„Í alvörunni vinna engar gribbur hjá Útlendingastofnun“

Útlend­inga­stofnun hefur sett upp nýjan vef, með svörum við spurn­ingum sem gætu vaknað hjá börnum við áhorf jóla­daga­tals­ins sem sýnt er á RÚV núna á aðvent­unni. Þar kemur auk ann­ars fram að í alvör­unni vinni engar gribbur hjá stofn­un­inni.

Randalín og Mundi eru aðalsöguhetjurnar í nýju jóladagatali sem sýnt er á RÚV þessa dagana.
Randalín og Mundi eru aðal­sögu­hetj­urnar í nýju jóla­daga­tali sem sýnt er á RÚV þessa dag­ana.

Útlend­inga­stofnun hefur sett í loftið sér­stakan vef, þar sem farið er yfir efn­is­at­riði í jóla­daga­tal­inu sem sýnt er á RÚV nú á aðvent­unni, en það ber heitið Randalín og Mundi: Dagar í des­em­ber og fjallar meðal ann­ars um fólk á flótta.

Á vef Útlend­inga­stofn­unar segir að jóla­daga­talið sé „vel tíma­sett“ því aldrei hafi áður jafn margir flúið til Íslands og á þessu ári, sem þýði að aldrei áður hafi jafn mörg börn á Íslandi átt bekkj­ar­systkin og nágranna sem hafi þurft að flýja heima­lönd sína.

„Persónur þátt­anna eru skáld­aðar en áhorf­endur velta því örugg­lega fyrir sér hvort þætt­irnir gætu gerst í raun­veru­leik­anum. Randalín og Mundi eru klárir krakkar sem spyrja margra skyn­sam­legra spurn­inga um flótta­fólk. Full­orðna fólkið í þátt­unum á hins vegar oft ekki til nein svör við spurn­ingum þeirra. Fyrir þá krakka, for­eldra og kenn­ara, sem eru að velta þessum spurn­ingum fyrir sér, ákváðum við hjá Útlend­inga­stofnun að taka saman upp­lýs­ingar í tengslum við efni þeirri þátta sem fjalla um mál­efni flótta­fólks. Við vonum að upp­lýs­ing­arnar nýt­ist sem grunnur að góðum sam­tölum á aðvent­unni og í fram­tíð­inni,“ segir á vef Útlend­inga­stofn­unar.

Gagnrýni á dagatalið

Jóla­daga­talið var gagn­rýnt nokkuð í upp­hafi mán­aðar, í kjöl­far þess að leik­konan Ilmur Krist­jáns­dóttir, sem er einn höf­unda jóla­daga­tals­ins og túlkar jafn­framt for­stjóra Útlend­inga­stofn­unar í þátt­unum, lét hafa eftir sér í skemmti­þætt­inum Vikunni með Gísla Marteini að hún hefði sett sér það ára­móta­heit að taka að sér hlut­verk vondrar konu á árinu og upp­fyllt það með því að leika for­stjóra Útlend­inga­stofn­unar.

Andri Steinn Hilm­ars­son bæj­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Kópavogi sagði það nýjan lág­punkt „þegar útlend­inga­stefna RÚV er orðin að meg­in­þema í jóla­barna­efni sem er fram­leitt“ og að emb­ætt­is­menn væru „settir í skot­miðin hjá stofn­un­inni með þessum hætti“.

Ásmundur Frið­riks­son þing­maður sama flokks tók svo málið upp á þingi og í kjöl­farið sagði í leið­ara Morg­un­blaðs­ins að alvar­legt væri að „RÚV skuli bjóða upp á barna­efni þar sem veist er að opin­berum emb­ætt­is­manni og fluttur áróður um póli­tísk mál­efni“.

Bara þingmennirnir á Alþingi sem breytt geti lögunum

Á vef Útlend­inga­stofn­unar eru settar fram útskýr­ingar á þeim málum sem eru til umfjöll­unar í þætt­inum á ein­földu máli. Þar kemur meðal ann­ars fram að þrátt fyrir að for­stjóri Útlend­inga­stofnun sé „svaka­leg gribba“ sé það svo að í „alvör­unni vinna engar gribbur hjá Útlend­inga­stofnun“ og útskýrt er að fólkið sem vinni hjá Útlend­inga­stofnun vilji fólki eins og Fatimu, karakter í þátt­unum sem senda á úr landi, vel, „þótt það þurfi að segja henni að lögin séu þannig að hún fái ekki að vera áfram á land­inu“.

„Það eru ekki allir sam­mála um hvernig lögin um hverjir megi búa á Íslandi eigi að vera. Þingmenn á Alþingi deila oft um þessi mál. Lögin sem gilda hverju sinni er þær reglur sem fólkið hjá Útlend­inga­stofnun þarf að fara eftir þegar það skoðar hver má vera og hvar þarf að fara. Það eru bara þing­menn­irnir á Alþingi sem geta breytt lög­unum,“ segir einnig í umfjöllun Útlend­inga­stofn­unar um efni þátt­anna.

Til þessa hefur stofn­unin birt upp­lýs­ingar um efn­is­at­riði fjög­urra þátta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár