrastar. „Þetta er í raun­inni bara hans skiln­ingur.“

Samn­ing­ur­inn fer nú til ráðu­neyt­is­ins þar sem mun koma í ljós hvort til­lit verður tekið til áherslu sveit­ar­fé­lags­ins um að leggja áherslu á mót­töku flótta­fólks frá Úkraínu. „Það verður bara að koma í ljós hvernig þessi mál þró­ast. Það verður alltaf sam­tal okkar og ráðu­neytis,“ segir Björn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár